h e i m . . .
m y n d i r . . .
h l e k k i r . . .
t ó n l i s t . . .

k ö n n u n i n :
hverjir verða enskir meistarar?
Man Utd
Chel$ki...nei ég meina Man Utd

72 hafa greitt atkvæði




f ó l k :
- gísli tjörvi
- hafrún systir
- íris og co
- kolla
- heiða og pétur
- steini og gunnsa
- freyja og gummi
- kibbakibb
- elías
- toggi belgi
- matta og hjálmar
- óskar borgþórsson
- birkir snær brynleifsson
- róbert már gylfason

f r é t t i r :
- hornfirskar
- mbl.is
- visir
- slashdot
- the register
- fótboltafréttir

s n i ð u g t :
- baggalútur
- laukurinn


- pgp dreiflykill






| 16.11.2007 @ 11:11 | bjorninn |


Þetta kríli, hún Sunna Kristín, er víst 5 ára í dag!
| 3 ófeimnir |




| 11.11.2007 @ 23:00 | bjorninn |
Björninn er uppi og hlaupandi á Miðbraut 21, 170 Seltjarnarnesi!
| 4 ófeimnir |




| 15.09.2007 @ 13:24 | bjorninn |


Ætlaði bara að benda á stöðuna á toppnum í Ensku úrvalsdeildinni.
| 4 ófeimnir |




| 15.09.2007 @ 13:12 | bjorninn |


Sunna Kristín á leiðinni í fyrsta danstíma vetrarins.
| 5 ófeimnir |




| 07.09.2007 @ 00:18 | bjorninn |
Þaldénú, var að setja inn myndir. Sumarmyndir 2007, ég endurtek 2007. Sumarið eftir Spánarferðina. Já, og til hamingju með ammælið stóra systir.
| 2 ófeimnir |




| 27.08.2007 @ 21:04 | bjorninn |
Tékkið á þessu: www.kiva.org
Þarna getið þið lánað t.d. konu í Kenýa 25 dollara til að hún geti opnað skóbúð, eða karli í Búlgaríu sömu upphæð svo hann geti opnað reiðhjólaverkstæði, já eða bara eitthvað allt annað.
| 3 ófeimnir |




| 27.07.2007 @ 21:01 | bjorninn |
Ég skil ekki af hverju allir hinir eru ekki löngu búnir að gefast upp. Nick Cave er löngu búinn að vinna þetta, djöfuls fokkins snillingur!
| 9 ófeimnir |




| 04.07.2007 @ 22:31 | bjorninn |
Eru ekki allir í stuði fyrir jóla og áramótamyndir? Ég hélt það. Var semsagt að setja jóla og áramótamyndirnar inn á myndasíðuna. Alveg er þetta magnaður dugnaður.
| 2 ófeimnir |




| 03.07.2007 @ 09:07 | bjorninn |
...og stuðið heldur áfram. Enn fleiri myndir komnar inn. Nú myndir frá því við fórum í sumarbústað í Hvalfirði í vetur.
| Verið ófeimin! |




| 01.07.2007 @ 22:49 | bjorninn |
Það held ég að björninn sé í stuði í dag. Setti inn annan skammt af myndum, frá því núna í vor, páskar, afmælið hans Gísla Tjörva og eitthvað fleira. Nú er bara tæplega árs gat þarna á milli sem þarf að stoppa upp í. Það verður nú lítið mál fyrir svona nagla.
| 1 ófeiminn |




| 01.07.2007 @ 17:15 | bjorninn |
Myndir úr Spánarferðinni komnar inn á myndasíðuna.
| Verið ófeimin! |




| 07.06.2007 @ 23:38 | bjorninn |

Hér má sjá spánna fyrir Nice
| 3 ófeimnir |




| 07.06.2007 @ 11:12 | bjorninn |

| 3 ófeimnir |




| 30.05.2007 @ 13:40 | bjorninn |
Skyldi nafni minn Bjarnason vera búinn að frétta af þessu?
| 6 ófeimnir |




| 09.05.2007 @ 22:10 | bjorninn |


Þessi snillingur komst á táningsaldurinn í dag! Magnað!
| 2 ófeimnir |




| 08.05.2007 @ 15:34 | bjorninn |
X-hvað?

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 6.25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 37.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 18%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%

| 6 ófeimnir |




| 07.05.2007 @ 23:58 | bjorninn |
Lýst er eftir karlmanni!

Lýst er eftir sænsk-íslenskum karlmanni á fertugsaldri. Síðast sást til hans grátandi fyrir utan sænska áfengisverslun, með u.þ.b. 1000 SEK í hendinni, eftir að chel$ki klúðruðu enska meistaratitlinum í gær. Hann var klæddur í þröngan hjólabúning, og var á gönguskíðum. Þess má geta að maðurinn er haldinn öryggismyndavélafælni, og sést helst ekki í námunda við þær. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir mannsins eru vinsamlegast beðnir að láta Annþór vita hvar hann er.
| Verið ófeimin! |




| 03.05.2007 @ 08:16 | bjorninn |
Vegna tæknilegra örðugleika er ekki hægt að kommenta í augnablikinu.
| 13 ófeimnir |




| 02.04.2007 @ 00:27 | bjorninn |
Sjóðheitar myndir frá fyrri hluta sumars 2006 komnar inn á myndasíðuna. Er hægt að biðja um eitthvað meira?
| 8 ófeimnir |




| 18.03.2007 @ 11:34 | bjorninn |
Björninn er ekki dauður úr öllum æðum, ónei! Var að setja inn nokkrar myndir í fjölskyldualbúmið á myndasíðunni. Ekkert voðalega nýjar myndir samt. Enda er miklu skemmtilegra að skoða gamlar myndir heldur en nýjar. Ætla svo að reyna að taka mig á í myndamálunum og koma restinni af myndunum þarna inn á næstunni. Verið samt ekkert að halda niðri í ykkur andanum!
| 1 ófeiminn |




| 11.03.2007 @ 00:00 | bjorninn |



Tígrisdýrið og músin á leið á grímuball í dag.

| 9 ófeimnir |




| 05.03.2007 @ 12:09 | bjorninn |


| 6 ófeimnir |




| 28.02.2007 @ 12:19 | bjorninn |



Unnar Tjörvi snillingur og aðstoðar kerfisstjóri er eins árs í dag!

| 6 ófeimnir |




| 31.01.2007 @ 15:30 | bjorninn |

| 15 ófeimnir |




| 27.01.2007 @ 11:35 | bjorninn |
Sjóðheitar páskamyndir frá 2006 eru komnar inn í myndaalbúmið. Djöfuls harka í Birninum alltaf hreint, eldsnemma á laugardagsmorgni.
| 2 ófeimnir |




| 27.01.2007 @ 00:34 | bjorninn |

Svona teiknar maður bíl í MS Paint. Hver þarf fótósjopp?
| Verið ófeimin! |




| 23.01.2007 @ 23:54 | bjorninn |
Ef þið þurfið að bæta línu í iptables eldveginn ykkar til að hleypa inn traffík á einhverju porti, ekki vera þá vitlaus og setja hana á eftir þessari línu:

REJECT all -- anywhere anywhere reject-with icmp-host-prohibited

því það er fokking óþolandi! argh!
| 2 ófeimnir |




| 22.01.2007 @ 11:00 | bjorninn |
Nýjar myndir? Nei, ekki alveg, en gömlu myndirnar eru komnar í nýjan búning. Sama notandanafn og lykilorð og síðast, ef menn vilja sjá eitthvað krassandi. Kannski koma nýjar myndir einhvern tímann þegar ég er hættur að smíða eldhús.
| 9 ófeimnir |




| 20.01.2007 @ 16:04 | bjorninn |
Veit einhver hvernig Liverpool - Chel$ki fór í dag?
| 5 ófeimnir |




| 18.01.2007 @ 16:45 | bjorninn |
Gömlu myndirnar komnar á sinn stað.
| 1 ófeiminn |




| 18.01.2007 @ 11:50 | bjorninn |
Rífandi gangur í þessu. Búinn að laga tímann á færslunum!
| 2 ófeimnir |




| 18.01.2007 @ 11:36 | bjorninn |
Jæjajæja, björninn kominn í loftið aftur eftir mikið bras. Það er semsagt kominn nýr og flottur server í hús. Búið að setja allt upp á honum, og slátra því með skipuninni "yum update" og setja allt upp aftur. Verður vonandi í lagi núna.

Það er ýmislegt sem á eftir að laga, t.d. eru dagsetningarnar á færslunum í einhverju fokki. Á líka eftir að setja allar gömlu myndirnar inn aftur. Svo gæti verið pláss nún fyrir nokkrar fleiri myndir meira að segja, þannig að kannski koma inn nýjar myndir fyrir næstu jól. Hver veit?
| Verið ófeimin! |




| 16.11.2006 @ 14:15 | bjorninn |

SKB
Sunna Kristín snillingur er fjögurra ára í dag! Set sumarmynd af henni hér af því það er svo kalt í dag.

| 3 ófeimnir |




| 06.11.2006 @ 16:15 | bjorninn |
Úr Fréttablaðinu:

Karlmaður dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að stinga annan mann 5 sinnum með hnífi.
Kona á fimmtugsaldri dæmd í 9 mánaða fangelsi fyir að stela jólagjöfum og jólamat.

Er þetta alveg eðlilegt?
| 4 ófeimnir |




| 08.10.2006 @ 22:37 | bjorninn |
london calling!
| 5 ófeimnir |




| 15.09.2006 @ 15:45 | bjorninn |
Cave
Rúmur sólarhringur í snilldina!


| 6 ófeimnir |




| 21.08.2006 @ 14:23 | bjorninn |
Hafið þið prófað að slá "Pési dóp með erótískt blogg" inn í Google?
| 6 ófeimnir |




| 02.08.2006 @ 09:54 | bjorninn |
Djöfuls massablíða alltaf hérna fyrir sunnan!
| 8 ófeimnir |




| 13.07.2006 @ 12:07 | bjorninn |
Djöfuls massablíða alltaf hérna fyrir austan, ha!
| 6 ófeimnir |




| 01.07.2006 @ 19:21 | bjorninn |
PÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚRTÚGAAAAAAAAAAAAL!!!
| 4 ófeimnir |




| 29.05.2006 @ 14:17 | bjorninn |
Er byrjaður í heilsuátaki. Ekki danski kúrinn, ekki greipkúrinn, ekki Atkins, og ekki sveppate. Heldur er það þetta og þetta sem er málið.
| 8 ófeimnir |




| 24.05.2006 @ 09:54 | bjorninn |
Hvar verður þú þann 16. september? Ég verð þarna.
| 4 ófeimnir |




| 09.05.2006 @ 15:13 | bjorninn |

GTB
Gísli Tjörvi snillingur er 12 ára í dag!

| 4 ófeimnir |




| 20.04.2006 @ 13:49 | bjorninn |
Gleðilegt sumar!
| 17 ófeimnir |




| 16.04.2006 @ 10:34 | bjorninn |
Gleðilega páska!
| 1 ófeiminn |




| 15.04.2006 @ 15:55 | bjorninn |
Þá er komið að því...tadadadada...fullt af myndum á myndasíðunni!
| 1 ófeiminn |




| 25.03.2006 @ 22:04 | bjorninn |
Skyldi Inga Jóna hafa verið sætasta stelpan á ballinu? Maður spyr sig.
| 18 ófeimnir |




| 15.03.2006 @ 16:29 | bjorninn |
Það er náttúrulega bráðnauðsynlegt að skattleggja sjúkrastyrki krabbameinssjúklinga og annarra aumingja til að geta borgað fyrir svona sprell.
| 4 ófeimnir |




| 08.03.2006 @ 18:09 | bjorninn |
Aðal skvísan í bænum, hún Hrafnhildur, á afmæli í dag, húrra, húrra, húrra.
| 3 ófeimnir |




| 02.03.2006 @ 23:32 | bjorninn |
Nokkrar myndir í viðbót komnar.
| 4 ófeimnir |




| 01.03.2006 @ 01:01 | bjorninn |
Drengur fæddur 28.02.2006 klukkan 22:32, 53 cm og 3540 grömm. Öllum heilsast vel. Ein mynd komin á myndasíðuna.
| 10 ófeimnir |




| 20.02.2006 @ 21:08 | bjorninn |
Til hamingju Ísland! Snilldin ein. Horfðum á Eurovisjón á bíótjaldinu hjá Kollu og Palla með heimilisfólkinu og Heiðu og Pésa. Það var ekki slæmt. Fórum svo í heimsókn til Örnu og Bogga á sunnudaginn að skoða nýja húsráðandann þar. Að öðru leyti ekki búið að gera mikið. Jú Gísli Tjörvi spilaði á tónleikum í Ráðhúsinu með bekkjarsystkinum sínum. Spilaði og gítar og trommur og söng líka. Var auðvitað langflottastur.

Svo var ég að setja inn jóla og áramótamyndirnar. Spáið í það.
| 6 ófeimnir |




| 13.02.2006 @ 09:37 | bjorninn |
Fleiri myndir komnar inn, jólin nálgast óðfluga!
| 6 ófeimnir |




| 10.02.2006 @ 16:53 | bjorninn |
Fullt af mögnuðum myndum hér.
| 1 ófeiminn |




| 08.02.2006 @ 21:57 | bjorninn |
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar bætti ég inn nýjum myndum. Þetta eru myndir úr sumarfríinu 2005. Jólamyndirnar koma svo í sumar!
| 2 ófeimnir |




| 07.02.2006 @ 16:38 | bjorninn |
Opnaði aftur aðganginn inn á myndirnar með notandanafnið gestur. Þetta gæti samt orðið eitthvað skrýtið, sérstaklega ef svo ólíklega vill til að fleiri en einn séu að skoða í einu. Þetta hefur maður upp úr því að nota eitthvað rusl sem aðrir búa til!
| 6 ófeimnir |




| 07.02.2006 @ 14:16 | bjorninn |
Þetta er ekkert að virka með myndirnar. Kannski verður einhvern tímann hægt að skoða myndirnar aftur, kannski ekki.
| Verið ófeimin! |




| 07.02.2006 @ 14:13 | bjorninn |
Nú er hægt að skoða myndirnar aftur, en það þarf að skrá sig inn. Notandanafnið er gestur. Ef ykkur vantar lykilorð, hringið þá í pabba og spyrjið hann hvaða sígarettur hann reyki.
| Verið ófeimin! |




| 06.02.2006 @ 11:10 | bjorninn |
Jæjajæja, hvaða læti eru þetta? Er búinn að ákveða að héðan í frá verður síðan ekki uppfærð nema ársfjórðungslega. Allt gott hér. Ýmislegt gerst síðan síðast.

Erum m.a. búin að fara tvisvar í leikhúsið. Fyrst fór hele familien að sjá Klaufa og Kóngsdætur. Það var rosa stuð, Sunna Kristín að fara í fyrsta skipti í leikhúsið, og fannst þetta mjög gaman. Síðan fórum við Hrafnhildur að sjá Túskildingsóperuna sem var líka þrusufín sýning.

Gísli Tjörvi fékk vitnisburðinn sinn fyrir haustönnina, og skemmst frá því að segja að hann er snillingur, eins og allir náttúrulega vita. Fékk rosa flottar einkunnir, og þar að auki er hann fyrirmyndarnemandi í alla staði. En þetta kemur auðvitað engum á óvart.

Við erum búin að vera að taka kompuna á ganginum í gegn hjá okkur, og erum búin að breyta henni í fataherbergi. Getum þá sleppt því að hafa fataskápa eða kommóður inn í herbergi hjá krökkunum, enda máttu herbergin varla við því. Þegar við rifum allt út kom í ljós að einn veggurinn var meira og minna ónýtur, og þurfti að brjóta og bramla og steypa. Tókum svo dúkinn af gólfinu, lögðum flísar í staðinn, máluðum og settum upp hillur. Orðið flottasta herbergið í íbúðinni, og eru nú mörg flott fyrir.

Júróvisjón hefur nú oft verið ömurleg, en nú held ég að keppnin sé búin að toppa sjálfa sig og gott betur. Treysti á að Sylvía Nótt verði send út, þá er að minnsta kosti hægt að hlæja að þessu. Kannski maður kjósi bara í fyrsta skipti í þessu rugli á laugardaginn. Áfram Sylvía. Maður verður að gera allt í sínu valdi til að grenjuskjóðan Kristján Hreinsson komist ekki út með eitthvað af þessum vælulögum. Það góða við þetta er að við vinnum örugglega ekki, og þá er öruggt að Garðar og Brynhildur verða þá ekki kynnar í aðalkepnninni á næsta ári. Það yrði nú meiri þjóðarskömmin. Veit annars ekki hvað ég er að þusa um Júróvisjón. Svona er að búa með Júróvisjónfríki og eiga nokkur sem mágkonur, maður skemmist á þessu helvíti.

Já, og svo voru Arna og Boggi að eignast dreng á föstudaginn! Til hamingju með það! Átt þú ekki að vera að skipta á bleyjum Borgþór í staðinn fyrir að sörfa netið og rífa kjaft?

Best að fara að drullast til að vinna eitthvað. Hér er reyndar fín grein um vitleysingana sem reyna að stýra tónlistarbransanum, sem hollt er fyrir alla að lesa. Heyrumst í maí.
| 5 ófeimnir |




| 13.01.2006 @ 16:55 | bjorninn |
Hann kann þetta ennþá hann Bubbi.
| 5 ófeimnir |




| 10.01.2006 @ 18:33 | bjorninn |
Jæ vil ha en faðöl! Ahhh...það er nú betri bjór í Danmörku en í Svíþjóð!
| 2 ófeimnir |




| 10.01.2006 @ 15:02 | bjorninn |
Heja Sverige!

Sit á Arlanda að bíða eftir flugvélinni minni til Kaupmannahafnar. Þarf svo að bíða þar eftir flugvélinni minni til Íslands. Ætlaði að nota tímann og skrifa eitthvað bögg í kommentin á kúrbítnum en þá liggur hann auðvitað niðri eins og venjulega. Bið að heilsa, heyrumst kannski á Kastrup.
| 2 ófeimnir |




| 04.01.2006 @ 15:26 | bjorninn |
Jæja, ætli sé ekki kominn tími til að segja Gleðileg jól, já og Gleðilegt ár líka, það er víst komið 2006. Jólin og áramótin voru fín hjá okkur. Vorum bara í rólegheitunum á Meistaravöllunum. Ekkert brunað í sveitina þetta árið, enda frekar slöpp jól þetta árið hvað frídaga varðar. En það kom ekki í veg fyrir að mikið væri etið, bæði af kjöti, konfekti og fleira góðgæti. Við vorum fjögur í rólegheitum á aðfangadagskvöld. Heiða og Pétur komu svo í hangikjet til okkar á jóladag. Spiluðum við þau Trivial, hefðum auðvitað getað burstað þau ef við hefðum viljað, en leyfðum þeim að vinna. Á gamlárskvöld komu síðan Kolla og Palli og strákarnir þeirra til okkar, borðuðu með okkur kalkún og hjálpuðu okkur að sprengja. Nú er hversdagurinn tekinn við og skólarnir byrjaðir hjá Sunnu Kristínu og Gísla Tjörva.
| 7 ófeimnir |




| 16.12.2005 @ 22:08 | bjorninn |
Dæmigerður GáttaþefurSnillingurinn hann Gísli Tjörvi var að fá viðurkenningu fyrir þessa stórglæsilegu mynd af honum Gáttaþefi sem hann sendi inn í jólakortasafn menntagáttar. Krakkar í öllum grunnskólunum voru að senda inn kort þarna, og svo voru 20 valin úr. Ekki að spyrja að hæfileikunum í þessari fjölskyldu.

Allt fínt að frétta að öðru leiti. Eða er það leyti? Allir hressir og kátir bara. Allt að verða klárt fyrir jólin. Búið að versla næstum allar jólagjafir, jólakortin langt komin, búið að baka piparkökur, súkkulaðibitakökur, biscotti og búa til nammi.

Sunna Kristín fór á jólaball í leikskólanum í dag. Borðaði þar smákökur og gotterí og dansaði við Stúf og Þvörusleiki kringum jólatréð með öllum hinum krökkunum. Henni fannst rosa gaman, og var ekkert smeik við sveinana, enda hugrökk eins og pabbi sinn.
| 10 ófeimnir |




| 12.12.2005 @ 15:48 | bjorninn |

| 9 ófeimnir |




| 23.11.2005 @ 20:55 | bjorninn |
Hann Halldór Tjörvi á víst afmæli í dag. Til hamingju með daginn gamli!
| 13 ófeimnir |




| 21.11.2005 @ 11:57 | bjorninn |
The White StripesHafrún reddaði auðvitað málunum. Hún og Björgvin komu til okkar í gærkvöldi. Borðuðu með okkur lambalæri og meððí, og svo ís og rjóma í eftirrétt. Ekki leiðinlegt það. Þau pössuðu svo fyrir okkur þessar elskur, svo við komumst semsagt á tónleikana, og ég held að enginn hafi orðið fyrir vonbrigðum.

Byrjunin var mögnuð. Þau byrjuðu á Blue Orchid, og svo hvert lagið á fætur öðru með ógurlegu trukki. Það var reyndar smá vesen á sándinu í einum gítarnum hans Jack's um miðbikið, sem skyggði aðeins á. Hljóðmennirnir voru full lengi að laga það. En þegar því var reddað voru þau enn betri en áður, og þegar þau tóku 7 Nations Army undir lokin, varð allt vitlaust. Mögnuð snilld. Held að Meg sé mesti töffari sem ég hef séð.

Misstum reyndar alveg af Jakobínarína, eða Jakobínurínu, eða hvernig maður á að segja þetta, sem hituðu upp. Skilst samt að við höfum ekkert misst af neitt allt of miklu, en hefði samt verið gaman að sjá þá aðeins. Ekki leiðinlegt að vera nýskriðinn yfir fermingu og fá að hita upp fyrir band eins og White Stripes. Gott mál að gefa krökkunum svona sénsa. Mætti vera meira af því, og minna af Mínus og Vynil og svoleiðis viðbjóði.

Best að hækka í græjunum og reyna að halda áfram að vinna.
| 3 ófeimnir |




| 20.11.2005 @ 13:44 | bjorninn |
Komumst heilir á húfi frá París. Sáum nú engin merki um neinar óeirðir þar sem við vorum. Enda vorum við mest lokaðir inni á sýningunni, og sáum því ekki mikið af París. Náðum nú aðeins að kíkja út þessi tvö kvöld sem við vorum þarna, en það var ekki mikið. En sýningin var stór og flott.

Sunna Kristín varð svo þriggja ára á miðvikudaginn, og finnst hún orðin ótrúlega stór. Þarf ekki hjálp við neitt, og finnst fúlt að mega ekki fara í tölvuna fyrst hún er orðin svona stór.

Svo eru það White Stripes í kvöld, vonandi. Erum ekki enn búin að ná í Hafrúnu sem við ætluðum að reyna að plata til að passa. Hafrún hvar ertu?!?! Það er lambalæri í kvöldmatinn að launum!
| Verið ófeimin! |




| 14.11.2005 @ 13:24 | bjorninn |
Jæja. Kannski maður dusti aðeins rykið af þessu hérna. Allt gott að frétta héðan. Sunna Kristín hélt afmælisveisluna sína núna á laugardaginn. Bauð fullt af fólki í súkkulaðiköku með nammi og aðrar kræsingar. Amalía amma, Tjörvi afi og Elli komu til Reykjavíkur um helgina, og amma og afi komu í veisluna. Elli gat það ekki, því hann var að kubba. En hann kom svo í smá heimsókn á sunnudaginn.

Ég er svo að fara til Parísar í fyrramálið. Ætla að reyna að koma einhverju skikki á þetta lið þarna. Kíki á Cartes í leiðinni. Þetta er svona sýning þar sem allt það nýjasta sem tengist greiðslukortaviðskiptum er til sýnis. Förum tveir héðan úr vinnunni hjá mér. Verðum þar á bás með Verifone að sýna okkur. Ætlum líka að skoða alla hina. Kem heim aftur á fimmtudagskvöldið.
| 2 ófeimnir |




| 04.11.2005 @ 14:55 | bjorninn |
Er byrjaður að selja dóp í Borgarholtsskóla. Fínasti peningur fyrir litla vinnu. Auðvitað á maður ekki að grínast með svona, en gat bara ekki annað.
| 4 ófeimnir |




| 04.11.2005 @ 11:05 | bjorninn |
Ég á miða á White Stripes, liggaliggalá!
| 3 ófeimnir |




| 02.11.2005 @ 13:19 | bjorninn |
Hver kannast ekki við frumtöluskítandi björninn?
| 4 ófeimnir |




| 26.10.2005 @ 12:12 | bjorninn |
Ég er kominn með nýja síðu!
www.bjorngislason.is
| 10 ófeimnir |




| 23.10.2005 @ 14:27 | bjorninn |
Ég þangað!
| 9 ófeimnir |




| 14.10.2005 @ 16:24 | bjorninn |
Sónar
Junior.

Sónar
Stronger than all!.

| 9 ófeimnir |




| 10.10.2005 @ 20:37 | bjorninn |
Óheppin!
| 4 ófeimnir |




| 10.10.2005 @ 11:27 | bjorninn |
Kominn í vinnuna. Hristi þessa pest af mér með vinstri, enda fátt leiðinlegra að hanga heima með viðbjóð. Sunna Kristín fór líka á leikskólann í morgun, hlakkaði mikið til, enda búin að hanga heima alla síðustu viku. Hitt heimilisfólkið er hresst, a.m.k. enn þá. 7, 9, 13.

Komst að því að við dr. gunni eigum eitt sameiginlegt, en það er óbeit á gini eftir þynnku frá helvíti. Ginið minnir mig samt ekki á Þingvelli, heldur Hrossabithagann. Hef gert eina tilraun til að drekka gin núna í seinni tíð eftir að maður komst til vits og ára, ja, a.m.k. ára. Það fór ekki heldur vel, þannig að reikna með að láta þetta eiga sig í framtíðinni.

Gísli Tjörvi og Sunna Kristín eru búin að fá nokkrar óvæntar heimsóknir frá öfum núna síðustu dagana. Pabbi kom tvisvar í kvöldmat til okkar núna í síðustu viku og í vikunni þar á undan. Var ekki í slipp sjálfur að þessu sinni heldur með yngsta barnið. Jæja, það er víst næstyngst, en var ekki ættleitt fyrr en 1986. Í gær kom svo Tjörvi til okkar í kvöldmat og gisti. Er að fara í skólaferðalag, flýgur út til Ungverjalands núna eftir hádegið.
| Verið ófeimin! |




| 07.10.2005 @ 23:17 | bjorninn |
Helgarfrí að byrja. Held ég sé að fá pestina. Kominn með suddafína hálsbólgu, og held ég sé að fá hita. Djöfuls bömmer. Mér finnst nú alveg lágmark að láta mann vera veikan á virkum dögum svo maður fái frí út á þetta. Sunna Kristín er búin að vera heima alla vikuna, þannig að ætli ég taki ekki við núna og svo koll af kolli. Hrafnhildur er farin á næturvakt. Verður í nótt og næstu nótt. Held ég komi mér í koju, reyna að sofa viðbjóðinn úr sér.
| Verið ófeimin! |




| 30.09.2005 @ 14:49 | bjorninn |
Djöfull er æpoddinn minn flottur, nanananana. Og hann er ekki ónýtur ennþá, þannig að þetta lofar góðu.

Hér eru greinaskil.

Fékk mér svona aðgang hjá Audioscrobbler, þannig að nú er hægt að sjá hérna á hvað ég er að hlusta í tölvunni. Stórsniðugt alveg. Greinaskil.
| 4 ófeimnir |




| 28.09.2005 @ 13:16 | bjorninn |
Var að fá nýja dótið í hendurnar, og þá birtist þetta á mbl. Örugglega eitthvað sem Styrmir og Jónína hafa verið að sjóða saman.
| 6 ófeimnir |




| 27.09.2005 @ 16:25 | bjorninn |
Nýja dótið mitt lendir í Keflavík klukkan 0620 í fyrramálið.
| 3 ófeimnir |




| 27.09.2005 @ 10:33 | bjorninn |
Ef að heitasta parið í bænum, Jónína og Styrmir kynnu á PGP, væru fréttirnar kannski áhugaverðari í dag.
| Verið ófeimin! |




| 25.09.2005 @ 22:55 | bjorninn |
Er búinn að vera að þeyta mjólk í allt kvöld. Fórum í IKEA í dag, og ég fjárfesti í einum svona.
| 4 ófeimnir |




| 23.09.2005 @ 13:43 | bjorninn |
Það er snjókoma úti, ojbara. Að vísu bara eitt og eitt korn sem bráðnar jafn harðan, en viðbjóður engu að síður. Er heima í dag, og í gær, með Sunnu Kristínu því það eru námskeiðsdagar og starfsdagar og hvað þetta heitir allt saman á þessum leikskólum. Aldrei í vinnunni þetta lið. Við Sunna erum búin að nýta tímann vel og vera rosa dugleg. Búin að laga skápinn á ganginum, en hillurnar voru allar dottnar úr honum. Fórum síðan í gær og náðum í gamla rúmið hans Gísla Tjörva niður í geymslu, og það var sko ekkert smá verk að finna það þar. Og þá var bara hálfur sigur unninn því það átti eftir að draga það upp, undan hálfri búslóð af drasli, billy bókahillum, öðruvísi hillum, sófaborðum, sjónvarpsskáp, tveimur vögnum og ýmsu öðru. Sunna Kristín ætlar að fá rúmið og er rosa spennt að fá að sofa í því. Hún verður samt að bíða aðeins, því rúmið var allt út í límmiðum eftir Gísla Tjörva og fleiri fyrirrennara. Nú erum við Sunna búin að skafa alla límmiðana af, búin að pússa rúmið úti á svölum í skítakulda, og búin að lakka eina umferð yfir það. Þurfum sennilega að lakka aðra umferð, en hún fær örugglega að sofa í nýja (eins og nýja) rúminu um helgina. Hún er að fá sér blund eftir hádegismatinn núna, en fer að vakna bráðum. Þá ætlum við að kíkja eitthvað út, skreppa í búðina og kaupa í matinn, fara með buxurnar mínar í hreinsun því mér tókst að setjast ofan í tyggjóklessu, mjög næs. Sækjum síðan HH í vinnuna, og þá eru allir komnir í helgarfrí. Góða helgi!
| 9 ófeimnir |




| 22.09.2005 @ 20:37 | bjorninn |
Arna
Arna Ásmundardóttir á stórafmæli í dag. Hún er búin að fá sér ný gleraugu fyrir þónokkru síðan.

| 3 ófeimnir |




| 08.09.2005 @ 11:48 | bjorninn |
Djöfull er þetta kúl græja.
| 12 ófeimnir |




| 07.09.2005 @ 13:52 | bjorninn |
Já, gleymdi að segja frá því að Íris systir á víst afmæli í dag, úje. Til hamingju með daginn gamla mín.
| 1 ófeiminn |




| 07.09.2005 @ 13:50 | bjorninn |
Björn er ekki dottin í kannabisneyslu eins og sumir, ónei. Við Sunna Kristín erum saman heima í dag. Hún er búin að vera lasin síðan um helgina, fékk 40 stiga hita og skemmtilegheit á sunnudaginn. Held hún sé samt öll að braggast núna. Hrafnhildur er í vinnunni, og Gísli Tjörvi í skólanum. Var að dunda mér við að setja inn myndirnar frá U2 og Kaupmannahöfn. Engar myndir af litlu hafmeyjunni samt. Ekki margar af tónleikunum heldur. Flestar hreyfðar og úr fókus. Allir hoppandi í kringum mann eins og vitleysingar, enginn friður til að taka myndir. En þá er myndaskammturinn á tölvunni bara búinn, en samt slatti inni á myndavélinni sem þarf að fara að tappa af.

Ég, Hrafnhildur og Gísli Tjörvi fórum á Franz Ferdinand tónleikana í Kaplakrika á föstudaginn var. Magnaðir tónleikar. Franz gríðarhressir, næstum jafn hressir og Barði, en það toppar hann nú enginn í hressleika. Held enginn hafi orðið fyrir vonbrigðum, ja nema kannski Barði ef hann var þarna, sá hann samt ekki.


| Verið ófeimin! |




| 31.08.2005 @ 10:41 | bjorninn |
Ef einhver var að velta fyrir sér hvað Garfunkel væri að gera.
| 2 ófeimnir |




| 29.08.2005 @ 23:04 | bjorninn |
Var að setja inn fleiri myndir frá því í sumar. Nú er bara eftir einn skammtur í tölvunni, myndirnar frá U2 og Danmörku, og svo það sem er í vélinni. Djöfuls harka alltaf hreint.
| 3 ófeimnir |




| 27.08.2005 @ 15:07 | bjorninn |
Fyrst að sumir eru svona duglegir að setja inn myndir á síðuna sína, ákvað ég að taka mig saman í andlitinu og bæta inn myndum frá því snemma í sumar. Fleiri myndir koma kannski fljótlega, smá bunki til sem á eftir að fara í gegnum.
| 2 ófeimnir |




| 26.08.2005 @ 09:50 | bjorninn |
Svosem ekkert að gerast hérna megin. Og þó. Sunna Kristín er að byrja á nýrri deild á leikskólanum, er að hætta á minnstu deildinni, Fjöruvík, enda allt að fyllast af grenjandi smákrökkum þar, og færa sig upp á miðdeildina, Skeljavík. Orðin ótrúlega stór. Gísli Tjörvi byrjaður í skólanum á fullu. Ég er ekki byrjaður í skólanum, og ætla ekkert að byrja, sem er gott svona til tilbreytingar. Pöntuðum okkur sumarbústað í gær, eina helgi í október, ætlum að hafa það gott, grilla og liggja í pottinum. Sami bústaður og við fórum í síðasta haust, í Akurgerði. Höfum góða reynslu af pottinum þar. Annars er maður aðallega búinn að vera að horfa á enska boltann. Ákvað að splæsa í það, svona fyrst maður þarf ekki að hanga í skólanum allar helgar í vetur. Svo eru tónleikar um næstu helgi. Franz Ferdinand, og við Hrafnhildur og Gísli Tjörvi ætlum ekki að láta okkur vanta.

Yrsa Líf frænka átti svo afmæli um daginn. Til hamingju með það Yrsa Líf. Pakkinn þinn er alveg að fara í póst :o| Það er alltaf a.m.k. viku lagg á afmælispakkasendingum frá okkur. Þið vitið öll hvað lagg er, er það ekki?
| 2 ófeimnir |




| 19.08.2005 @ 21:05 | bjorninn |
Enski kominn í hús!
| Verið ófeimin! |




| 15.08.2005 @ 10:13 | bjorninn |
Kominn í vinnuna, Hrafnhildur í sína vinnu, Sunna í leikskólann, Gísli Tjörvi byrjar í sínum skóla á næsta mánudag.
| 5 ófeimnir |




| 02.08.2005 @ 22:22 | bjorninn |
Smá nasaþefur. 30 meg, eru ekki allir með adsl?
| 3 ófeimnir |




| 02.08.2005 @ 21:54 | bjorninn |
Komum heim í gær eftir frábæra ferð. Enduðum á mögnuðum U2 tónleikum á sunnudagskvöld. Þetta byrjaði reyndar ekkert voða vel. Ætluðum að reyna að komast á gólfið fremst við sviðið, en komumst að því við illan leik að miðarnir okkar leyfðu það ekki. En sætin okkar voru fyrsta flokks, fremst í efri stúku, fyrir miðjum velli. Urðum svo hæstánægð með sætin okkar þegar byrjaði að rigna, og við erum ekki að tala um neinn úða. Allt liðið á gólfinu orðið rennandi blautt á 10 sekúndum, en við höfðum það bara nokkuð gott undir skyggninu okkar. Fyrra upphitunarbandið, The Soundtrack of Our Lives, var frekar slappt. Seinna upphitunarbandið Razorlight var miklu betra, og bara helvíti gott. U2 mættu síðan á sviðið upp úr klukkan 22, og spiluðu í rúma 2 tíma. Þeir voru alveg magnaðir, og stappfullur Parken var vel með á nótunum, þó svo helmingurinn væri búinn að standa rennblautur í rigningunni í nokkra klukkutíma. Komumst svo að því eftir tónleikana að almenningssamgöngur í Kaupmannahöfn eru ekki upp á marga fiska klukkan 1 á aðfaranótt mánudags. Vorum góða stund að koma okkur heim með blöndu af labbi og næturstrætóum sem voru ekkert á hverju strái. Hvergi leigubíl að fá, og Metró lokað. Hittum 2 bekkjarsystur úr Hafnarskóla og Heppuskóla, Hillu og Jöggu, í einu strætóskýlinu, þar sem þær voru í sömu hremmingum og við, og ca. 50.000 aðrir. Komumst á endanum upp á hótel og sofnuðum sæl og glöð. Sváfum vel og lengi, og pöntuðum morgunmatinn upp á herbergi, og drifum okkur á Kastrup.

Erum svo bara búin að hafa það rólegt í dag. Kíktum í heimsókn til Eiðs Tjörva sem á 11 ára afmæli í dag. Fengum þar tónleika, því kappinn fékk bassa í afmælisgjöf, og Gísli Tjörvi varð auðvitað að fara með gítarinn sinn með, svo þeir gætu haldið fyrstu hljómsveitaræfinguna. Erum svo að velta fyrir okkur hvað við eigum að gera við restina af fríinu. Kíkjum kannski í smá útilegu, eða austur á Hornafjörð. Kemur allt í ljós.
| 1 ófeiminn |




| 31.07.2005 @ 07:20 | bjorninn |
U2 í aften.
| Verið ófeimin! |




| 30.07.2005 @ 16:39 | bjorninn |
Morgunmatur upp á hótelherbergi, nýbakað brauð, rundstykker, brie, alls konar sultetøj, vinerbrød, jarðarber, vínber, og svo framvegis og svo framvegis. Röltum okkur út á lestarstöð, fengum yfir okkur 2 laugardalslaugar á leiðinni, nýju regnhlífarnar stóðu sig með prýði. Stytt upp þegar við stigum út úr lestinni í Christianshavn. Hittum Heiðu og Pésa. Skelltum okkur í Amalienborg, sáum vaktaskipti hjá lífvörðum drottningar. Eftir það var Frukost í Nyhavn. Smørrebröd með reyktum ál, og ommeletta. Rölt um bæinn, gerðumst menningarleg og fórum á safn, klám/erótískt safn að vísu, en safn engu að síður. Upp á hótel og hent af sér innkaupapokum dagsins. Skrýtið hvernig þessir innkaupapokar fyllast alltaf hjá kvenpeningnum þó svo þær versli ekki neitt. Erum nú á leiðinni í Tivoli þar sem á að borða eitthvað gott, og slátra nokkrum Tuborg, og prófa nýja rússíbanann. Hver veit hvað gerist svo?
| Verið ófeimin! |




| 30.07.2005 @ 08:38 | bjorninn |
Á ekki alltaf að vera sól og blíða í útlöndum? Ha?
| 2 ófeimnir |




| 29.07.2005 @ 21:50 | bjorninn |
Héðan frá kóngsins Køben er allt gott að frétta. Lentum í gær um 6 leytið, hoppuðum beint upp í leigubíl hjá ungum dreng sem var mikið í mun að sýna okkur hvað Benzinn hans kæmist hratt, og vorum komin upp á hótel fyrir klukkan 7. Hentum töskunum upp á herbergi, fundum Metró stöðina sem er hér rétt fyrir utan og brunuðum niður í bæ. Fundum ekta danskan veitingastað, Skindbuksen, sem hefur verið til síðan sautján hundruð og eitthvað, og pöntuðum Flæskesteg og Bøf a la Skindbuksen. Meðal fíll hefði ekki skammast sín fyrir að geta ekki klárað skammtinn sinn. Röltum um miðbæinn og skoðuðum mannlífið. Nokkrir Tuborg lágu í valnum. Í morgun var Strøget mælt, bæði fram og til baka, nokkrar danskar krónur lágu í valnum. Lentum í hellt úr fötu og þrumuveðri, fundum regnhlífar á útsölu á 50 kroner, héngum nokkuð þurr eftir það. Eftir að stútfullum innkaupapokum úr H&M hafði verið skutlað upp á hótel, lá leiðin í Kristjaníu, röltum fyrst um, sátum svo þar í bláum skugga á nokkuð heimilislegum bar og fengum kennslustund í að vefja. Hættum okkur svo inn á veitingahúsið Spiseloppen í Kristjaníu. Þangað hefði maður líklega aldrei látið draga sig dauðan nema að vera búinn að heyra að þarna leyndist eitt besta veitingahús í Køben. Húsið lítur út eins og versta rónabæli að utan, og ekki heiglum hent að finna innganginn. En eftir mikla leit og að drekka (tuborg) í sig kjark, var haldið inn um innganginn, og þar leyndist dásamlegur staður. Einn fékk sér lamb, og hinn krónhjört, og maður minn var þetta gott. Hittum Heiðu og Pésa eftir matinn, röltum meira um Kristjaníu, síðan Strikið og svo heim á hótel, þar sem ég sit nú og sörfa netið án þess að borga krónu...muhahaha. Þetta er björn görn sem talar frá Kaupmannahöfn.
| 1 ófeiminn |




| 28.07.2005 @ 09:17 | bjorninn |
København, her kommer vi!
| Verið ófeimin! |




| 24.07.2005 @ 08:47 | bjorninn |
Vorum óhemju dugleg í gær. Fengum okkur gönguferð upp að Staðarborg á Vatnsleysuströnd í góða veðrinu. Á leiðinni rákumst við reglulega á þroskuð krækiber sem Sunnu Kristínu fannst gott að stinga í munninn þegar Gísli Tjörvi var svo góður að rétta henni þau þar sem hún sat í mestu makindum á háhesti. Rákumst líka á bláber, en þau voru ennþá fullgræn. Sáum líka fullt af fuglum með ungana sína, lóur, kríur og rjúpu. Í borginni settumst við niður, borðuðum nesti og nutum blíðunnar í botn. Snerum svo heim á leið þar sem nautalundin voru smurð með Dijon, grilluð, og borin fram með kílói af glænýjum Hornafjarðarkartöflum og rjómasveppasósu.

Núna sýnist mér sólin vera að reyna að brjótast fram úr skýjunum. Örugglega góður dagur í vændum.
| 1 ófeiminn |




| 23.07.2005 @ 08:35 | bjorninn |
Engar fréttir eru góðar fréttir, ekki satt? Allir hressir hérna megin. Maður verður að reyna að vera hress í allri þessari blíðu. Er líka að reyna að vera í sumarfríi, gengur eitthvað erfiðlega. Byrjaði að reyna núna á mánudaginn. Ætla að halda áfram að reyna næstu þrjár vikurnar a.m.k. Þetta gengur vonandi betur í næstu viku, þýðir ekkert að gefast upp. Gísli Tjörvi er búinn að vera á golfnámskeiði í vikunni, og er voða ánægður með það. Búinn að fá nokkrar golfkylfur og allt. Sunna Kristín er eldhress að vanda. Ánægð með að vera í sumarfríi, kúra á morgnana, fara svo í sund, hjólaferð eða eitthvað annað skemmtilegt. Farið að styttast allsvakalega í Jútú og Tuborg í köben. Skv. áreiðanlegum heimildum ætlar ríflega helmingur þjóðarinnar á tónleikana. Ágætis mæting það. Ætla að fara og finna einhverja gómsæta uppskrift að útigrilluðum nautalundum. Það var 50% afsláttur af nautalundum í Nóatúni í gær, svo nú verður ekkert annað á borðum í sumarfríinu.
| 1 ófeiminn |




| 12.07.2005 @ 11:09 | bjorninn |
Við, Björk og fleiri selebritís vorum á Antony tónleikum í gærkvöldi. Magnaðir tónleikar, magnaður karl, mögnuð rödd, mögnuð hárkolla, magnaður kjóll.
| 5 ófeimnir |




| 11.07.2005 @ 16:01 | bjorninn |
Jamm Heiða, við erum komin heim AFTUR. Vorum semsagt fyrir austan um helgina. Hrafnhildur er komin í sumarfrí og ég kemst vonandi í frí eftir þessa viku. Ætlum að skella okkur á tónleika á Nösu með Antony and The Johnsons. Það verður magnað. Hafrún ætlar að passa. Nauðsynlegt að eiga svona systur í Reykjavík sem maður getur níðst aðeins á.
| 5 ófeimnir |




| 04.07.2005 @ 15:28 | bjorninn |
Erum komin heim.
| 1 ófeiminn |




| 02.07.2005 @ 00:03 | bjorninn |
Erum í sveitasælunni. Komum hingað um þrjú leytið. Lögðum ekki í grillaðar pulsur í grenjandi vatnsveðri á hverfahátíð, svo við beiluðum á því. Fengum í staðinn grillað lambalæri a'la Tjörvi og rauðvín í Nesjunum. Held það hafi verið ágætis bítti. Hann hékk allavegana þurr í eldhúsinu á Hraunhólnum. Kíktum svo á bryggjuna þegar stytti upp eftir kvöldmatinn. Þar var líf og fjör. Svo er það golf með bæjarstjóranum klukkan 9 í fyrramálið.
| 2 ófeimnir |




| 30.06.2005 @ 12:06 | bjorninn |
Ætlum að bruna austur á morgun og sækja prinsinn. Stoppum náttúrulega yfir helgina og fáum okkur loku eða tvær á Hleininni. Ég er búinn að koma vaktinni yfir á annan og grenja út frí á morgun, þannig að við ætlum að leggja snemma af stað. Sunna Kristín er líka alltaf í mestu stuði á morgnana svo það er best að reyna að ljúka ferðalaginu af sem fyrst. Komum svo aftur í bæinn á sunnudaginn.
| Verið ófeimin! |




| 29.06.2005 @ 19:50 | bjorninn |
Sullaði inn Ítalíumyndunum. Fyrstu myndirnar teknar á nýju myndavélina.
| 2 ófeimnir |




| 28.06.2005 @ 11:30 | bjorninn |
Allt gott hér. Gísli Tjörvi skellti sér austur í sveitasæluna einhvern tímann um daginn. Er búinn að vefja ömmum og öfum um fingur sér og hafa það gott skilst mér. Ætli við skjótumst ekki og sækjum hann einhvern tímann næstu daga. Þó að hann vildi helst vera þarna í allt sumar, þá eru foreldrarnir ekki alveg jafn hrifnir af því. Einhver óþverra kvefpest búin að vera að stríða okkur síðustu daga. Skil ekki svoleiðis vitleysu um hásumar. Svo er bara farið að styttast í sumarfrí hjá okkur. Stefnan er að þeysa eitthvað um landið á nýja bílnum. Ekki alveg búið að ákveða hvert, en ætli það verði ekki reynt að halda sig þar sem verður minnst rigning. Og svo er það auðvitað stefnumót við Tuborg og U2 í Köben um verslunarmannahelgina. En djöfull var annars hressandi að sjá Eirík Jónsson drulla upp á bak í Kastljósinu og Íslandi í Dag í gær. Gott á hann, búinn að vera drullandi yfir aðra alltof lengi.
| 2 ófeimnir |




| 20.06.2005 @ 22:54 | bjorninn |
þarf maður að fara að safna fyrir hlutabréfum.
| 2 ófeimnir |




| 15.06.2005 @ 15:15 | bjorninn |
Jæjajæja. Ýmislegt hefur gerst síðan síðast. Ætla nú ekki að telja það upp hér, en það helsta er nú kannski útskriftin sem var á laugardaginn síðasta. Björninn semsagt orðinn baddsjelor of sæjens. Útskriftin var löng og hefðbundin, en Guffa var samt óvenju hófsöm í ræðuhöldunum, táraðist bara, fór ekkert að gráta. Héldum svo smá teiti eftir herlegheitin. Það var ósköp rólegt og gott, og hvorki melónur né aðrir ávextir fengu að kenna á því. Takk allir fyrir mig.
| 3 ófeimnir |




| 07.06.2005 @ 23:11 | bjorninn |
Dugnaðurinn að drepa mann. Fleiri myndir komnar inn.
| 3 ófeimnir |




| 07.06.2005 @ 11:22 | bjorninn |
Gísli Tjörvi snillingur fékk vitnisburðinn sinn í dag, og hann var auðvitað stórglæsilegur eins og venjulega. Svo er hann líka kominn með nýja síðu.
| Verið ófeimin! |




| 06.06.2005 @ 21:43 | bjorninn |
Vúhú! Var að setja inn páskamyndirnar. Með sama áframhaldi fara Ítalíumyndirnar inn um jólin.
| 1 ófeiminn |




| 06.06.2005 @ 14:12 | bjorninn |
Þá erum við Hrafnhildur komin heim (reyndar löngu komin, maður er bara búinn að vera svo latur eftir fríið að maður hefur ekki nennt að kveikja á tölvunni) eftir vikufrí á Ítalíu. Þetta var helvíti góð ferð alveg, og slappað vel af. Veðrið var eins og það gerist best, sólskin og 25-30 stiga hiti. Lágum aðeins á ströndinni, fórum til Feneyja, keyrðum aðeins um, heimsóttum vínbónda, borðuðum góðan ítalskan mat, drukkum nokkra lítra af rauðvíni og hvítvíni, og nokkra af bjór. Svo keyptum við líka kex handa Sunnu Kristínu, en það var það sem hana langaði mest í þegar við spurðum hvað við ættum að kaupa handa henni í útlöndum. Set kannski fljótlega inn myndir úr ferðinni, og nokkrar eldri myndir sem ég á líka eftir að setja inn.
| 1 ófeiminn |




| 24.05.2005 @ 20:03 | bjorninn |
Hversu miklir hálfvitar geta menn verið? Hélt þetta væri maðurinn sem vill leyfa síma- og nethleranir án dómsúrskurðar. Hélt þetta væri líka maðurinn sem vill helst vopnavæða lögregluna. Sami maðurinn og vill stofna íslenskan her. Sé ekki alveg hvað þetta á sameiginlegt með frelsi.
| 3 ófeimnir |




| 22.05.2005 @ 21:40 | bjorninn |
Suddafín helgi að klárast. Greinilegt að maður þarf ekkert að láta sér leiðast þó svo maður hafi engar skólabækur að lesa. Fórum í grillveislu með vinnufélögum mínum á föstudagskvöldið. Það var mikið etið, mátulega drukkið og mest hlegið, enda er ég svo heppinn að vinna með stórskemmtilegu fólki. Gísli Tjörvi og Sunna Kristín fengu gistingu hjá Kollu og Palla á meðan. Þau fóru svo á "vor"-hátíð í skólanum hjá Eiði og Birki með þeim í gærmorgun, í hita við frostmark og snjófjúki. Frændurnir fóru svo eftir hátíðina í bíó að sjá Loga Geimgengil, Leu Prinsessu (eða hvað þetta lið allt heitir) og félaga í Star Wars. Kolla og co og Heiða og Pési komu svo og borðuðu hjá okkur í gær og horfðu með okkur á júróvisjón. Studdum Nojarana með ráð og dáð, en það var víst ekki nóg, því gríska pían tók þetta. Það var nú samt gott að fölsku Lettarnir unnu þetta ekki eins og stefndi í á tímabili. Í dag fórum við svo í tvöfalda afmælisveislu til Karenar Lindar og Róberts Más, fengum alls konar tertur og fínerí. Svo er stutt vinnuvika framundan, mánudagur, þriðjudagur og miðvikudagur. Svo er víst komið vikufrí?
| 1 ófeiminn |




| 20.05.2005 @ 16:33 | bjorninn |
Þá er endanlega orðið ljóst að það er útskrift í júní. Náðum semsagt lokaverkefninu, og þá er þetta bara allt búið.

Grillveisla í vinnunni í kvöld, júróvisjón annað kvöld, og ég þarf ekkert að læra um helgina.
| 4 ófeimnir |




| 19.05.2005 @ 22:56 | bjorninn |
Hvað ætli margir sitji grenjandi heima yfir að þurfa að borga fyrir 52 tommu plasma sjónvörpin sem þeir keyptu í BT?
| 4 ófeimnir |




| 09.05.2005 @ 22:35 | bjorninn |
Hæ. Þetta er búinn að vera stórgóður dagur hérna megin. Það var lokaskoðun hjá okkur í lokaverkefninu, og hún gekk bara rosa vel. Þannig að nú eru það bara skil á föstudaginn sem við þurfum sáralítið að gera fyrir, og svo kynning á þriðjudaginn næsta. Fékk líka einkunn úr Stærðfræðilegum reikniritum í dag, og hún var góð. Þannig að það lítur út fyrir björn görn verði orðinn fokkins tölvunarfræðingur eftir mánuð eða svo. Það besta við daginn er samt það að hann Gísli Tjörvi snillingur á 11 ára afmæli í dag!
| 4 ófeimnir |




| 02.05.2005 @ 13:44 | bjorninn |
Hvaða síða haldið þið að sé eina síðan sem komi upp ef maður slær inn "árshátíð drifkúlur" á Google?
| 4 ófeimnir |




| 29.04.2005 @ 19:47 | bjorninn |
Til hamingju með daginn pabbi minn!
| Verið ófeimin! |




| 26.04.2005 @ 10:52 | bjorninn |
Hrafnhildur og krakkarnir ætla að bruna austur á Hornafjörð í dag. Verða þar fram yfir helgi í góðu yfirlæti ef ég þekki ömmur og afa rétt. Ætli ég noti ekki tímann og reyni að klára þetta fjandans lokaverkefni. Skríð undir skrifborðið mitt og fæ mér kríu ef ég verð þreyttur, eins og Gunnar Smári. Kem mér í svefn með því að snúa vísifingrinum í hringi í hárinu á mér og segja eitthvað gáfulegt.
| Verið ófeimin! |




| 25.04.2005 @ 14:20 | bjorninn |
Hafrún litla systir má fara í ríkið í dag. Til hamingju með daginn litla mín!
| 5 ófeimnir |




| 21.04.2005 @ 11:29 | bjorninn |
Gleðilegt sumar!
| 4 ófeimnir |




| 14.04.2005 @ 22:09 | bjorninn |
Við erum ekki að fara að byggja í Lambaseli. Það hafa örugglega verið einhver brögði í tafli.
| 11 ófeimnir |




| 08.04.2005 @ 22:25 | bjorninn |
Hrafnhildur er að vinna, krakkarnir farnir að sofa. Sit heima og hlusta á nýja diskinn sem ég keypti mér um daginn. Eða öllu heldur nýju diskana, því þetta eru 3 pakkaðir diskar af gargandi snilld. Fyrsti diskurinn er magnaður, annar diskurinn enn magnaðri, og sá þriðji, ja hann er ... já ... enn magnaðri.

Er að hugsa um að reyna að komast í djobb á Ríkisútvarpinu. Segja svo upp eftir á fyrsta degi eftir að hafa farið í viðtal og verið staðinn að því að ljúga blákalt að allri þjóðinni, og heimta svo starfslokasamning upp á nokkrar milljónir. Alltaf jafn hressandi að sjá peningana manns nýtta vel, og í þörf málefni.

Held ég sé búinn með allt í skólanum, nema lokaverkefnið. Skilaði síðasta verkefninu í Stærðfræðilegum Reikniritum um daginn. Burrows Wheeler, Move To Front, Run Length Enconding og Huffman þjöppun á Calgary Corpus safninu, sem allir þekkja. Ef það fer ekki mjög illa er þetta bara búið, fyrir utan lokaverkefnið, en það er nú bara pís of keik.
| 1 ófeiminn |




| 05.04.2005 @ 21:32 | bjorninn |
Við skulum vona að Reyni Traustasyni detti ekki í hug að skrifa bók um morð.
| 3 ófeimnir |




| 03.04.2005 @ 21:08 | bjorninn |
Hvað er betra en að eyða sunnudagskvöldi í að þjappa Calgary Corpus safninu með Burrows Wheeler?
| 3 ófeimnir |




| 28.03.2005 @ 13:36 | bjorninn |
Gleðilega páska!
| 1 ófeiminn |




| 15.03.2005 @ 13:09 | bjorninn |
Djöfull er kalt. Var ekki einhver að tala um gróðurhúsaáhrif? Væri ágætt að fá svolítið af þeim hingað. Fyrir utan kuldann er allt þokkalegt að frétta. Allir að drepast úr einhverju kvefógeði samt, en við hljótum að lifa það af. Náði prófinu mínu sem ég var í um daginn, þannig að það lýtur út fyrir að maður taki ekki fleiri próf í bráð. Ja nema masókistinn komi upp í manni og maður fari bara í meiri skóla næsta vetur. Nei andskotinn, held ekki.

Þarf að fara á Selfoss á morgun. Þarf samt fyrst að kaupa spoiler kit og bassabox í bílinn og fara í strípur.
| 6 ófeimnir |




| 08.03.2005 @ 23:26 | bjorninn |
Myndir úr afmælinu hennar Hrafnhildar.
| 4 ófeimnir |




| 08.03.2005 @ 10:29 | bjorninn |
Hrafnhildur á afmæli í dag!
| 2 ófeimnir |




| 07.03.2005 @ 15:44 | bjorninn |
Það var ekkert leiðinlegt um helgina. Hrafnhildur hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn, og það var magnað stuð. Enda ekki við öðru að búast þegar menn eiga svona skemmtilega vini. Kokkurinn (Þorgrímur Tjörvi) ferðaðist 450 kílómetra til að sjá um matinn fyrir okkur, sem var gargandi snilld. Hrafnhildur fékk fullt af fínum pökkum, og aðalpakkinn var ferð á U2 í Köben 31. júlí. Hún fékk 2 miða, þannig að kannski fæ ég að fljóta með ef ég verð stilltur þangað til. Myndir koma fljótlega.

Óskar og Sylvía eignuðust svo litla dóttur á föstudaginn. Hlökkum mikið til að sjá hana. Til hamingju!
| 3 ófeimnir |




| 03.03.2005 @ 22:33 | bjorninn |
Vinna, skóli, éta, sofa. Fátt annað gert. En um helgina verður nú smá tilbreyting. Séð og Heyrt hjúkkan ætlar að halda upp á þrítugsafmælið sitt á laugardaginn. Bjór, rauðvín og sitthvað fleira í boði ef þér er boðið. Held að mér sé boðið. Er allavega búinn að kaupa pakka.
| 5 ófeimnir |




| 01.03.2005 @ 21:44 | bjorninn |
Þjóð sem tekur börn af lífisegja öðrum til syndanna í mannréttindamálum?
| 10 ófeimnir |




| 26.02.2005 @ 22:40 | bjorninn |
Jámms var í prófi í morgun. Held það hafi bara gengið þokkalega. Síðasta prófið mitt í BS-inum, það er að segja ef maður hefur ekki fallið. Skál fyrir því!!!
| 4 ófeimnir |




| 25.02.2005 @ 21:05 | bjorninn |
Er að læra fyrir próf í Reikniritum, sem er gríðarhressandi. Prófið er í fyrramálið, sem er enn meira hressandi. Vakna fyrir allar aldir á laugardegi til að fara í próf, hvað er hægt að biðja um meira?
| 1 ófeiminn |




| 21.02.2005 @ 11:10 | bjorninn |
Siggi var ekki lengi að svara getrauninni minni. Enda var hún allt of létt. Var sett inn í tilefni að keiluferðinni á föstudaginn. En Jesus sagði þetta einmitt í keilusalnum. Við skulum ekkert tala um úrslitin í keilunni, enda er keila sport fyrir eymingja.

Vaknaði svo eldsnemma á laugardagsmorgun til að vinna í lokaverkefninu. Byrjuðum á prófunarlýsingum fyrir kerfið. Ekki voru afköstin nú neitt ógurleg, enda farið að renna af manni á þessum tímapunkti. Fór svo og hjálpaði Skara og Sylvíu að flytja í nýju íbúðina, sem er assgoti fín. Enduðum svo laugardaginn á því að borða með Írisi og Nökkva, Hafrúnu og Björgvini, og Ara, bróðir Nökkva. Gærdeginum var svo bara eytt í leti, og að skipuleggja partíið eftir 2 vikur. Meira um það seinna.
| 4 ófeimnir |




| 18.02.2005 @ 16:57 | bjorninn |
Nobody fucks with the Jesus
Nobody fucks with the Jesus!

Getraun dagsins: Hver sagði þetta?

| 3 ófeimnir |




| 18.02.2005 @ 14:10 | bjorninn |
Bissí helgi framundan. Keila og öskrandi fyllerí í kvöld. Lokaverkefni í fyrramálið, hjálpa Skara og Sylvíu að flytja eftir hádegið, matur með Írisi og co um kvöldið. Svo kannski bara lokaverkefni og jafnvel smá afslöppun á sunnudaginn. Ja, maður hefur alla vega ekki tíma til að láta sér leiðast.

Sýnist að föstudagshrunið sé að hefjast hjá Reiknistofunni. Best að hækka bara í Hives og taka pusið í hnakkann.
| 1 ófeiminn |




| 16.02.2005 @ 22:35 | bjorninn |
Verkefnisskoðunin á mánudaginn gekk bara vel. Öllum leist voða vel á þetta hjá okkur. Þar að auki lítur út fyrir að þetta Toyota mál sleppi fyrir horn allt saman. Þannig að það er bara allt í gúddí.

Er að fara í keilu og bjór með vinnunni á föstudagskvöldið. Rúlla þessum vesalingum upp, ekki spurning. Verð á vaktinni þannig að ég get ekki drukkið jafn mikið og hinir. Íris og co. eru líka að koma í bæinn um helgina, og aldrei að vita nema að þau geti komið því fyrir í þéttskipaðri dagskrá að hitta okkur aðeins. Stefnt á að reyna að borða með þeim á laugardagskvöldið.

Kaffi og kynlíf er allra meina bót.
| 1 ófeiminn |




| 14.02.2005 @ 09:46 | bjorninn |
Lítið merkilegt gert um helgina. Hrafnhildur var að vinna bæði á laugardag og í gær. Ég reyndi eitthvað að vinna í lokaverkefninu, sem gengur annars bara nokkuð vel. Það verður svokölluð fyrsta verkefnisskoðun eftir hádegið. Þá mæta verkefniskennarinn, prófdómarinn og einhverjir fleiri spekingar, og meta það sem við erum búin að gera hingað til, hvort það sé eitthvað crap, eða hvort sé vert að halda áfram með þetta á sömu braut. Tökum það með vinstri. Svo á bara eftir að koma í ljós hvort Toyota droppa þessu verkefni eftir allt havaríið þar. Skýrist vonandi eitthvað fljótlega.
| 1 ófeiminn |




| 09.02.2005 @ 10:54 | bjorninn |
Nýtt og krefjandi verkefni fyrir Snorra í Betel og Gunnar í Krossinum.
| 2 ófeimnir |




| 08.02.2005 @ 09:31 | bjorninn |
Gaman að sjá að atvinnulífið á Vestfjörðum virðist vera að taka einhvern kipp. Þetta er drottningin sem kemur til með að baða sig í heita pottinum á Laugarhóli. Haffi?
| Verið ófeimin! |




| 08.02.2005 @ 09:19 | bjorninn |
Fokkins djísús kræst. Flestir aðalmennirnir hjá Toyota búnir að segja upp. Þar á meðal þeir sem voru með lokaverkefnið okkar á sinni könnu. En við erum að gera verkefni fyrir Point, sem er líka svona á ská fyrir Toyota. Gat þetta lið ekki valið sér annan tíma til að vera með einhver læti? Jæja, vonum að þetta reddist. Annars er það bara útskrift 2006, það er líka fínt ár.

Að öðru leyti er allt í sóma. Mamma og pabbi, voru í bænum um helgina, og komu til okkar í mat á laugardagskvöldið ásamt Hafrúnu og Björgvini. Ekki slæmt það.
| 1 ófeiminn |




| 01.02.2005 @ 22:24 | bjorninn |
Alltaf hressandi að vinna nallana.
| Verið ófeimin! |




| 31.01.2005 @ 10:09 | bjorninn |
Djöfull langar mig í svona búning.
| 1 ófeiminn |




| 27.01.2005 @ 23:24 | bjorninn |
Sissa amma á afmæli í dag. Til hamingju með daginn amma mín.
| 1 ófeiminn |




| 26.01.2005 @ 21:37 | bjorninn |
Vúhú, setti jólamyndirnar á netið gjössovel. Ekki að spyrja að framtaksseminni. Til hamingju með daginn Birkir Tjörvi.
| 2 ófeimnir |




| 20.01.2005 @ 13:05 | bjorninn |
Allt þokkalegt hér. Engar fréttir eru góðar fréttir sagði einhver. Annars er svo sem nóg af fréttum, hef bara ekki nennt að setja neitt hér inn. Kollasæta útskrifaðist sem fokkins tölvunarfræðingur um síðustu helgi. Borðuðum hjá henni sönju og drukkum rauðvín með af því tilefni. Fórum svo eftir það í leikhúsið að sjá Edith Piaf. Er ekki frá því að Brynhildur sé Piaf sjálf, endurfædd, bara soldið sætari. Fórum svo eftir sýningu á pöbbinn með Kollu og Palla, og Heiðu og Pétri og stútuðum nokkrum öllurum.

Gísli Tjörvi fékk vitnisburðinn sinn á þriðjudaginn, og skemmst frá því að segja að snillingurinn var auðvitað með rosa fínar einkunnir, eins og hann á kyn til. Lokaverkefnið komið á fullt hjá mér, þannig að maður þarf ekkert að láta sér leiðast næstu mánuðina.

Einhver lofaði mér að það yrði matarklúbbur um helgina. Eins gott að það verði staðið við það, annars geng ég berserksgang um Árbæinn.
| 7 ófeimnir |




| 12.01.2005 @ 14:21 | bjorninn |
Hvað næst? Þetta styðjum við auðvitað, enda ekki hægt að hætta við, ekki frekar en Dabbi getur hætt við að fara í uppskurðinn sem hann fór í í fyrra.
| 5 ófeimnir |




| 08.01.2005 @ 23:13 | bjorninn |
Gleðilegt ár! Þeir segja að það sé liðin vika af 2005, veit ekki hvort maður á að trúa þessu.
| Verið ófeimin! |




| 31.12.2004 @ 00:02 | bjorninn |
Áramót á hraðri siglingu til okkar. Og þau koma víst nokkrum þúsundustu úr sekúndu fyrr eftir jarðskjálftann ógurlega. Maður verður að fjárfesta í nýju úri. Þetta var rosalegur andskoti. Og ríkisstjórnin örláta ætlar að spandera 5 milljónum, já hvorki meira né minna en 5 milljónum, í að hjálpa liðinu, aldeilis að örlætið er að drepa þessa menn. Þetta er 1/3 af því sem klósettið hennar Sollu Pé kostaði á sínum tíma. Við hin verðum þá bara að taka til okkar ráða. Allir saman nú, hringja í 907 2020, ykkur munar hvort eð er ekkert um þúsund kall eftir allt jólasukkið, þetta týnist við hliðina á Visa reikningnum sem kemur æðandi inn um lúguna fyrr en síðar.

Var að enda við að útbúa stöffið í kalkúninn fyrir morgundaginn. Bjó líka til dýrindis trönuberjasultu. Átti að vera smá Grand Marnier í sultunni, og ég var svo óheppinn að hella óvart tvöföldum skammti í mælikönnuna. Þá voru góð ráð dýr, svo maður fórnaði sér fyrir málstaðinn og skellti þessu niður, ekki fer maður að hella Grandinu í vaskinn, og ómögulegt að koma þessu aftur niðrum þröngan flöskustútinn. Það verður semsagt Kalkúnn í áramótamatinn, fylltur með svínahakki, beikoni, skinku, brauði, púrtvíni, hvítvíni, sellerí, lauk og einhverju fleiru. Með skepnunni verða bornar fram tvenns konar kartöflur, steiktar sætar kryddaðar með timian, og gömlu góðu sykurbrúnuðu, sýrópsgulrætur, sykurbrúnaðar rófur, waldorf salat, og svo auðvitað Grand trönuberjasulta. Eftir átið, skaupið og allt það verður svo vaðið í Hauganesbardaga ásamt öllu hinu. Vonandi að maður sleppi lifandi frá þessu.
| 3 ófeimnir |




| 24.12.2004 @ 14:54 | bjorninn |

Gleðileg jól!

| Verið ófeimin! |




| 22.12.2004 @ 23:32 | bjorninn |
Stefnir allt í að jólin komi á settum tíma eftir allt saman. Fór áðan í Bónus að kaupa ora rauðkál og grænar baunir, og allt annað sem við á að éta. Þar blasti við fögur sjón, enginn annar en Jóhannes sjálfur karlinn, pungsveittur að raða í hillur sinna öðrum skítadjobbum. Jóhannes er maður að mínu skapi. Sé ekki Einar Ben og Kristinn Björns fyrir mér að dæla bensíni og skipta um þurrkublöð.

Stysti dagur ársins að baki, svo framundan er bara sumar og sól. Það er að segja eftir jólin og páskahretið, en alltaf eitthvað gott við það þegar daginn er farið að lengja aftur. Lifnar aðeins yfir sálartetrinu. Eða kannski er það bara tuborg jólabjórinn sem ég er að drekka sem hefur þessi áhrif.

Náði öllum prófunum mínum þessa önnina, þannig að nú er bara eftir einn kúrs og lokaverkefnið. Ekki nema eitt fokkins próf eftir. Já, og það er búið að samþykkja lokaverkefnistillöguna okkar, enda ekki við öðru að búast, þvílíkir fokkins snillingar sem við erum.
| 5 ófeimnir |




| 16.12.2004 @ 10:44 | bjorninn |
Enn eitt prófið hefur verið massað af mulningsvél bjarnarins. Þá er maður bara kominn í jólafrí, kannski maður splæsi í kippu af julebryg í tilefni dagsins.
| 6 ófeimnir |




| 15.12.2004 @ 09:18 | bjorninn |
Allt að verða vitlaust. Má ekki vera að þessu, þarf að klára EMV fyrir hádegið, skilaverkefnið í vefþjónustum fyrir kvöldið, fara á jólahlaðborð í kvöld, próf í fyrramálið. Eins gott að kaffið er sterkt. Er að undirbúa málssókn á hendur OgVoddafokk fyrir að eyðileggja drauminn minn um 99.999% uppitíma á árinu, ætla að setja vitleysinga í málið, Ragnar Aðalsteinsson er second choice ef vitleysingi er of bissí. Fórum á Hornafjörð um síðustu helgi, eins og sum ykkar hafa eflaust orðið vör við. Þar lagðist allt liðið í gubbupest og volæði, nema undirritaður að sjálfsögðu, það bítur ekkert á björninn nema ef vera skyldi svartidauði, já og svo Sirrý á skjá einum.
| 4 ófeimnir |




| 13.12.2004 @ 20:01 | bjorninn |
Björninn er lifnaður við, ogvodafone er drasl
| 6 ófeimnir |




| 30.11.2004 @ 17:05 | bjorninn |
Við Sunna Kristín erum saman heima í dag. Hún er búin að vera veik, eiginlega samfellt alveg frá því fyrir afmælið sitt. Endaði svo með að hún fékk lungnabólgu ofan í allt saman. Fór í röntgenmyndatöku til Örnu vinkonu sinnar, og var svo dugleg að hún fékk verðlaun og allt. En hún er nú alveg að verða búin að jafna sig núna. Ætlar kannski að kíkja aðeins á leikskólann á morgun. Er orðin hundleið á að hanga hérna heima, og langar mikið að komast aðeins út.

Allt að gerast í skólanum hjá mér. Búinn að ná einu prófi, annað próf á morgun, og svo eitt í viðbót um miðjan des. Er svo byrjaður í 3 vikna námskeiði með haug af verkefnavinnu, og er líklega búinn að fá lokaverkefni fyrir vorönnina. Það á bara eftir að skila inn verkefnistillögunni og fá hana samþykkta sem verður pís of keik.

Ætlum jafnvel að reyna að kíkja aðeins í heimsókn á Hornafjörð núna í desember. Stefnt að því að fara kringum 10. og vera yfir helgina. Lítur ekki út fyrir að við komumst neitt um jólin. Nú þarf bara að koma Grænu Þrumunni II í ástand til að keyra austur. Greyið er með endurskoðunarmiða frá því...ja allavega frá því fyrir löngu.

Já, og áfram allir afturhaldskommatittir! Ef það að vera afturhaldskommatittur er að vilja ekki leggja nafn sitt við þetta, og þetta, þá er ég stoltur af því að vera afturhaldskommatittur. Litli sjálfhverfi hrokagikkur.
| 4 ófeimnir |




| 23.11.2004 @ 20:06 | bjorninn |
Til hamingju með daginn Tjörvi!
| 1 ófeiminn |




| 20.11.2004 @ 15:45 | bjorninn |
Var að setja inn myndir úr afmælinu hennar Sunnu Kristínar.
| 3 ófeimnir |




| 19.11.2004 @ 23:47 | bjorninn |
Af hverju kemur þetta manni ekkert á óvart?
| Verið ófeimin! |




| 19.11.2004 @ 23:18 | bjorninn |
Var að bæta inn tveimur nýjum albúmum á myndasíðuna. Myndir frá því í október og svo frá sumarbústaðaferð í Akurgerði um mánaðarmótin. Myndir úr afmælinu hennar Sunnu Kristínar eru svo alveg að koma líka, og kannski nokkrar í viðbót, jafnvel bara á morgun. Maður var tilneyddur að setja inn myndir, bæði minniskortin orðin full, og innra minnið í vélinni líka. Nauðsynlegt að fara að fjárfesta í stærra korti. Það tekur smá tíma að sortera og setja inn alla þessa súpu, er búinn að vera að því í allt kvöld.

Var í prófi í morgun, í stærðfræði. Held ég hafi nú náð kvikindinu, þrátt fyrir takmarkaðan metnað síðustu daga í lærdómnum. Segjum það allavega þar til annað kemur í ljós. Svo er annað próf 1. des og það síðasta á þessari önn er 16. des. Þá er nú orðið lítið eftir af þessu helvíti. Eitt fag og svo bara lokaverkefnið.

Ef ég þyrfti að borga fyrir internetáskriftina mína, gæti ég sagt henni upp, fír og flamme, med det samme. Prófaði áðan að kveikja á þráðlausa netkortinu í lappanum og fann a.m.k. tvö þráðlaus net hér í blokkinni sem ég get notað til að sörfa. Svo voru 1-2 í viðbót sem voru sýnileg, en þurfa smáræðis lagfæringar við svo ég geti notað þau líka.
| Verið ófeimin! |




| 16.11.2004 @ 13:43 | bjorninn |
Hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Sunna Kristín.
Hún á afmæli í dag.

| 9 ófeimnir |




| 15.11.2004 @ 16:31 | bjorninn |
Það borgar sig ekki að trufla kanana við að horfa á sjónvarpið. Heimsku kanar.
| Verið ófeimin! |




| 05.11.2004 @ 17:01 | bjorninn |
Alltaf gaman að kaupa tölvu, sérstaklega ef maður má eyða tæpum 900.000 kalli í hana.
| 9 ófeimnir |




| 04.11.2004 @ 16:12 | bjorninn |
SÍ-NÝ í kvöld, íha.
| Verið ófeimin! |




| 04.11.2004 @ 09:24 | bjorninn |
AARRGGHH!! Nú þarf maður orðið að skrá sig til að geta lesið mbl.is. Hvaða djöfuls þvæla er nú það? Hvað næst? Þarf maður að skrá sig til að mega kjósa? Jæja, þá hættir maður bara að lesa þetta sorp, og heldur sig bara við baggalútinn, já og bjorninn.net, þar þarf maður ekki að skrá sig inn!
| 3 ófeimnir |




| 03.11.2004 @ 09:43 | bjorninn |
Jæja, til hamingju með kúrekann í Hvíta húsinu. Nú getum við farið að láta okkur hlakka til innrásarinnar í Íran, sem við styðjum að sjálfsögðu heils hugar.
| 1 ófeiminn |




| 02.11.2004 @ 14:53 | bjorninn |
Það var fínt í bústað um helgina, hann fær 8 birni af 10 mögulegum. Það hefði mátt planta nokkrum hríslum í kringum slotið og þá hefði þetta verið garanteruð tía, smá lúpína hefði meira að segja verið vel þegin þarna í auðninni. Veðrið var fínt, grillið virkaði, bjórnum var ekki stolið af pallinum (var bara keyptur ódýr tuborg í þetta sinn, maður tekur ekki sénsinn á að blæða í einhvern snobbjór fyrir bústaðaferðir orðið), hann var kaldur og potturinn heitur. Leið ekki yfir neinn að þessu sinni.

Ætla aldrei að kaupa bensín aftur af þessum djöflum sem stálu af mér 40.000.000.000. Nú verður bara verslað við Atlantsolíu, þó það kosti ferð suður í Hafnarfjörð. Kannski maður kaupi sér brúsa til að fylla og taka með ef maður skyldi taka rúnt austur á land, eða kaupa sér bara Prius, þá kemst maður víst fram og til baka á einum tanki. Gott að vera giftur dómsmálaráðherra, og vera aðalgaurinn í þessu plotti. Er þetta pakk gjörsamlega gjörsneytt allri sómatilfinningu? Kannski eitt gott sem kemur út úr þessu, Sollu P. verður væntanlega ekki flaggað í einhverjum áhrifastöðum innan stuttbuxnastrákaklúbbsins í bráð. Æi, hverjir eru svosem skárri en hún? Guðlaugur Þór? Sigurður Kári? Pétur Blöndal? Björn Bjarna? Þetta er einvalalið, og ekki skrýtið að þjóðin kjósi þetta yfir sig aftur og aftur. En hvað annað á svo sem að kjósa? Þórólfur Árna hinum megin, blásaklaus, og þykist ekki hafa grunað neitt. Svo díla menn um að ef Þórólfur verður látinn í friði, þá verður ekki ráðist á hina skúrkana sem eru annars staðar í flokki. Margt er líkt með kúk og skít, og það er sko ilmandi skítafýla af þessu pakki öllu saman. Vonandi verður Ástþór í framboði í næstu kosningum. Spurning að hætta að hugsa um að flytja til Miðbaugs Gíneu, og láta verða af því.

Kosningar í öðru bananalýðveldi í kvöld, ætla ekki að fylgjast með því, er viss um að Bu**sh** verður áfram í Hvíta húsinu, sama hvort hann verður kosinn til þess eða ekki. Lífið er tík, og svo deyr maður.
| 3 ófeimnir |




| 28.10.2004 @ 22:41 | bjorninn |
Jæja, best að fara að koma sér heim úr vinnunni. Verð í fríi á morgun og á mánudaginn, erum að fara í bústað einhvers staðar á Suðurlandi. Það verður farið í leiðangur í fyrramálið og keyptir bústaðabitar og bjór, og svo brunað af stað. Ef einhver þarf að ná í okkur um helgina verðum við í pottinum. Ætla að taka með mér hjólahjálminn til öryggis.
| 6 ófeimnir |




| 26.10.2004 @ 23:08 | bjorninn |
Maður verður að fara að kíkja aftur á McDonalds til að hitta þessa Katrínu.
| 2 ófeimnir |




| 23.10.2004 @ 23:00 | bjorninn |
Fórum í fínt partý í gær, til Örnu og Bogga. Húsbóndinn á því heimili orðinn þrítugur. Það kemur víst fyrir bestu menn, og er ekki svo slæmt er mér sagt. Þar var drukkið rauðvín, bjór og sangría (ekki besta sangría sem ég hef smakkað sagði einhver dóninn, en mér fannst hún fín), spjallað og hlegið mikið. Eldhúspartíið var á sínum stað, þar sem fundnar voru lausnir við flestum vandamálum veraldar. En kartöflumjölið vantaði á gólfið, það gerir sjálfsagt aldurinn. Ég tók dobíu af myndum, en er sagt að megnið af þeim séu ekki nethæfar þannig að þið fáið líklega aldrei að sjá þær. Ætlaði mér svo að reyna að læra eitthvað í dag, en það gekk erfiðlega, lítill friður fyrir leiðinlegum leigubílstjórum og ruddalegum gröfumönnum upp á Ártúnshöfða, en margir gröfumenn virðast telja sig eiga eitthvað sökótt við símastrengi. Fór svo í fótbolta með strákunum sem er alltaf gríðarhressandi í þynnkunni, sérstaklega þegar helmingurinn skrópar svo maður verður að hlaupa eins og titt...ur um víðan völl. Hrafnhildur og krakkarnir kíktu í heimsókn til Kollu og co á meðan ég svitnaði í boltanum. Skelltum okkur svo á stælarann í sveittan þynnkuborgara.
| Verið ófeimin! |




| 22.10.2004 @ 14:09 | bjorninn |
Borgþór Egilsson á afmæli í dag, og býður mér í partí í kvöld.
| 4 ófeimnir |




| 20.10.2004 @ 10:43 | bjorninn |
Snillingur.
| 2 ófeimnir |




| 19.10.2004 @ 09:05 | bjorninn |
Maður getur líklega keypt sér sumarhús þarna fyrir slikk.
| 2 ófeimnir |




| 18.10.2004 @ 09:42 | bjorninn |
Loksins próf fyrir nördana:

You are .ogg Even though many people consider you cool and happening, a lot still find that you're a bit too weird to hang out with.
Which File Extension are You?



| 3 ófeimnir |




| 15.10.2004 @ 15:47 | bjorninn |
ahhhhhh! ég á alltaf skilið að fá thule!
| 4 ófeimnir |




| 15.10.2004 @ 15:45 | bjorninn |
Nýjasta vídjóið frá Duran Duran. Gríðarhressandi!
| 1 ófeiminn |




| 14.10.2004 @ 12:02 | bjorninn |
bushMér finnst að allur heimurinn ætti að fá að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Það hefur örugglega töluvert meiri áhrif á Íraka til dæmis heldur en Bandaríkjamenn, hvaða kúkú það er sem fær að teljast valdamesti maður heims. Er ekki einhvern veginn í andskotanum hægt að koma Ástþóri í Hvíta húsið. Þá myndum við losna við hann, hann myndi örugglega kalla Ameríska herinn heim frá Keflavík, og kanarnir hefðu einhvern örvita sem þeir geta hlegið að sem forseta. Það hlýtur að vera eina ástæðan fyrir því að þeir eru að hugsa um að kjósa Bush vitleysinginn yfir sig aftur, þ.e. að þeir geta a.m.k. hlegið að honum, annað en til dæmis Al Gore sem er víst leiðinlegri en Halldór Ásgríms og Geir Haarde til samans. En við fáum víst ekki að kjósa, þannig að maður verður að gera sér þetta að góðu.

Er að fara í próf í Stjórnun á eftir. Massa það, enda læt ég mjög vel að stjórn.
| Verið ófeimin! |




| 13.10.2004 @ 21:18 | bjorninn |
Svíar eru og hafa alltaf verið óþolandi. Ég ætla aldrei að kaupa mér Volvo, það er á hreinu.
| 7 ófeimnir |




| 13.10.2004 @ 10:09 | bjorninn |
Er ekki lágmarkið að nenna að finna sér nýja sjoppu til að brjótast inn í þegar búið er að bösta mann einu sinni?
| Verið ófeimin! |




| 10.10.2004 @ 21:19 | bjorninn |
Var að bæta inn nokkrum myndum á myndasíðuna. Allt ágætt að frétta annars. Við erum bara búin að vera í rólegheitum um helgina. Búið að vera nóg að gera í vinnunni hjá mér síðustu dagana, þannig að það er ágætt að taka því bara rólega. Later
| 1 ófeiminn |




| 07.10.2004 @ 11:28 | bjorninn |
Fyrsta EMV færslan hefur verið gerð á Íslandi! Skál fyrir því!
| 4 ófeimnir |




| 07.10.2004 @ 06:07 | bjorninn |
þetta er allt að svínvirka!
| 1 ófeiminn |




| 07.10.2004 @ 00:01 | bjorninn |
fokkings drasl
| Verið ófeimin! |




| 04.10.2004 @ 16:16 | bjorninn |
Besti vinur mannsins?
| 1 ófeiminn |




| 04.10.2004 @ 15:41 | bjorninn |
Fullviss um að löggan sé búin að bösta þá sem hún ætlar að bösta í þessari rassíu fór ég á netið og sótti mér nýja diskinn með Nick Cave sem kemur út 26. október og er að hlusta á hann núna. Reyndar segja lögfróðir menn að það sé ekki bannað að sækja svona, bara að deila því með öðrum. Þannig að það er eins og ég hef alltaf vitað, maður á ekki að gefa öðrum með sér. Hef ekkert samviskubit yfir því að hafa sótt hann. Kaupi þennan disk líka örugglega þegar hann kemur út. Nema hann sé hrikalega lélegur, þá finnst mér ég líka alveg eiga rétt á að vita það áður en ég kaupi hann. Svo er ég líka að borga þessum andskotum í hvert skipti sem ég kaupi mér tóman geisladisk, þ.a. það hlýtur að vera í lagi að brenna þetta á disk líka, fyrst það er gert ráð fyrir því að allir sem kaupi tóma geisladiska séu glæpamenn, og látnir borga fyrir það. Líst vel á diskinn, eða það sem ég er búinn að heyra. Annars lítið að frétta. Brjálað að gera í vinnunni, stefnt að því að taka fyrstu EMV (snjallkorta, hvaðan kemur þetta orð snjallkorta, það er ekkert snjallt við þetta djöfuls rugl) færsluna í gegn í vikunni, þannig að maður verður líklega lítið heima við næstu sólarhringana. Líka nóg að gera í skólanum, miðannarpróf á morgun sem ég er ekki byrjaður að spá í. Það hlýtur að reddast. Nökkvi er fertugur í dag, og ég er ekki búinn að fá boðskort í afmælisveisluna hmmm....? En samt, til hamingju með daginn!
| 3 ófeimnir |




| 29.09.2004 @ 13:58 | bjorninn |
Til hamingju með nýja hæstaréttardómarann. Er að hugsa um að flytja til Miðbaugs Gíneu.
| 6 ófeimnir |




| 28.09.2004 @ 19:26 | bjorninn |
Viðskiptafræði er viðbjóðsleg. Er í einum kúrsi í Viðskiptafræðideild til að fylla upp í einingakvótann minn, ojbara.
| Verið ófeimin! |




| 27.09.2004 @ 17:00 | bjorninn |
Lokað

Vegna vandmála hjá Reiknistofu bankanna er Heimabankinn lokaður eins og stendur. Unnið er að viðgerð.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur.

Þetta gerir vinnuna mína enn skemmtilegri.
| Verið ófeimin! |




| 26.09.2004 @ 13:54 | bjorninn |
Það liggur við að maður hætti að halda með Man United þegar maður sér að Jón Steinar Gunnlaugsson heldur líka með þeim, og ekki nóg með það heldur er hann fenginn í sjónvarpsþátt til að auglýsa það!
| 2 ófeimnir |




| 26.09.2004 @ 13:35 | bjorninn |
Allt þokkalegt hér. Er að mana mig upp í að fara að reikna einhver helvítis stærðfræðidæmi fyrir skólann, nenni því ekki. Við erum ekkert búin að gera um helgina, bara liggja í leti. Gísli Tjörvi fór á Hornafjörð með Kollu og strákunum hennar á miðvikudaginn. Þau eru á leiðinni heim núna. Hlökkum til að fá hann heim til okkar. Fórum um síðustu helgi á Leirubakka með vinnunni minni, og gistum þar tvær nætur. Fengum rjómablíðu sem var notuð til að slappa vel ef, veiða, fara í gönguferðir, fara á hestbak, liggja í heitu pottunum, éta og fleira og fleira. Það var helvíti fínt fyrir utan eitt vægt yfirlið. Kannski maður fari að ganga með hjálm.
| 3 ófeimnir |




| 24.09.2004 @ 16:46 | bjorninn |
Helvítið hann Baggalútur, ætlaði að koma í byrjun sept, svo 15. sept, og nú 1. okt.
| Verið ófeimin! |




| 24.09.2004 @ 16:13 | bjorninn |
Budweiser er góður bjór en Budweiser er vondur bjór.
| Verið ófeimin! |




| 10.09.2004 @ 12:16 | bjorninn |
McVibbi McDonalds, McDonalds, Kentucky Fried Chicken and a Pizza Hut.

Horfði á Super Size Me í gærkvöldi. Heimildamynd um og eftir Morgan Spurlock, Ameríkana sem hefur áhyggjur af hvað samlandar hans eru að verða feitir, fórnar sér fyrir málstaðinn og étur ekkert annað en McDonalds viðbjóð í einn mánuð. Óhætt að segja að þetta er helvíti mögnuð mynd, og ótrúlegt að fylgjast með Spurlock sem var nokkuð fitt og flottur gæji fyrir tilraunina, verða að úrvinda, útjöskuðu flaki á innan við mánuði. En örugglega margir sem misskilja pointið aðeins, og hugsa með sér eftir að horfa á myndina, "Ég ætla aldrei að borða McDonalds aftur", vippa sér svo inn á Burger King og skella í sig einum Whopper. Karlinn þyrfti eiginlega að gera aðra mynd og éta bara Burger King, og svo aðra og éta bara KFC (verst að hann dræpist örugglega eftir viku af KFC jukkinu), og svo aðra og aðra og aðra. En hann valdi Magga Dóna af því þeir eru einna stærstir í bransanum og þar á bæ höfðu menn lýst því yfir að það væri hægt að éta ekkert annað en matinn þeirra og vera í góðum málum. Eru líka einna grimmastir í að lokka til sín smákrakkana með auglýsingum, dóti og alls konar brellum, enda þekkja fimm ára krakkar í USA frekar Ronald McDonald heldur en Jesús á mynd. Fljótlega eftir að myndin var sýnd ákváðu Ronald og co svo að hætta að bjóða upp á ofurstærð af máltíðunum og fóru að bjóða upp á úrval af salötum (sem eru reyndar feitari en BicMac ef þú notar dressinguna). En það hafði ekkert með myndina að gera, segja McDonalds, tímasetningin bara tóm tilviljun. En magnaður andskoti að það þurfi að gera eitthvað svona til að fólk sjái að þetta er viðbjóður. Þetta er nú reyndar enn meiri vibbi en maður átti von á. Jæja best að fara að gúffa í sig pizzuni sem var að koma inn um dyrnar, á vel við núna.
| 17 ófeimnir |




| 07.09.2004 @ 09:12 | bjorninn |
Hey, Íris stóra sys á ammæli í dag! Til hamingju með daginn!
| 3 ófeimnir |




| 03.09.2004 @ 09:00 | bjorninn |
Ætli sé ekki fínt að búa í Hafnarfirði? Kannski ekki!
| 8 ófeimnir |




| 01.09.2004 @ 13:35 | bjorninn |
Kom hjólandi í vinnuna í morgun eftir nokkurra daga hlé vegna veðurs. Sýndist vera þetta fína veður þegar ég lagði af stað, blankalogn og fínheit á Meistaravöllunum. En þegar kom niður á Ægissíðu tók við hífandi mótvindur og sjórok. Ekki lét Björninn það stoppa sig heldur barðist alla leið upp í Kópavog með ófögnuðinn í fangið. Var að vonum pungsveittur og móður eins og versti hjartasjúklingur þegar þetta hafðist að lokum. Ekki hjálpaði til að maður þarf að enda á djöfuls brekkunni hér upp á Arnarneshæðina. Mætti líka nokkrum djöflum sem voru að hjóla í gagnstæða átt með vindinn í bakið. Það styrkti mann bara að horfa á glottið á þeim þegar maður mætti þeim, því djöfull skal ég hlæja framan í þá þegar ég mæti þeim á heimleiðinni á seinna hundraðinu á bullandi lensi. Djöfull vona ég að það eigi eftir að hvessa meira í dag. Við keyptum Rooney í gær. Spurning hvort hann geti bjargað einhverju, hugsa ekki, dugar ekki að kaupa tóma heiladauða, testósterónstútfulla strækera þegar miðjan er verri en hjá KR.
| 6 ófeimnir |




| 30.08.2004 @ 13:28 | bjorninn |
Ég hef áhyggjur af strákunum. Við hefðum aldrei átt að selja Beckham.
| 4 ófeimnir |




| 28.08.2004 @ 23:14 | bjorninn |
Allt að verða vitlaust í uppfærslum. Var að henda inn tveimur albúmum á myndasíðuna. Annars vegar myndir frá því í júlí og hins vegar ágúst. Fullt af myndum, t.d. Sunna Kristín á leið í leikskólann. Er búinn að sjá það að það getur verið stór ókostur að eiga of stórt minniskort í stafrænu myndavélina. Meðan við áttum bara litla kortið neyddist maður til að tappa reglulega af vélinni, en núna getur maður tekið myndir næstum endalaust án þess að tæma. Gæti líka verið að mann vanti bara nýja flottari myndavél, svo maður verði duglegri að taka myndir og fylla kortið. Maður er alltaf miklu duglegri að taka myndir þegar maður á nýja myndavél ;o)
| 1 ófeiminn |




| 28.08.2004 @ 00:18 | bjorninn |
Jæjajæjajæja, runnið af mér. Mun tíðari uppfærslur hér, heldur en hjá sumum, svo hættið þessu væli. Hér er allt að gerast. Ég á að vera byrjaður í skólanum, en hefur ekki gefist tími til þess, allt of mikið að gera. Allt vitlaust í vinnunni. EMV er að koma!!! Gísli Tjörvi er byrjaður í skólanum sínum og Sunna Kristín er byrjuð í leikskólanum. Hún byrjaði í aðlögun á Grandaborg núna á mánudaginn og er búin að vera ótrúlega dugleg. Þar er líka fullt af skemmtilegum krökkum, og alls konar dót, rennibraut og sandkassi og allt. Hún fór fyrst bara í stuttar heimsóknir, sem lengdust smám saman, og í dag var hún svo alein frá því snemma í morgun þar til hún var búin að leggja sig eftir matinn, og kom svo heim um hálf þrjú. Hún hefur nú reyndar hana Freyju sína með sér til halds og trausts svona fyrstu dagana a.m.k. Við Hrafnhildur áttum þriggja ára brúðkaupsafmæli núna um daginn, gerðumst menningarleg af því tilefni og fórum í leikhús. Sáum Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu. Alveg helvíti mögnuð leik- og loftfimleikasýning. Ætla svo að reyna að læra eitthvað um helgina :o(
| 2 ófeimnir |




| 20.08.2004 @ 09:08 | bjorninn |
Þessi fyrirsögn er á forsíðu Fréttablaðsins í dag:

Björn drakk sig fullan
Braut upp kælikassa fólks í útilegu

Síðan hvenær er þetta fréttnæmt?
| 10 ófeimnir |




| 18.08.2004 @ 09:28 | bjorninn |
Banani og tvöfaldur espresso í morgunmat er málið. Eftir það er maður til í allt.
| 5 ófeimnir |




| 13.08.2004 @ 20:28 | bjorninn |
Hvað er málið með að vera að sýna frá þessari fáránlegu opnunarathöfn Ólympíuleikanna. Sammi og Balli Bergs sitja og gusa út úr sér sinni takmörkuðu landafræðiþekkingu, sem byggist á að lesa af blaði hversu margir búa í hverju landi og hversu margir ferkílómtetrar þau eru, meðan að óteljandi keppendur óteljandi þjóða labba inn á völlinn í misljótum búningum og veifa. Frábært sjónvarpsefni. Get huggað mig við að Enski boltinn byrjar á morgun á Skjá einum, frítt. Mögnuð snilld.
| 3 ófeimnir |




| 11.08.2004 @ 13:26 | bjorninn |
Fékk eftirfarandi skeyti í tölvupósti í morgun:

Kæri Björn

Skrifstofu Sjálfstæðisflokksins hefur borist inntökubeiðni þín í Heimdall í Sjálfstæðisflokknum. Í inntökubeiðninni koma fram eftirtaldar upplýsingar:

Nafn: Björn xxxxxxxxxxson
Kennitala: xxxxxxxxxx
Heimilisfang: xxxxxxxxx xx
Póstnúmer: xxx
Staður: xxxxxxxxx
Netfang: bjorn02@ru.is
Heimasími:
Vinnusími:
GSM: xxxxxxx

Vinsamlega láttu okkur vita ef þær eru ekki réttar eða þú telur þeim ábótavant. Ef þær eru réttar þarftu ekkert að gera og inntökubeiðnin fer til stjórnar félagsins sem þarf skv. skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins að samþykkja hana.

Bestu þakkir.
Starfsfólk Sjálfstæðisflokksins

Greyið gaf semsagt upp póstfangið mitt í umsókninni. Ég er spá í að afturkalla umsóknina hans í Sjálfstæðisflokkinn og sækja um fyrir hann í Samfylkingunni. Svona er maður aumingjagóður.
| 1 ófeiminn |




| 10.08.2004 @ 14:54 | bjorninn |
Hér geymi ég upptöku af Metallica tónleikunum í Egilshöll í sumar. Sennilega eruð þið glæpamenn (eins og ég) ef þið sækið þetta, en hver ætli komist svo sem að því...
| 3 ófeimnir |




| 10.08.2004 @ 09:22 | bjorninn |
KR-ingar hafa greinilega ákveðið að stinga höfðinu í sandinn og hunsa könnunina mína.
| 1 ófeiminn |




| 08.08.2004 @ 22:01 | bjorninn |
Kannski maður skrifi nokkur orð um ævintýri helgarinnar, og kannski síðustu helgar líka fyrst maður er ekki enn búinn að því. Hrafnhildur var að vinna hluta verslunarmannahelgarinnar þannig að við vorum bara í rólegheitum hér í bænum. Á sunnudagskvöldinu fengum við Örnu, Óskar litla, Óskar stóra, Sylvíu og Gest í mat til okkar, grilluðum læri, drukkum rauðvín og bjór og spjölluðum fram á nótt. Fórum svo í Húsdýragarðinn á mánudeginum með Kollu, Palla, Birki og Eiði sem átti 10 ára afmæli. Kíktum á dýrin og strákarnir léku sér í tækjunum (biðu aðallega í biðröðum eftir að komast í tækin samt). Hittum líka Hildi móðu, Gunnþór og þeirra börn í garðinum, en þau voru í sumarfríi hér í spillingunni. Íris systir, Yrsa Líf, Darri Snær og Fáfnir Freyr kíktu í heimsókn til okkar í vikunni. Komu við hjá okkur á leiðinni til Ólafsvíkur, þar sem þau ætluðu að vera í nokkra daga. Mamma átti síðan afmæli þann 4. ágúst. Fórum svo í tvær afmælisveislur í gær. Fyrst til Eiðs Tjörva, og svo fórum við í gærkvöld í 30 ára afmælið hennar Sylvíu. Nú fara þrítugsafmælin að hellast yfir vinahópinn í bunum, sjitt hvað maður er að verða gamall. Það var nú samt djammað og djúsað fram á nótt, þrátt fyrir háan aldur. Vorum samt komin heim um hálf þrjú, sem var mun fyrr en margir aðrir sem voru víst að skríða heim tímanlega í morgunmatinn. Dagurinn í dag var samt alveg nógu lýjandi. Sunna Kristín vaknaði auðvitað eldhress klukkan 8. Sýndi enga miskunn svo við vorum komin út á róló fyrir hádegi. Hrafnhildur og Gísli Tjörvi kíktu í bíó seinnipartinn. Ætluðu að sjá Spiderman 2, en hún var svo ekki sýnd á réttum tíma svo þau sáu bara Gretti í staðinn. Hmmm ekkert partý á efstu hæðinni um helgina, ætli þetta sé ekki lognið á undan storminum...
| Verið ófeimin! |




| 06.08.2004 @ 16:03 | bjorninn |
Spáið í hvað væri miklu skemmtilegra að skíta í svona klósett.
| 4 ófeimnir |




| 30.07.2004 @ 10:45 | bjorninn |
Spurning hvort að Nesjamenn fatti þetta nokkurn tímann til að komast út á Höfn, en eins og allir vita er pípuhliðið þar til að halda Nesjamönnum fyrir utan bæjarmörkin.
| 14 ófeimnir |




| 29.07.2004 @ 22:24 | bjorninn |
Þá er verslunarmannahelgin að renna upp. Verður líklega frekar róleg helgi hjá okkur því Hrafnhildur verður að vinna mest alla helgina. Nema náttúrulega það verði einhvers konar innihátíð á efstu hæðinni hjá okkur um helgina, þá verður líklega ekki svo rólegt, a.m.k miðað við hvernig venjuleg helgi er á þeim bænum. Þau verða kannski í harðri samkeppni við Innipúkann hans dr. gunna og Svavars frænda. Vonandi bara að penthousepakkið hunskist til Eyja, eða á einhvern annan jafn ömurlegan stað, og verði veðurteppt þar fram á vor. Skattmann ætlar að gefa mér einhverjar krónur á morgun, fékk fréttir af því í dag á vefsíðunni hans. Það er að sjálfsögðu löngu búið að ráðstafa þeim aurum, eins og venjan er á þessu heimili. Alltaf að eyða peningunum áður en maður eignast þá, þá þarf maður ekki að vera að vandræðast með hvað á að gera við alla seðlana. Í ár fara spírurnar frá Indriða í að borga fyrir sukkið í Portúgal í sumar. Maður skýtur kannski þúsara undan og eyðir í bjórkippu, svona í tilefni helgarinnar.
| Verið ófeimin! |




| 26.07.2004 @ 11:57 | bjorninn |
Tókum okkur til og gerðum herbergið hennar Sunnu Kristínar klárt um helgina. Það voru heilu fjöllin af alls konar drasli þar inni. Sumt endaði í ruslinu, en öðru var gefinn séns, troðið eitthvað annað þar til í næstu tiltekt. Keyptum svo hillur og mottur og ljós og fleira dót í IKEA. Hún svaf svo í herberginu sínu í fyrsta skipti í nótt. Henni fannst það nú ekki mikið mál, enda víkingur eins og pabbi sinn. Svo var tóm gleði á efstu hæðinni á stigaganginum okkar um helgina. Standandi dóp og brennivínspartý frá fimmtudegi til sunnudags. Maður var eðlilega frekar fúll yfir að vera ekki boðinn, svo að í gærmorgun var öslað gegnum glerbrotin, draslið og bjórlækinn sem liðaðist niður stigann, upp á efstu hæð og kvartað. Pakkinu verður hent út, hugsanlega fram af svölunum, ef við verðum ekki boðin í næsta partý. Fórum svo í 35 ára afmæli til Pallamagg í gær. Þar var boðið upp á súkkilaðitertu með öllu, en vantaði samt rauðvínskútinn sem ég átti von á að yrði þar. Hjólaði ekki í vinnuna í morgun, djöfuls aumingjaskapur, nennti því bara alls ekki. Það var svo helvíti gott að liggja í bólinu til hálf níu. Maður þurfti náttúrulega að hvíla sig vel eftir svona erfiða helgi.
| 4 ófeimnir |




| 23.07.2004 @ 16:13 | bjorninn |
Það er ausandi vatnsveður úti, og ég kom á hjólinu í vinnuna. Best að skipta yfir á regndekkin. Ætla ekki að taka neitt þjónustuhlé.
| 2 ófeimnir |




| 21.07.2004 @ 09:26 | bjorninn |
Hálfviti dagsins.
| 4 ófeimnir |




| 20.07.2004 @ 11:48 | bjorninn |
Linda Ronstadt er kona dagsins. Hún má syngja í mínum partýum hvenær sem hún vill.
| Verið ófeimin! |




| 20.07.2004 @ 09:21 | bjorninn |
Maður dagsins er Halldór Ásgrímsson. Hann er þá lifandi eftir allt saman.
| 1 ófeiminn |




| 19.07.2004 @ 12:17 | bjorninn |
Verst að hafa misst af þessu í ár. Maður tekur bara þátt á næsta ári.
| 2 ófeimnir |




| 17.07.2004 @ 11:44 | bjorninn |
Gísli Tjörvi er kominn til Reykjavíkur eftir að hafa verið í heimsókn á Hornafirði. Hann kom í gær með Amalíu ömmu og Tjörva afa, sem eru í Reykjavík í sumarfríi núna. Gott að vera komin með kappann heim. Hrafnhildur er sofandi, var á næturvakt í nótt og fer aftur núna næstu nótt, þannig að þetta verður frekar róleg helgi hjá okkur. Hún er semsagt búin með sumarfríið sitt í bili. Við eigum bæði einhverja daga inni sem verða notaðir í eitthvað skemmtilegt í haust eða einhvern tímann. Var áfram hrikalega duglegur á hjólinu í vikunni. Hjólaði alla dagana nema á þriðjudaginn. Lýsið rennur í stríðum straumum um reiðhjólastíga borgarinnar. Þetta er þvílík snilld að hjóla í vinnuna, maður hefði átt að byrja miklu fyrr á þessu. Þessi hér ætti kannski að halda sig bara við reiðhjól. Ég sigraði að sjálfsögðu með yfirburðum í massakönnuninni, enda ekki við öðru að búast. Var með svipað fylgi og Ólafur Ragnar í forsetakosningunum, ekki slæmt það. Jói Fel var þá Ástþór, var kosinn af sjálfum sér og kannski konunni sinni, átti aldrei séns, og sjálfstæðismennirnir kusu He-Man. Ný, rússnesk, könnun mætt á svæðið núna.
| Verið ófeimin! |




| 12.07.2004 @ 14:49 | bjorninn |
Þessi atvinnuauglýsing á mbl er í flokknum TölvurUpplýsingatækni. Ætla pottþétt að sækja um.
| 1 ófeiminn |




| 11.07.2004 @ 15:58 | bjorninn |
Hrafnhildur og Sunna Kristín eru á leiðinni frá Hornafirði. Förum beinustu leið í afmælisveislu til Óskars þegar þær koma. Hann er alveg að verða eins árs. Gísli Tjörvi ákvað að verða eftir á Hornafirði. Ætlar að vera þar í nokkra daga í viðbót og láta ömmur og afa stjana aðeins meira við sig. Honum leiðist það nú ekki. Ég er búinn að vera hrikalega duglegur að hjóla, hjólaði í vinnuna og heim aftur næstum alla síðustu viku. Það eru þá um 20 km sem maður hjólar á dag. Djöfuls harka.
| 3 ófeimnir |




| 08.07.2004 @ 23:54 | bjorninn |
Í dag safnaðist fólk saman fyrir utan alþingi og hrópaði: "Við viljum kjósa". Ég hef ákveðið að verða við þessari ósk og lagði á mig mikla vinnu til að færa fólki kosningar. Aumur í rassinum hef ég nú setið við tölvuna í allt kvöld og forritað. Þar sem Dabbi og félagar eru að gera sitt besta til að taka stjórnarskrárbundinn kosningarétt af fólki, er mikilvægt að allir sýni samstöðu í verki og noti kosningaréttinn sem ég hef fært ykkur. Hér vinstra megin á síðunni getið þið nú kosið um eitt mikilvægasta mál í sögu lýðveldisins. Gjöriði svo vel!
| 1 ófeiminn |




| 08.07.2004 @ 10:48 | bjorninn |
Var að vinna 50 milljón evrur í hollenska lottóinu. Fékk tölvupóst þess efnis núna rétt áðan. Þetta er greinilega miklu betra lottó en þetta íslenska djönk. Hef oft keypt miða í því og einu sinni fengið 3 rétta, sem dugði ekki einu sinni fyrir miðanum, en hef aldrei keypt miða í því hollenska en er samt búinn að vinna 4 og hálfan milljarð.
| 2 ófeimnir |




| 07.07.2004 @ 11:34 | bjorninn |
Sörpræs sörpræs.
| Verið ófeimin! |




| 06.07.2004 @ 14:50 | bjorninn |
Vonandi þarf ég aldrei að leggast inn á þennan spítala.
| Verið ófeimin! |




| 06.07.2004 @ 10:08 | bjorninn |
Þá er maður búinn að fjárfesta í eðal reiðhjóli. Nú verður hjólað um allar trissur, og vömbinni sagt stríð á hendur. Verst hvað maður verður aumur í rassgatinu af þessu helvíti, en það hlýtur að venjast. Fór í prufutúr í gær á græjunni, söng hástöfum um riddara götunnar, Rennur af stað ungi riddarinn, rykið það þyrlast um slóð... Er að drepast í óæðri endanum eftir ósköpin, hljóta að vera hjólreiðarnar sem valda, frekar en söngurinn. Búinn að finna aðra tónleika til að fara á. Vonandi að það sé enginn stórleikur í fótbolta til að horfa á á sama tíma. Annars var síðasti leikur soddan hörmung, að það var í góðu lagi að missa af honum. Eina eftirsjáin er að hafa horft upp á þetta í góðri trú, strax eftir Metallica. Hefði betur sleppt því helvíti. En bjórinn sem fékk að fljóta með áhorfinu var samt góður og deyfði aðeins sársaukann. Er ekki kominn tími á að flytja Oddsson karlinn úr landi, sjippa honum í eitthvað bananalýðveldi sem lengst í burtu? Hann verður örugglega orðinn einræðisherra þar innan fárra mánuða, og getur fengið útrás fyrir þessar kenndir sínar. Það kæmist þá kannski eitthvað annað að í fréttunum hér heima heldur en strákapörin hans. Þetta er orðið gott. Já, eigum við þá að hætta núna? Snjó....typpi!
| 4 ófeimnir |




| 05.07.2004 @ 10:11 | bjorninn |
VÁÁÁÁ hvað tónleikarnir í gær voru rosalegir. Þvílík gargandi snilld. Kapparnir fóru að mínum ráðum, og spiluðu lítið af nýjustu diskunum, en þeim mun meira af þessu gamla góða. Hér er svo prógrammið:

1. Blackened - ...And Justice For All
2. Fuel - Reload (held það sé rétt hjá mér, þekki þennan disk ekkert)
3. Harvester of Sorrow - ...And Justice For All
4. Welcome Home (Sanitarium) - Master Of Puppets
5. Frantic - St. Anger
6. For Whom The Bell Tolls - Ride The Lightning
7. St. Anger - St. Anger
8. Sad But True - Metallica
9. Creeping Death - Ride The Lightning
10. Fade To Black - Ride The Lightning
11. Battery - Master Of Puppets
12. Wherever I May Roam - Metallica
13. Nothing Else Matters - Metallica
14. Master Of Puppets - Master of Puppets
15. One - ...And Justice For All
16. Enter Sandman - Metallica
17. Breadfan - The Good, The Bad and The Live (ef ég man rétt)
18. Seek And Destroy - Kill 'Em All

Semsagt snilldarprógramm sem entist í 2 og hálfan klukkutíma, og maður var gjörsamlega búinn á því eftir þetta. Algjörlega 6500 króna virði og rúmlega það.
| 4 ófeimnir |




| 04.07.2004 @ 16:33 | bjorninn |
Portúgalmyndir eru loksins komnar inn fyrir þá sem langar að skoða. Þetta eru hátt í 200 myndir!!!

Fórum í sund í morgun út á Seltjarnarnesi. Það er verið að trappa sig niður eftir allt sundið í Portúgal. Þar var fullt af eldri konum í sundi og Sunna Kristín kallaði þær allar langömmu. Þær voru auðvitað mjög hrifnar af því allar saman. Erum svo að fara á Metallica tónleika í kvöld. Erum að hita okkur upp núna með því að renna diskunum í gegnum spilarann. Sleppum að vísu nýja djönkinu, enda ekkert varið í það, og vonandi sem minnst spilað af því í kvöld. Missum af úrslitaleiknum á EM fyrir vikið, (hvaða vitleysingur planaði tímasetninguna á þessum tónleikum?) en það verður að hafa það. Maður tekur hann bara upp og horfir á eftir tónleikana. Áfram Portúgal. Tími til kominn að einhver taki þessa hundleiðinlegu Grikki. Hrafnhildur, Gísli Tjörvi og Sunna Kristín eru svo að fara austur á Hornafjörð á morgun. Ætla að vera þar í viku eða svo, Gísli Tjörvi kannski lengur. Ég fer í vinnu á morgun svo ég fer ekki með. Fer kannski á morgun og fjárfesti í hjóli til að komast milli staða, eða tek bara strætóinn.
| 2 ófeimnir |




| 02.07.2004 @ 14:27 | bjorninn |
Síðustu myndirnar fyrir Portúgal komnar inn. Þær koma svo vonandi í kvöld, eða á morgun, eða hinn, eða...
| Verið ófeimin! |




| 01.07.2004 @ 22:24 | bjorninn |
Alveg að kikna undan pressunni. Myndir úr fermingunni hans Elíasar komnar inn. Fórum áðan og keyptum stóla og borð á svalirnar og rauðvínskassa að auki. Það var svo helvíti gott að sitja á svölunum á kvöldin í Portúgal með rauðvínsglas, að nú átti að láta fara vel um sig. Rauðvínið var 10 sinnum dýrara heldur en í Portúgal, og þegar ég settist út áðan var 10 sinnum kaldara heldur en á svölunum í Portúgal. Maður verður bara að fara í ullarpeysuna og blanda rauðvínið út í vatn til að drýgja það.
| 3 ófeimnir |




| 01.07.2004 @ 16:04 | bjorninn |
Er að vinna í að setja inn allar myndirnar sem ég hef trassað að setja inn. Fyrsti skammtur er kominn á myndasíðuna. Þetta er allt að koma.
| 3 ófeimnir |




| 30.06.2004 @ 12:54 | bjorninn |
Grísaveisla, sangría og sjór. Veislan búin í bili, sangrían var fín, sjórinn saltur, bjórinn ódýr, rauðvínið enn ódýrara. Djöfull er kalt hérna. Meira síðar.
| 4 ófeimnir |




| 13.06.2004 @ 21:24 | bjorninn |
heh...Frakkarnir flengdu Englendingana eins og ég sagði. Portúgal eftir 1 og hálfan sólarhring!
| 3 ófeimnir |




| 11.06.2004 @ 19:56 | bjorninn |
Þá er komin helgi, og ég er kominn í sumarfrí! Ekki slæmt það. Það verður ýmislegt gert um helgina. Hrafnhildur og Gísli Tjörvi eru núna í bíó að sjá Harry Potter og fangann frá Azkaban. Gísli Tjörvi var á skólaslitum í vikunni, og fékk rosa flottan vitnisburð, og fékk bíóferð í verðlaun. Í kvöld ætlum við og nokkrir góðir vinir að hittast hér heima hjá okkur og fá okkur kannski smá rauðvín og öl. EM veislan byrjar svo á morgun, Portúgal - Grikkland klukkan fjögur og svo Spánn - Rússland eftir það. England - Frakkland á morgun, og því missir maður sko ekki af. Vonandi að Frakkarni flengi Englendingana duglega. Förum líka í útskriftarveislu til Guðrúnar Guðmunds á morgun. Svo er bara að pakka fyrir Portúgal. Bara 4 dagar til stefnu, 4 DAGAR!!!
| 3 ófeimnir |




| 10.06.2004 @ 15:14 | bjorninn |
Rétt að halda áfram með afmæliskveðjurnar. Í dag á besta tengdamamman, hún Amalía, afmæli. Til hamingju með daginn.
| 6 ófeimnir |




| 09.06.2004 @ 17:29 | bjorninn |
6 dagar í Portúgal! 6 dagar þar til Gestur fer til Ameríku! Tilviljun?
| Verið ófeimin! |




| 08.06.2004 @ 10:02 | bjorninn |
Til hamingju með afmælið í gær Gunnhildur. Allt að verða vitlaust í afmæliskveðjunum. Eftir eina viku verðum við að stíga út úr flugvélinni í Portúgal. Vonandi að það kveikni ekki mikið í meðan við verðum þar, því slökkviliðsmenn þar í landi eru víst búnir að hóta verkfalli. Mæli með að menn kíki á þessa síðu og skoði auglýsingarnar.
| 3 ófeimnir |




| 06.06.2004 @ 21:44 | bjorninn |
Til hamingju með daginn allir sjóarar. Hér er búin að vera ógurleg blíða í allan dag. Röltum niður í bæ í morgun í allri sólinni. Keyptum okkur ís og Sunna Kristín fékk ís í brauðformi, sem bráðnaði svo yfir hana alla. En hann var samt rosa góður á bragðið. Komum svo auðvitað við á bryggjunni þar sem var ýmislegt um að vera. Skoðuðum fullt af skrýtnum fiskum og fleira. Komum svo heim og grilluðum okkur pylsur í síðbúinn hádegismat. Hrafnhildur fór svo á kvöldvakt, meðan við hin héldum áfram að leika okkur í góða veðrinu. Svo er það Portúgal eftir 9 daga! Skilst að það sé stundum gott veður þar.
| Verið ófeimin! |




| 04.06.2004 @ 17:58 | bjorninn |
Heiða Björk á afmæli í dag. Til hamingju með daginn!
| 1 ófeiminn |




| 03.06.2004 @ 09:16 | bjorninn |
Þakka fyrir afmæliskveðjurnar. Afmælisdagurinn fór í að keyra í spillinguna til Reykjavíkur eftir fína ferð á Hornafjörð. Komum mátulega í kvöldmatinn, fékk eðal flatböku frá Eldsmiðjunni í afmælismat. Alltaf gott. Ferðin var bara fín, og Sunna Kristín var í spariskapi alla leið, enda ekki hægt að vera með einhver leiðindi á afmælisdegi pabba síns. Óli Grís er snillingur, sannfærðist endanlega um það í gær. Alltaf gaman að fá að kjósa. Lýðræðið í sinni hreinustu mynd. Gaman að sjá stuttbuxnastrákana engjast um. Fór svo í golf í gærkvöldi í fyrsta skipti í sumar, og er með blöðrur á fingrunum eftir ósköpin. Segið svo að golf sé ekki íþrótt. Vorhátíð í skólanum hjá Gísla Tjörva á eftir. Það á að fara að veiða í Reynisvatni, og verður veiðikeppni milli bekkja. Því verður að sjálfsögðu rúllað upp, vatnið hreinsað með gamalli botnvörpu af Guggunni sem ég keypti fyrir slikk.
| 1 ófeiminn |




| 31.05.2004 @ 13:55 | bjorninn |
Til hamingju með daginn Elías Tjörvi!
| 6 ófeimnir |




| 29.05.2004 @ 09:47 | bjorninn |
Komum í sveitasæluna kringum miðnættið. Ferðin sóttist vel, og Sunna Kristín var hin spakasta alla leið. Sofnaði meira að segja í smá stund sem hún er nú yfirleitt ekki að gera í bílnum. Það var reyndar hífandi rok og lárrétt íslensk rigning stóran hluta af leiðinni, en það er nú bara gaman að því. Nú taka bara við ljúfir dagar í sveitinni. Kíkjum í heimsóknir til vina og vandamanna, og förum örugglega að skoða nýju íbúðina hennar Helgu langömmu sem hún flutti í um daginn. Aldrei að vita nema maður kíki aðeins á golfvöllinn líka. Svo er það fermingin hans Elíasar á mánudaginn.
| Verið ófeimin! |




| 28.05.2004 @ 14:06 | bjorninn |
Leggjum af stað til Hornafjarðar eftir 4 tíma eða svo. Þar á að taka Elías Tjörva í fullorðinna manna tölu á afmælisdaginn hans, annan í Hvítasunnu. Sunnu Kristínu finnst ekkert rosa spennandi í svona löngum bíltúrum, þannig að það er alltaf gríðarstemning á leiðinni. Verður væntanlega eitthvað svipað og á leiðinni til og frá Húsavík í vor. Er að undirbúa mig andlega undir átökin með því að hlusta á fyrstu plötu Air, Moon Safari. Helvítis mikil snilldarplata. Komum svo aftur í bæinn á þriðjudaginn, á afmælisdaginn minn.
| 1 ófeiminn |




| 26.05.2004 @ 22:38 | bjorninn |

| 5 ófeimnir |




| 25.05.2004 @ 23:53 | bjorninn |
Nú getur maður ekki orða bundist. Vorum að koma heim af Pixies tónleikum í Kaplakrika í boði Hermannsson fjölskyldunnar. Pixies voru alveg hreint mögnuð. Vorum eiginlega hætt við að fara sökum blankheita. En við svoleiðis aðstæður getur greinilega komið sér vel að eiga góða vini í útlöndum, sem eru heppnir í happadrættum og öðrum fjárhættuspilum, því þessu hefði ég sko ekki viljað missa af.

cease to resist, giving my goodbye
drive my car into the ocean
you'll think i'm dead, but i sail away
on a wave of mutilation
a wave
wave

i've kissed mermaids, rode the el nino
walked the sand with the crustaceans
could find my way to mariana
on a wave of mutilation,
wave of mutilation
wave of mutilation
wave

wave of mutilation
wave


| Verið ófeimin! |




| 17.05.2004 @ 16:47 | bjorninn |
Tónleikarnir í gær voru helvíti góðir. Jón Ólafs snillingur klikkaði ekki. Spilaði í bland lög af nýja diskinum og eldra efni frá Nýdanskri, Possibillies og Bítlavinafélaginu. Spurning hvort Metallica slái honum við. Júróvisjón var massíft flopp, eins og við var að búast. Það þarf að senda einhverjar hálfberar sílikondrottningar, eða súkkulaðibrúna stráka sem þora að sýna á sér magavöðvana til að eiga einhvern séns. Tími til kominn að menn átti sig á því, og hætti að rembast við að senda eitthvhað annað þarna út. Græddum samt á þessu að mögulega verða tvö júróvisjónpartý að ári. Svo er líka annar möguleiki í stöðunni. Ræddum þessa brilljant lausn á laugardagskvöldið þegar ljóst var hvert stefndi. Dr Gunni er líka búinn að fatta þetta trix, og skrifar um það á sinni síðu. Málið er að skipta skerinu bara upp í nokkur sjálfstæð lönd. Vestmannaeyjingar hafa alltaf viljað vera út af fyrir sig, leyfum þeim það. Svo væri hægt að brytja þetta niður í 5-6 lönd til viðbótar. Síðan myndum við bara senda öll inn sitthvort lagið, gefa hvort öðru 12 stig, og margfalda þannig möguleika okkar.

Erum komin með farseðlana til Portúgal í hendurnar, þannig að nú verður ekki aftur snúið. Algarve þann 15. júní.

Sá á áreiðanlegum fréttamiðli frétt þess efnis að Árni Johnsen kallinn væri sestur aftur við kjötkatlana, kominn aftur í stjórn RARIK, eftir að hafa sagt af sér þegar hann var gripinn með allt niðrum sig í BYKO forðum daga. Sjálfsagt orðinn nýr og betri maður strákurinn, æstur að bæta upp fyrir misgjörðir sínar, tilbúinn að vinna óeigingjarnt starf í okkar þágu. Sjálfstæðisflokkurinn sér um sína. Gott að vita til þess að svona strangheiðarlegir og ábyrgir menn sjái okkur fyrir jafn nauðsynlegum hlut og rafmagninu. Árni hjá RARIK og Alfreð hjá Orkuveitunni. Ekki vildi maður hafa einhverja spillta gutta í stólunum þeirra.
| 10 ófeimnir |




| 15.05.2004 @ 16:10 | bjorninn |
Keypti miða fyrir okkur á Metallica áðan. Gat ekki staðist það. Var að kaupa miða fyrir Ella Sprella á netinu, og það var of mikil freisting að bæta við miðum fyrir okkur. Maður var víst nokkuð heppinn að ná miða því 3000 miðar sem voru í boði á netinu seldust upp á 17 mínútum. Þannig að þá er það ákveðið, maður sleppir Hátíð á Hornafirði í fyrsta skipti á ævinni, því tónleikarnir eru um sömu helgi og hátíðin.
| 6 ófeimnir |




| 14.05.2004 @ 23:05 | bjorninn |
Var að bæta inn þremur nýjum myndaalbúmum á myndasíðuna. Segið síðan að það gerist aldrei neitt á þessu vefsetri. Þarna eru meðal annars myndir úr eintugsafmælinu hans Gísla Tjörva og ýmislegt fleira. Erum að fara á tónleika með Jóni Ólafssyni á sunnudaginn í Salnum í Kópavogi. Held það verði helvíti ljúft. Metallica miðasala að byrja á morgun, djöfull langar mig mikið á þá. Hvað er málið með að hafa allar þessar stórhljómsveitir með svona stuttu millibili. Maður hefur ekki efni á þessu. Svo er það bara júróvisjón á morgun. Get varla beðið, alveg að farast úr spenningi. Er búinn að liggja yfir lögunum, kann þau öll utan að á bæði gítar og munnhörpu. Veðja á að Makedónía taki þetta í vinstri nösina.
| 3 ófeimnir |




| 10.05.2004 @ 09:59 | bjorninn |
Gísli Tjörvi snillingur átti afmæli í gær. Orðinn eintugur eins og hann segir sjálfur, þannig að um stórafmæli var að ræða. Það var haldin heilmikil veisla, þar sem mættu 15 fjörugir strákar, og slatti af gamlingjum. Það var sól og blíða í gær, þannig að það var farið út í brennó og fleiri leiki. Við Hrafnhildur vorum með í brennó, vorum kóngarnir, og mitt lið burstaði auðvitað leikinn, þarf ekki að spyrja að því, og ekki orð um það meir. Gísli Tjörvi var ánægður með daginn, fékk fullt af flottum pökkum, og líka pening, bæði evrur sem hann ætlar með til Portúgal, og íslenskar krónur, sem hann ætlar að skipta í evrur og taka með líka.

Annars er það að frétta að ég er búinn að fá einkunnir úr prófunum sem ég tók í apríl, náði þeim báðum, svo það er fínt. Sunna Kristín virðist vera að hressast eftir að hafa pikkað upp hverja pestina á fætur annarri síðustu vikurnar. Hún er búin með pestaskammtinn næstu 2 árin a.m.k. held ég. 7-9-13.
| 8 ófeimnir |




| 05.05.2004 @ 14:07 | bjorninn |
Þorgrímur er tvítugur í dag, og má loksins kaupa sér bjór. Til hamingju með daginn.
| 4 ófeimnir |




| 02.05.2004 @ 16:47 | bjorninn |
Allt þokkalegt hér. Búið að gera ýmislegt um helgina, reyndar ekki Hrafnhildur, hún er bara búin að vera að vinna. Á föstudaginn var Gísli Tjörvi að keppa í handbolta á Seltjarnarnesi með Gróttu/KR. Þeir kepptu 3 leiki, unnu ÍR og Stjörnuna, en töpuðu fyrir HK. Þeir áttu líka að keppa við Hauka, en þeir kunna víst ekki á klukku í Hafnarfirðinum, eða eru á öðru tímabelti, því þeir mættu 2 tímum of seint. Ég fékk líka ágætis hreyfingu út úr þessu við að hlaupa á eftir Sunnu Kristínu sem var á fleygiferð upp um alla áhorfendapalla, og vildi helst stökkva niður á gólf til strákanna og vera með í boltaleiknum. Í gær var síðan verið að hreinsa til í garðinum hér í blokkinni. Það var gríðarstemning eins og við var að búast, og komust færri að en vildu, og náðist því ekki að klára allt sem átti að gera. Það verður því að hittast fljótlega aftur, og þá er hugmyndin að leyfa þeim sem ekki komust að núna að njóta sín. Svo er ég búinn að setja allar myndirnar inn í nýja myndakerfið. Bætti líka inn nýjum myndum. Það var komið fullt af myndum sem ég átti eftir að bæta inn. Myndir frá því um páskana og fullt annað. Þær eru allar saman í einu stóru albúmi. Það koma svo örugglega fleiri myndir fljótlega, því minniskortið á vélinni er líka fullt.
| 2 ófeimnir |




| 29.04.2004 @ 22:05 | bjorninn |
Pabbi gamli á afmæli í dag! Til hamingju með daginn!
| Verið ófeimin! |




| 29.04.2004 @ 14:40 | bjorninn |
Lillinabbi í sturtu. Gott að fá svona myndir af kappanum fyrst það er svona langt síðan maður hefur fengið að fara í sturtu með honum eftir boltann.
| 5 ófeimnir |




| 28.04.2004 @ 15:07 | bjorninn |
Baggalútur komst yfir fjölmiðlafrumvarpið hans Dabba. Það má lesa hér.
| 2 ófeimnir |




| 28.04.2004 @ 14:26 | bjorninn |
Er að hugsa um að færa myndirnar í nýtt kerfi. Þið getið kíkt á það hér. Er búinn að setja fyrstu albúmin þarna inn, og bætti líka við nokkrum myndum þar sem 133 megariða linux jálkurinn er kominn með almennilegan disk. Nú er líka hægt að kommenta á myndirnar og sækja þær í fullum gæðum. Er þetta ekki miklu svalara?
| 4 ófeimnir |




| 25.04.2004 @ 14:41 | bjorninn |
Til hamingju með afmælið elskuHafrún!

Hvernig er það, fer fólk ekkert að verða þreytt á djöfuls kjaftæðinu í Bubba kóngi og hinum smjattpöttunum. Alveg magnað að fólk skuli kjósa þessa bévítans vitleysinga og fáráðlinga yfir sig kjörtímabil eftir kjörtímabil. Heyrði einhvern tímann að þessir pottormar kenndu sig við frelsi. Rak til dæmis augun í gamlan áróðurspésa frá þeim um daginn þar sem orðið FRELSI stóð stórum stöfum á forsíðu, og undir var stór mynd af Árna Vigfússyni. Frelsi er víst það sem hann óskar sér heitast í dag greyið. Eitthvað virðast greyin vera að fá bakþanka yfir öllu þessu frelsi, því þeir keppast nú við að setja lög á lög ofan til að skerða frelsi þeirra sem þeim eru ekki þóknanlegir. Dæmi um þetta eru nýju útlendingalögin sem þeir eru að reyna að nauðga í gegnum þingið fyrir þingslit. Þar eru til dæmis ákvæði um að ryðjast megi inn á heimili manna, og jafnvel krefjast lífsýna úr þeim án dómsúrskurðar. Björn Bjarnason telur sig aftur á móti hafa fullt frelsi til að fara ekki að lögum, ef honum finnast þau ekki nógu góð fyrir sig og frændur hans Bubba, samanber ráðningu hans í embætti hæstaréttardómara. Þar fannst honum hann ekki þurfa að fara að jafnréttislögum, enda eru þau úrelt og barn síns tíma. Nýjasta grínið hjá peyjunum er svo fjölmiðlafrumvarpið hans Bubba litla. Nú finnst honum tímabært að banna mönnum að eiga fjölmiðla ef þeir eiga líka fyrirtæki í óskyldum rekstri. Skrýtið að þetta skuli koma fram núna, þegar nýbúið er að slátra kolkrabbagreyinu. Frelsi handa öllum, en sumir eru bara frjálsari en aðrir!
| 7 ófeimnir |




| 23.04.2004 @ 11:26 | bjorninn |
Gleðilegt sumar alle sammen! Við erum komin heim eftir frækna för til Húsavíkur, þar sem við fórum í brúðkaup hjá Svenna, bróður hans Tjörva. Það var heilmikil veisla, og fullt af frændum og frænkum Hrafnhildar, Gísla Tjörva og Sunnu Kristínar. Gistum á heimavist Hafralækjarskóla, og höfðum alla vistina út af fyrir okkur, nóg pláss. Komum svo heim klukkan hálf tvö í nótt, eftir laaanga bílferð. Það var svo mikil þoka á Holtavörðuheiðinni að maður sá varla milli stika, svo að það var ekki hægt að keyra mikið hraðar en 30. Heiðin er lengri en andskotinn þegar maður keyrir hana á 30, mæli með að menn prófi það næst þegar þeir eiga leið yfir. Sunna Kristín var ekkert allt of hrifin af þessari bílferð heldur og lét okkur alveg vita af því greyið litla, sofnaði ekki fyrr en á lokasprettinum. En þetta hafðist á endanum, og allir sváfu fast og vel í rúmunum sínum.
| 2 ófeimnir |




| 21.04.2004 @ 13:29 | bjorninn |
Getraun í gangi, hvaða menn eru þetta?
| 3 ófeimnir |




| 21.04.2004 @ 11:23 | bjorninn |
Fórum út að borða með vinnunni minni í gærkvöldi. Það var bara helvíti fínt, fórum á Apótekið, og ég fékk mér saltfisk. Fékk samt ekki hamsatólg með, sem var frekar svekkjandi, en maður jafnaði sig á því á endanum. Kolla passaði Sunnu Kristínu og Gísla Tjörva á meðan. Erum svo að fara til Húsavíkur eftir vinnu í dag. Ætlum að fara þar í brúðkaup hjá Svenna bróður hans Tjörva á morgun, sumardaginn fyrsta. Spurning hvort það verði eitthvað í líkingu við þetta brúðkaup hér. Nei efast nú um það, en það myndi nú vera hressandi.
| 1 ófeiminn |




| 20.04.2004 @ 09:10 | bjorninn |
Mynd
| Verið ófeimin! |




| 19.04.2004 @ 20:45 | bjorninn |
Prófið gekk fínt í morgun. Þá eru bara 4 stykki eftir.
| 1 ófeiminn |




| 19.04.2004 @ 01:00 | bjorninn |
Próf í Nýrri Tækni eftir 8 tíma. Var að klára að renna yfir efnið, búið að kosta gríðarlega áreynslu að halda sér við þetta helvíti í kvöld. En það hafðist að fara yfir þetta allt, svo nú er það bara bólið. Góða nótt.
| 3 ófeimnir |




| 17.04.2004 @ 20:15 | bjorninn |
Fórum í Húsdýragarðinn í morgun. Sunnu Kristínu fannst rosa gaman að sjá öll dýrin. Hún sá rebba, kanínur, kálfa, geitur, selina og fullt fleira. Henni fannst þetta allt rosa spennandi, en henni fundust litlu hænuungarnir samt mest spennandi. Fórum svo í afmæliskaffi til Kollu og fengum súkkulaðiköku með rjóma. Til hamingju með daginn Kolla.
| 1 ófeiminn |




| 16.04.2004 @ 14:18 | bjorninn |
Var í prófi í Dreifðum Kerfum í morgun. Gekk bara þokkalega, maður náði allavega og kannski eitthvað aðeins meira. Svo er annað próf á mánudaginn, og svo eitt í viðbót á þessari önn, en ekki fyrr en um miðjan maí. Og þegar það er búið, eru bara 3 próf eftir, og þá meina ég í það heila. 3 fög og eitt lokaverkefni og þá verður þetta loksins búið, og BS gráða í Tölvunarfræði komin í hús. Það er búið að taka tímann sinn að gera þetta svona í fullri vinnu, en þetta ætti að klárast næsta vetur, nema maður klúðri þessu einhvern veginn stórkostlega. Ætla að taka 3 fög næsta haust og vera svo bara í lokaverkefninu á vorönninni. Ykkur er öllum boðið í útskrift næsta sumar. Boðið verður upp á sódavatn og saltstangir, því það er allt of mikið til af tölvunarfræðingum í dag svo þeir eru allir á skítalaunum.

Steini og Gunnhildur áttu svo 1 árs brúðkaupsafmæli í gær. Til hamingju með gærdaginn!
| 5 ófeimnir |




| 14.04.2004 @ 15:32 | bjorninn |

| Verið ófeimin! |




| 14.04.2004 @ 15:26 | bjorninn |
Páskafríið búið, og maður aftur kominn í vinnuna. Próf hjá mér á föstudaginn, og svo annað á mánudaginn. Gaman að því, og kannski maður ætti að fara að kíkja í bók. Gísli Tjörvi er líka búinn í páskafríi og fór í skólann í morgun. Toggi og Chloé voru hjá okkur í tvo daga, og flugu svo út til Belgíu í morgun. Ætla að vera þar úti í sumar.
| Verið ófeimin! |




| 11.04.2004 @ 15:56 | bjorninn |
Gleðilega Páska! Fékk þetta risapáskaegg númer 2 í morgun, og málshátt um að ég væri mikil hetja. Lærið er orðið klárt á grillið, búið að troða það út af hvítlauk og maka utan á það magnaðri kryddblöndu. Svo er sólin líka farin að skína, og rjómablíða úti. Er hægt að biðja um eitthvað meira?
| 5 ófeimnir |




| 09.04.2004 @ 10:04 | bjorninn |
Það lítur allt út fyrir að maður sé að verða gamall. Hér áður fyrr fannst manni föstudagurinn langi leiðinlegasti dagur ársins, og fannst hann í alvörunni að minnsta kosti þrisvar sinnum lengur að líða en aðrir dagar. Maður hafði ekkert að gera, engar sjoppur opnar til að hanga í og kaupa nammi, ekkert í sjónvarpinu nema einhverjar áróðursmyndir um "frelsarann". Í lok dags fékk maður síðan engin verðlaun fyrir alla þolinmæðina. Engir pakkar, engin stórsteik, ekki neitt. Í dag finnst mér þetta óhemju skemmtilegur dagur. Maður er í fríi, það eru engar búðir opnar, þannig að ef að eitthvað gleymdist, segir maður bara skítt með það. Þýðir ekkert fyrir Gísla Tjörva að suða um eitthvað, því það er jú allt lokað. Maður liggur í leti heima, les góða bók, drekkur gott kaffi, leikur við krakkana, það er ekki hægt að hafa það mikið betra. Svo er frí á mánudaginn líka, þannig að maður veit að það er löng helgi framundan. Einhvern veginn er ég ekkert voða leiður fyrir "frelsarans" hönd, ég meina það eru 2000 ár síðan kallinn hrökk upp af, er ekki nóg komið? Sjálfsagt ætti maður þá að vera í vinnunni í dag, og í gær, og á mánudaginn, fyrst maður er svon jolly með þetta allt saman, en svona er maður nú mikill hræsnari. Nú ætla ég að fara fram í eldhús að hella mér upp á nýmalað kaffitár.
| 5 ófeimnir |




| 07.04.2004 @ 23:11 | bjorninn |
Setti inn myndirnar úr brúðkaupinu hjá Örnu og Bogga fyrir Ameríkanana og aðra sem voru svo óheppnir að vera ekki þar. Þær þurftu nú ekkert mikillar ritskoðunar við, en ein og ein sem var látin hverfa. Annars er maður kominn í páskafrí, fimm daga frí maður, gríðargleði það. Hrafnhildur verður samt að vinna eitthvað um páskana, annars hefði maður nú tekið rúnt austur á Hornafjörð. Mæli með að fólk kíki á síðuna hans Toshiki Toma og lesi hvað hann hefur að segja, en hann er prestur innflytjenda á Íslandi. Hann hefur gert nokkrar athugasemdir við mjög undarlegt frumvarp sem hefur verið lagt fyrir Alþingi. Sendið honum póst ef þið viljið styðja hann í þessu.
| 3 ófeimnir |




| 07.04.2004 @ 13:45 | bjorninn |
Fékk svona pínulítið aumingjapáskaegg í gær, og fékk málsháttinn "Hér syndum við fiskarnir, sagði hornsílið". Veit ekki hvernig maður á að taka þessu.
| 2 ófeimnir |




| 06.04.2004 @ 16:51 | bjorninn |
Snilldin ein!
| 2 ófeimnir |




| 06.04.2004 @ 15:22 | bjorninn |
Lúlli afi á afmæli í dag, loksins orðinn 29 ;o) Til hamingju með daginn!
| Verið ófeimin! |




| 05.04.2004 @ 10:14 | bjorninn |
Brúðkaupið á laugardaginn var frábært. Allir í sínu besta skapi, Arna og Boggi voru stórglæsileg eins og við var að búast. Gaman í kirkjunni, veislan frábær, maturinn stórkostlegur, skolað niður með fínu víni, eftirrétturinn magnaður. Það eina sem vantaði, voru Steini og Gunnhildur. Gærdagurinn fór svo bara í rólegheit, etinn matur og nammi, dottað í sófanum og svona, frábær helgi.
| 5 ófeimnir |




| 02.04.2004 @ 23:59 | bjorninn |
Allt fínt hér. Erum að fara í brúðkaup hjá Örnu og Bogga á morgun. Við Skari ætlum svo að stjórna partýinu á eftir af mikilli hörku. Okkur var falið það ábyrgðarstarf að vera veislustjórar, og ætlum að reyna að koma því þannig fyrir að við verðum aldrei beðnir um þetta aftur. Neinei, við gerum auðvitað okkar besta, og þar sem við erum nú báðir tveir þekktir fyrir að vera duglegir við að láta mikið á okkur bera hvar sem við komum þá verðum við ekki í vandræðum með að trylla lýðinn, og leiða hann út í einhverja magnaða vitleysu fram undir morgun. Eða hvað haldið þið?
| 2 ófeimnir |




| 31.03.2004 @ 23:26 | bjorninn |
Þetta er svo fáránlega fáránlegt að þessi vitleysingur vinnur örugglega málið. Það er allt hægt í Ameríku.
| 2 ófeimnir |




| 31.03.2004 @ 10:56 | bjorninn |
Af hverju að leika sér að slíta vængina af flugunum þegar maður getur gert þetta í staðinn?
| 1 ófeiminn |




| 31.03.2004 @ 10:48 | bjorninn |
Henti inn nokkrum nýjum myndum í gærkvöldi.
| 1 ófeiminn |




| 29.03.2004 @ 14:29 | bjorninn |
Búinn að skila skattframtalinu, og það mörgum klukkutímum áður en fresturinn rennur út. Held þetta sé persónulegt met. Sennilega af því að maður hangir veikur heima, og hefur ekkert annað að gera. Er kominn með einhverja helvítis pest, reyndar bara með hita, og ekkert meir. Maður verður stálsleginn á morgun. Úti er allt á kafi í snjó og viðbjóði. Held hann eigi reyndar allur að hverfa á morgun, sem er gott.
| 8 ófeimnir |




| 28.03.2004 @ 21:53 | bjorninn |
Það var fínt á árshátíð, og maður var að sjálfsögðu ofurstabíll eins og maður á að sér. Fínn matur og heimatilbúin skemmtiatriði, svoldið eins og maður væri kominn heim í sveitina, sem var nú ekki slæmt.

Er að leggja lokahönd á skattframtalið, maður er að sjálfsögðu að nota allan frestinn sem maður fékk, og skilar ekki fyrr en á morgun. Ekkert verið að breyta út af vananum. Bara smotterí eftir samt, og maður hefði nú getað klárað þetta ef ekki hefði vantað nokkrar tölur sem ég þarf að fá í bankanum á morgun.
| 2 ófeimnir |




| 26.03.2004 @ 14:27 | bjorninn |
Við Hrafnhildur erum að fara á árshátíð hjá Hjartadeild Lansans núna í kvöld. Það verður örugglega rosalegt. Infart- og kransæðabrandarar í bunum, og hvað þetta heitir allt saman. Spurning um að fletta aðeins í anatómíubókinni hennar Hrafnhildar fyrir kvöldið, svo að maður verði viðræðuhæfur. Hrafnhildur ætlar að passa krílin. (Barnapían hennar Sunnu Kristínar heitir líka Hrafnhildur, fyrir þá sem eru ekki að fatta.)

DV hringdi í mig um daginn, til að bjóða mér áskrift að þessum vandaða fjölmiðli. Held að það sé einhver misskilningur í gangi á þeim bænum. Halda þeir að maður vilji borga þeim fyrir að bera sorp heim til sín? Maður borgar nú andskotans nóg fyrir að láta fjarlægja ruslið, þannig að nei takk ómögulega. Annars hafði ég nú alltaf töluvert álit á Illuga Jökulssyni, hér áður fyrr, en það hefur greinilega verið á miklum misskilningi byggt, fyrst hann vill leggja nafn sitt við þetta djönk. Vonandi að þetta batterý fari sem fyrst á hausinn þannig að þeir séu ekki að ónáða mann með símhringingum þegar maður er að reyna að skíta í friði.
| 1 ófeiminn |




| 24.03.2004 @ 11:51 | bjorninn |
AAAARRRGGHHHH!
| 4 ófeimnir |




| 23.03.2004 @ 14:19 | bjorninn |
Fyrirsagnir af mbl.is núna áðan:
Erlent
  • Pétur mikli gæti sprungið
  • Allsherjarverkfall í Fallujah í Írak eftir morðið á Yassin
  • Forseti ísraelska herráðsins varar Hezbollah við að leika sér að eldinum
  • Hætta á að hryðjuverk valdi sundrungu meðal Evrópuríkja
  • Kveikt í samkunduhúsi gyðinga í suðurhluta Frakklands
  • Paddington lestarstöðin rýmd í morgun vegna sprengjuótta
  • Mikill öryggisviðbúnaður í Ísrael eftir morðið á Yassin
  • Morðingi Önnu Lindh dæmdur í dag
  • Lá við stórslysi Eurostar-lestanna við London
  • A.m.k. 11 pakistanskir hermenn drepnir af Al-Qaeda

    Er allt að fara til andskotans?
    | 2 ófeimnir |




    | 22.03.2004 @ 22:05 | bjorninn |
    Sunna Kristín er öll að hressast. Þökkum Alexender Fleming fyrir það.

    Ég þekki einn mann sem er gallharður á því að ekki eigi að borga neitt undir aumingja sem ekki geta unnið fyrir sér sjálfir. Hann er illa smitaður af svokölluðum kapítalisma, sem virðist vera ansi algengur sjúkdómur meðal lítilla stuttbuxnastráka sem aldrei hafa þurft að lyfta hönd af pung nema til að bora í nefið. Þegar ég heyrði í honum í dag kvað við nýjan tón. Ástæðan var umræða um upptöku skólagjalda í Háskóla Íslands. Allt í einu var komið annað hljóð í strokkinn, og guttinn var alfarið á móti því að tekin yrðu upp skólagjöld, og menn þyrftu að fara að borga fyrir nám sitt í æðstu menntastofnun landsins. Skyldi ástæðan vera sú að hann er að fara í masters nám í umræddum háskóla í haust?
    | 4 ófeimnir |




    | 20.03.2004 @ 13:37 | bjorninn |
    Sunna Kristín er komin með lungnabólgu litla greyið. Var með hita í nokkra daga, og fékk svo hósta og kvef. Hitinn var svo farinn, og hún var búin að vera hitalaus í tvo daga, en svo allt í einu í gær fékk hún hátt í 40 stiga hita á tveimur tímum. Þá kom í ljós að hún er með lungnabólgu. Hún var voða lítil og slöpp í gær, vildi bara liggja kyrr og ekki hreyfa sig, sem er nú dálítið öðruvísi en venjulega. Hún fékk svo sýklalyf hjá lækninum og þetta batnar vonandi af þeim. Góðu fréttirnar eru að hún er miklu hressari í dag heldur en hún var í gær. Var aftur orðin hitalaus snemma í morgun, en er samt ósköp slöpp, og hóstar mikið. Þetta er vonandi allt á réttri leið núna.
    | 1 ófeiminn |




    | 19.03.2004 @ 13:44 | bjorninn |
    Búinn að fá frest á skilum á skattframtalinu til 29. mars. Það er árviss viðburður hér að sækja um frest. Ætla nú samt að reyna að klára helvítið um helgina, en í ljósi fenginnar reynslu fannst mér rétta að sækja bara um frestinn strax.
    | 2 ófeimnir |




    | 18.03.2004 @ 21:02 | bjorninn |
    Bara snilld, Borgarholtsskóli var að flengja MR-inga í Gettu Betur.
    | 2 ófeimnir |




    | 18.03.2004 @ 09:43 | bjorninn |
    Allir saman nú, skrifa undir þetta!
    | 1 ófeiminn |




    | 16.03.2004 @ 17:14 | bjorninn |
    Ég er að hugsa um að læra á gítar og stofna gítarskóla. Ég er nefnilega búinn að komast að því, að það er greinilega hægt að græða á því. 8 vikna námskeið í ónefndum gítarskóla kostar 25 þúsund spírur. Á námskeiðinu er kennt einu sinni í viku, í 40 mínútur í senn, og eru 10 nemendur í hverjum tíma. Þar af leiðandi, fær námskeiðshaldarinn, köllum hann bara Óla (alveg út í loftið), 250 þúsund spírur fyrir hvert námskeið sem hann heldur. Ef við gefum okkur að hann nenni að vinna 8 tíma á dag, þá hefur hann pláss fyrir 8 hópa á dag, með 20 mínútna pásu á milli. 8 hópar á dag, 5 daga vikunnar, gera 40 hópar á viku. 40 hópar á viku gefa okkur þá 10 milljónir (40*250.000) sem Óli getur rukkað inn á 8 vikna fresti. Það gera góðir hálsar: 60 milljónir á ári. Reynið svo að segja mér að tónlistarfólk þurfi að hafa það skítt á Íslandi. Reyndar verðum við nú að vera sanngjörn og gefa Óla kallinum sumarfrí, þannig að kannski eru þetta ekki nema skitnar 50 milljónir. Maður hefur greinilega ekki hugsað þetta til enda þegar maður hætti í Tónskóla Austur Skaftafellssýslu á sínum tíma. Versta helvítið er að ég tími ekki að borga Óla svona mikið fyrir kennsluna, þannig að ætli maður haldi ekki bara áfram að vera fátækur forritari.
    | 3 ófeimnir |




    | 16.03.2004 @ 00:41 | bjorninn |
    Veikindi í gangi hér á þessu heimili. Sunna Kristín er með 39 stiga hita og er voða slöpp greyið. Gísli Tjörvi er líka hálf slappur, en hefur samt ekki fengið mikinn hita ennþá. Sleppur vonandi bara við það, enda hraustmenni mikið eins og karl faðir hans, sem er búinn að vera að taka á Diffie-Hellmann í kvöld.
    | 3 ófeimnir |




    | 14.03.2004 @ 13:17 | bjorninn |
    Hvað er málið með allan æsinginn yfir þessari ræmu sem Mad Max var að gera? Vita menn ekki að þetta er lygasaga?
    | 2 ófeimnir |




    | 12.03.2004 @ 22:23 | bjorninn |
    Setti inn myndirnar sem Binni tók í steggjavitleysunni hans Bogga. Myndir af önglinum hans Haffa og svoleiðis rugl.
    | 3 ófeimnir |




    | 08.03.2004 @ 10:43 | bjorninn |
    Hún á afmæli í dag.
    Hún á afmæli í dag.
    Hún á afmæli hún Hrafnhildur.
    Hún á afmæli í dag.

    | 7 ófeimnir |




    | 07.03.2004 @ 17:46 | bjorninn |
    Til hamingju með gærdaginn Steini. Þú verður þess heiðurs aðnjótandi næstu 3 mánuði að vera jafngamall meistaranum (mér). Eins gott að njóta þess meðan það varir. Það var tekið hressilega á því hér um helgina. Við strákarnir fórum með Bogga í "óvænta" "óvissuferð" svona í tilefni af því að hann er að fara að giftast henni Örnu. Kom reyndar í ljós að ferðin var hvorki óvænt, né út í óvissuna, þar sem kokkurinn var búinn að reikna þetta allt saman út fyrirfram með hjálp góðra manna. En það þýddi ekki að láta það á sig fá, og var haldið í sjóstangveiði út á Faxaflóa. Ferðin endaði reyndar snögglega, af því að sumir voru svo sniðugir að festa öngulinn svo verklega í puttanum á sér að það þurfti að stíma með þá beinustu leið í land, og bruna með þá upp á slysó. Þið fáið vonandi að sjá krassandi myndir af gjörningnum hér á síðunni á næstu dögum. Held reyndar að hann hafi verið svo sjóveikur greyið að hann hafi gripið til þessara örþrifaráða til að komast í land. Fyrst sjóferðin endaði svo snögglega var að sjálfsögðu gert það eina rétta í stöðunni, það er dottið hressilega í það, með tilheyrandi slappleika í dag.
    | 3 ófeimnir |




    | 05.03.2004 @ 21:42 | bjorninn |
    PixiesVar að heyra núna rétt í þessu ansi hreint magnaðar fréttir. Pixies eru á leiðinni til Íslands. Já, Pixies eru á leiðinni. Þeir ætla að halda tónleika hér á klakanum þann 26. maí. Maður er að sjálfsögðu strax búinn að taka daginn frá. Það er þá líka eins gott að maður fái miða. Þetta er náttúrulega tær snilld, og eitthvað betra en helvítis KoRn viðbjóðurinn sem ætlar að spila hér á svipuðum tíma. Allir á Pixies! Maður situr hér heima og hefur ekki hugmynd um hvað maður á af sér að gera. Það er ekki neitt skilaverkefni sem er búið að setja fyrir í skólanum, ótrúlegt kæruleysi það í þessum kennurum. Held þetta hafi ekki gerst síðan í FAS. Hrafnhildur er í vinnunni, Sunna Kristín sofnuð, og Gísli Tjörvi fór í heimsókn á Flúðir, þar sem Amalía amma og Tjörvi afi eru í sumarbústað. Fór með Kollu og Palla á nýja bílnum. Skil ekkert í þeim að kaupa ekki bílinn af okkur frekar.
    | 2 ófeimnir |




    | 05.03.2004 @ 15:43 | bjorninn |
    Hver þarf ekki á einu svona að halda?
    | 2 ófeimnir |




    | 05.03.2004 @ 15:28 | bjorninn |
    Ætla að sækja um inngöngu í Félag áhugamanna um drifkúlur.
    | 1 ófeiminn |




    | 03.03.2004 @ 14:09 | bjorninn |
    Þá eru demókratarnir í Ameríku búnir að ákveða sig hver á að reyna að koma viðrininu frá völdum. Vonandi bara að það takist, allt skárra en runninn. Þessi Kerry gaur virðist nú samt óttalega slepjulegur eitthvað. Lítur út eins og fasteignasali.

    Við erum búin að kaupa okkur tveggja vikna ferð til Portúgal í sumar. Djöfuls veldi á liðinu. Reyndar á eftir að borga 70% af henni ennþá, og spurning hvernig maður fer að því. Bara fá sér nýtt kreditkort, e-kortið eða eitthvað. Maður fær víst svo mikið endurgreitt frá þeim að ég get örugglega borgað upp ferðina með þeim aurum og átt tugi þúsunda í afgang. Þetta hljómar allt svo vel í auglýsingunum. Svo var ég líka að fá bréf frá honum Oghenekewe Jite, þar sem hann bauð mér 30 prósent af 16,5 milljónum dala bara fyrir að fá að nota bankareikninginn minn. Ég kaupi bara Portúgal.

    Og Skarsig átti ammæli í gær, til hamingju með það gamli.
    | 6 ófeimnir |




    | 01.03.2004 @ 13:47 | bjorninn |
    BjórkrúsÍ dag er bjórdagurinn. Bjórinn á 15 ára afmæli í dag, því þann 1. mars 1989 var bjórinn leyfður hér á klakanum. Það var góður dagur. Man vel eftir fyrstu kippunni sem ég keypti mér. Það var að sjálfsögðu Heineken í flösku, af því Metallica drukku alltaf Heineken. Djöfuls andskotans vitleysa var það nú, að banna þvílíkan eðalmjöð. Hér eru svo leiðbeiningar um hvernig eigi að brugga sinn eigin bjór, svona til öryggis, ef Ögmundur J. skyldi komast í ríkisstjórn og banna bjórinn aftur. Kannski maður splæsi í eins og eina kippu í tilefni dagsins. Heineken í flösku. Hvernig væri það?
    | 12 ófeimnir |




    | 29.02.2004 @ 20:40 | bjorninn |
    Við erum komin heim til Reykjavíkur
    | 2 ófeimnir |




    | 26.02.2004 @ 01:34 | bjorninn |
    Halló. Hef ekkert nennt að skrifa hér síðustu daga. Búnir að vera ansi leiðinlegir dagar. Hörður afi dó á laugardaginn síðasta, þann 21. febrúar. Við erum að fara á Hornafjörð á morgun, ætlum að fara í jarðarförina sem verður á laugardaginn.

    Líka búið að vera nóg að gera í skólanum. Var að skila verkefni núna áðan, sem var ógurlegt klúður, gengur bara betur næst. Ég var að bæta inn nýjum myndum á myndasíðuna. Þar eru alls konar myndir frá því í janúar og febrúar, og svo eru myndir frá því í dag, öskudag. Gísli Tjörvi og Sunna Kristín fóru í bæinn með Eiði og Birki, að vinna sér inn nammi. Hrafnhildur og Kolla stjórnuðu verkinu.
    | 1 ófeiminn |




    | 20.02.2004 @ 23:06 | bjorninn |
    Gísli Tjörvi langbesti er kominn með sína eigin ótrúlega flottu pottþéttu ofursíðu! Kíkið á hana!
    | 1 ófeiminn |




    | 20.02.2004 @ 17:17 | bjorninn |
    Komið helgarfrí, eða kannski ekki. Nóg að læra um helgina, jakk.
    | 2 ófeimnir |




    | 18.02.2004 @ 14:20 | bjorninn |
    Af hverju er þetta alltaf svona? Allt klikkar á sama tíma? Fór með bílinn í skoðun í morgun, og þá kom í ljós að það þarf að skipta um spindilkúlur, og hann fékk því grænan miða greyið, og þarf að koma aftur þegar búið er að skipta um kúlurnar. Ætli það verði ekki eins og síðasta viðgerð, sem var fyrir viku btw, sem átti bara að vera mjög fljótlegt og einfalt, að skipta um eina öxulhosu, en þurfti svo að skipta um allan öxulliðinn, og endaði í 50 þúsund kalli, plús bílaleigubíl í viku, grenj. Svo til að toppa þetta allt saman er ryksugan ónýt.
    | 10 ófeimnir |




    | 17.02.2004 @ 15:09 | bjorninn |
    10 verstu plötu coverin? Þau eru a.m.k. verulega slæm.
    | 2 ófeimnir |




    | 13.02.2004 @ 21:12 | bjorninn |
    Jæja þá er bíllinn kominn úr viðgerð, þetta kostaði ekki nema lítinn 50 þúsund kall. Mann munar nú ekkert um það. En það er nauðsynlegt að eiga bíl, því það er stórhættulegt að ferðast með strætó. Fór með gripinn í þvott og bón í tilefni dagsins, fyrst maður var byrjaður að eyða í hann á annað borð.
    | 7 ófeimnir |




    | 12.02.2004 @ 15:15 | bjorninn |
    Ef einhver vill eiga græna Hondu má hann sækja hana á Bílaverkstæði Frikka Óla. Verst að hann kemst ekki langt á henni. Hún er búin að vera þar síðan í síðustu viku með ónýtan öxullið, og að sjálfsögðu er ekki til réttur varahlutur í landinu, hann á nú samt "vonandi" að koma á morgun. Við ökum um á Opel Astra bílaleigubíl núna, og það er sú mesta drusla sem ég hef sest undir stýri á. Helvítis hjólreiðafríkin tæta glottandi fram úr manni, um allar götur, þó maður botnstígi kvikindið. Elli litli (ætli hann sé ekki orðinn stærri en ég núna) mágur er kominn með síðu hér. Annars ekkert merkilegt að frétta, nema ég kann að spila Þyrnirós, og Fljúga hvítu fiðrildin á gítar. Á samt eftir að láta Gísla kenna mér það sem hann lærði í síðasta tíma. Djöfull er maður góður.
    | 8 ófeimnir |




    | 09.02.2004 @ 10:05 | bjorninn |
    Undur og stórmerki gerðust í gær. Björninn lagði leið sína í kvikmyndahús. Á slíkan stað hefur hann ekki komið síðan árið 2000 þegar hann fór að sjá hina stórgóðu American Beauty. Í þetta sinn var það prýðismynd sem kölluð er The Lord of the Rings: The Return of the King sem dró björninn í þessa menningarstofnun. Þar sem ég veit að fæstir hafa uppgötvað þessa mynd er mælt með að allir flykkist nú í bíó og horfi á ræmuna. Hef ákveðið að gefa öllum myndum sem ég fer á í kvikmyndahúsum birni á skalanum núll til tíu, þar sem núll er verst og tíu er best. Þessi fær átta og hálfan björn af tíu mögulegum, hefði fengið níu ef þeir hefðu verið aðeins graðari með skærin á væmna kaflann í lokinn. Nú getið þið farið að bíða spennt eftir næstu bjarnagjöf, sem er á áætlun árið 2008.
    | 2 ófeimnir |




    | 07.02.2004 @ 22:20 | bjorninn |
    Ég veit hvað ég ætla EKKI að horfa á í sjónvarpinu!
    | 9 ófeimnir |




    | 03.02.2004 @ 16:57 | bjorninn |
    Var að sjá þessa mynd af túttunni á Janet. Hana hefur bara langað að sýna öllum nýja skrautið sitt. Fínasta tútta annars, fínasta skraut.
    | 5 ófeimnir |




    | 03.02.2004 @ 16:27 | bjorninn |
    Hvaða gítargrip skyldi ég læra í dag? Gísli Tjörvi er í gítarskólanum, að læra eitthvað skemmtilegt, og við Hrafnhildur látum hann kenna okkur þegar hann kemur heim. Nóg að gera hjá Gísla. Við erum búin að læra eitt grip, G, þannig að sennilega kemur C-ið næst. Rakst inn á fréttavefinn Gagnauga, þar sem hægt er að fá aðeins annað ljós á heimsfréttirnar heldur en þegar búið er að matreiða þær ofan í almúgann af stóru fréttastofunum. Svo frétti ég líka að Hafrún litla systir er með síðu hér og er búin að vera lengi. Svona eru nú samskiptin mikil hjá famelíunni.
    | 1 ófeiminn |




    | 03.02.2004 @ 09:07 | bjorninn |
    Það var eins gott að útsendingu frá Eddu verðlaununum var ekki sjónvarpað í Ameríku. Kaninn væri sjálfsagt ekki enn búinn að jafna sig á Diddu.
    | 1 ófeiminn |




    | 02.02.2004 @ 13:15 | bjorninn |
    Sit hér í vinnunni í hitastigi við frostmark. Magnað að þessir kofar hér í Hlíðasmáranum skuli ekki enn vera foknir um koll. Það blæs og rignir inn í þetta, og þessir örfáu pínulitlu ofnar hafa ekki við að kynda þetta upp ef hitastigið dettur niður fyrir 15 gráður. Maður er að keppast við að halda á sér hita með því að drekka sjóðandi heitt Swiss Miss. Það er samt ekki nóg á svona dögum, vantar Romm eða Stroh til að bæta út í.
    | 4 ófeimnir |




    | 30.01.2004 @ 22:23 | bjorninn |
    Ég var að bæta inn myndum af Gísla Tjörva frá því hann fór í myndatöku fyrir jólin 1999. Þetta eru ótrúlega flottar myndir af þessum ótrúlega flotta strák. Sjáið bara sjálf!
    | 2 ófeimnir |




    | 30.01.2004 @ 09:59 | bjorninn |
    Ætla ekki allir að styðja Ástþór?
    | 3 ófeimnir |




    | 28.01.2004 @ 11:46 | bjorninn |
    Þeir á Reykjanesi eru svo hrifnir af kananum að þeir virðast gera allt til að verða sem amerískastir. Þeir vilja ríghalda í ófögnuðinn herstöðina, og virðast hafa stríðsæsingamennina í ríkisstjórninni í liði með sér að reyna að telja okkur hinum trú um að stórhætta sé á innrás frá Norður Kóreu, eða Osama ákveði að ræna Dornier frá Íslandsflugi og fljúga honum á hús verslunarinnar, ef kanahyskið fer. Eina íþróttin sem menn kunna á þessum ljótasta stað landsins er körfubolti. Kalli Bjarni (Charlie Brown) Ædol"stjarna" er úr Grindavík. En nú eru þeir algjörlega búnir að toppa sig með þessum ófögnuði hér. Eru engin takmörk fyrir því hvað menn geta verið ósmekklegir? Er ekki hægt að finna leið til að grafa Reykjanesið bara frá landinu og draga það til síns heima, Ameríku? Bara, ekki skilja stafina eftir.
    | 5 ófeimnir |




    | 28.01.2004 @ 09:07 | bjorninn |
    Gleymdi að segja frá því í gær, að Sissa amma í Ólafsvík átti afmæli þá. Til hamingju með daginn í gær amma!
    | 2 ófeimnir |




    | 28.01.2004 @ 00:48 | bjorninn |
    Gísli Tjörvi snillingur var að fá vitnisburðinn sinn fyrir haustönnina núna í dag. Skemmst frá því að segja að hann stóð sig eins og hetja eins og hans er von og vísa. Svo var hann líka að byrja á gítarnámskeiði í gær, og fannst það rosa skemmtilegt. Okkur Hrafnhildi finnst það líka rosa gaman, en hann kennir okkur svo það sem hann lærir þegar hann kemur heim. Verðum öll orðin gítarhetjur eftir tvo mánuði.
    | 4 ófeimnir |




    | 27.01.2004 @ 08:42 | bjorninn |
    Alltaf einhver skemmtilega námskeið í boði einhvers staðar. Símenntun er málið í dag.
    | 3 ófeimnir |




    | 26.01.2004 @ 22:08 | bjorninn |
    Birkir Tjörvi á 7 ára afmæli í dag, en við vorum einmitt í rosa veislu hjá honum í gær. Til hamingju með daginn! Er að rembast við að forrita LinuxMastermind miðlara og biðlara í Dreifðum Kerfum í skólanum. Gríðarstemning það, og gengur þokkalega. Við áttum einhvern tímann svona spil, hvað skyldi hafa orðið um það?
    | 5 ófeimnir |




    | 26.01.2004 @ 01:44 | bjorninn |
    Handbolti er leiðinleg íþrótt. Allavega í dag. Var að bæta inn nýjum myndum á myndasíðuna. Vorum í 7 ára afmæli hjá Birki Tjörva í dag. Þar var rosa fjör, fullt af strákum, og svo náttúrulega tertur og svoleiðis. Þannig að ekki grenntist maður í dag.
    | 4 ófeimnir |




    | 24.01.2004 @ 00:20 | bjorninn |
    Skíttöpuðum fyrir Ungverjum, og ekki orð um það meir!
    | Verið ófeimin! |




    | 23.01.2004 @ 16:38 | bjorninn |
    Kanarnir tóku sig saman í andlitinu og löguðu hjá sér kommentakerfið eftir að ég benti þeim kurteislega á að það væri í ólagi. Þannig að nú líður mér mun betur. Sunna Kristín er orðin rosa dugleg að labba, nánast farin að hlaupa um alla íbúð. Best að halda áfram að vinna svo maður komist heim að horfa á handboltann. En djöfull létum við Slóvena rassskella okkur í gærkvöldi. Tökum bara Ungverjana í vinstri nösina í staðinn á eftir. Later...
    | Verið ófeimin! |




    | 22.01.2004 @ 16:15 | bjorninn |
    Djöfull hefði verið gaman að vera þarna.
    | 4 ófeimnir |




    | 20.01.2004 @ 23:49 | bjorninn |
    Ég er alveg að verða sturlaður! Ég hef ekki getað kommentað á síðunni hjá ameríkönunum í fleiri daga, og færslurnar sem á eftir að kommenta á hrannast upp. Kommentakerfið virkar ekki hjá þér verkfræðingslufsan þín, reyndu að koma því í lag. Greinilegt að þetta er eins og mig grunaði, verkfræði er gjörsamlega gagnslaus menntun!
    | 8 ófeimnir |




    | 18.01.2004 @ 23:56 | bjorninn |
    Mig langar í svona, eða þó það væri ekki nema svona. Allt fínt að frétta annars. Sunna Kristín er komin með 7 tennur, 4 uppi og 3 niðri. Svo er hún líka alltaf að verða hugrakkari og hugrakkari í labbinu, er m.a. farin að labba með alla bangsana, og nýju dúkkuna um alla íbúð í vöggunni. Þið fáið kannski að sjá myndir af því bráðum (alltaf að lofa einhverjum myndum sem koma svo seint og um síðir). Ég er bara að bíða eftir að Hrafnhildur komi heim af kvöldvakt, svo ég geti skriðið með henni upp í ból. Góða nótt.
    | 2 ófeimnir |




    | 17.01.2004 @ 11:49 | bjorninn |
    Allt á kafi í snjó og viðbjóði.
    | 2 ófeimnir |




    | 16.01.2004 @ 09:23 | bjorninn |
    Hvert stórmennið á fætur öðru á afmæli þessa dagana. Martin Luther King hefði orðið 75 ára í gær, hefði honum endst aldur. Hann var myrtur 1968. Ótrúlegt að það sé svona stutt síðan hann var að berjast fyrir málstaðnum. Annar merkilegur maður á afmæli í dag. Það er hann Pétur Björn Heimisson svili. Til hamingju með daginn Pétur, og hafið það gott í pottinum ;o)
    | Verið ófeimin! |




    | 10.01.2004 @ 16:43 | bjorninn |
    Var að bæta inn fleiri jóla og áramótamyndum. Allt gott að frétta af okkur. Sunna Kristín er eitthvað farin að færa sig upp á skaftið í göngutilburðum. Hún hefur alveg harðneitað að labba sjálf hingað til, fyrir utan þegar hún tók fyrstu skrefin fyrir töluverðu síðan, vill bara láta leiða sig. En í gær prófaði hún að sleppa og labbaði nokkur skref. Fannst hún rosa klár og er búinn að vera að prófa sig áfram í gær og dag. Verður örugglega farin að hlaupa um allt fljótlega. Gísli Tjörvi er að fara að byrja í gítarskóla síðar í mánuðinum, og hlakkar rosa til. Skólinn byrjaður aftur á fullu, og gleðin sem fylgir honum.

    Fín grein í Fréttablaðinu í dag eftir Hallgrím Helgason, þar sem hann skýtur föstum skotum að Dabba og félögum. Honum hefur greinilega þótt gaman á teppinu hjá Dabba kóngi, og vill komast í aðra heimsókn til hans. Gott mál að einhverjir skuli enn standa uppi í hárinu á hinum hárfagra offorsætisráðherra.
    | 5 ófeimnir |




    | 09.01.2004 @ 10:07 | bjorninn |
    Þá er björninn loksins kominn með sitt eigið lén. www.bjorninn.net er og verður málið héðan í frá. Uppfærið bókarmerkin ykkar! Það er enginn alvöru töffari nema hann eigi lén.
    | 3 ófeimnir |




    | 08.01.2004 @ 15:10 | bjorninn |
    Muna ekki allir eftir Súkkó? Gosinu með súkkulaðibragðinu sem var framleitt af einhverjum vitleysingum hér heima fyrir ca 20 árum. Ég hélt að það hefði verið megnasti viðbjóður. Það var greinilega rangur misskilningur!
    | 4 ófeimnir |




    | 07.01.2004 @ 16:12 | bjorninn |
    Getur greinilega borgað sig að vera giftur Britney, þó í stuttan tíma sé. Ég verð þó að hryggja hana með því að ég er genginn út. Og Heiða, alveg róleg, myndirnar fara alveg að koma.
    | Verið ófeimin! |




    | 03.01.2004 @ 23:57 | bjorninn |
    Setti inn nýjar myndir á myndasíðuna. Þetta eru myndir frá því fyrir jól og svo fyrsti skammtur af jólamyndum. Það eiga svo eftir að koma fleiri jólamyndir fljótlega.
    | 4 ófeimnir |




    | 02.01.2004 @ 11:06 | bjorninn |
    Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!

    Hvernig er það, er Skari Skrípó eini maðurinn sem er treystandi til að gera almennilegt áramótaskaup? Held ég hafi sjaldan hlegið jafn lítið yfir áramótaskaupi. Fyrir utan það voru áramótin fín. Enda voru 15 stórskemmtilegar manneskjur saman komnar heima á gamlárskvöld, þannig að skaupið var nú ekki látið eyðileggja stemninguna, ónei. Etnir voru 2 kalkúnar, fylltir með alls konar góðgæti. Með þeim voru tvenns konar kartöflur, sætar steiktar kartöflur, kryddaðar með timian, og þessar gömlu góðu sykurbrúnuðu. Svo var útbúið waldorf salat, trönuberjasulta bætt með grand og smá koníaki, sykurbrúnaðar rófur og sitthvað fleira. Öllu saman skolað niður með Fetzer Merlot rauðvíni frá Kaliforníu. Eftir að hafa horft á þessa hörmung sem var kölluð áramótaskaup, voru sprengd um 100 kíló af púðri sem gekk stóráfallalaust, þrátt fyrir að fulli kallinn í næsta stigagangi hafi margsinnis reynt að drepa alla viðstadda með því að festa raketturnar sínar svo vel í snjóskaflana að þær sprungu allar á jörðu niðri. Eftir sprengingarnar var etinn heimatilbúinn súkkulaði og Amarula ís a la Hrafnhildur, og ógurleg kókosbolluterta a la Kolla, drukkið öl og koníak og sitthvað fleira, fram á nótt.
    | 4 ófeimnir |




    | 30.12.2003 @ 13:53 | bjorninn |
    Við erum komin aftur til Reykjavíkur eftir fína ferð á Hornafjörð. Er í vinnunni núna, er svo að fara að sækja kalkúninn á eftir, og kaupa allt sem við á að éta. Svo fer maður í að undirbúa skepnuna og meðlætið í kvöld. Amalía, Tjörvi, Elías, Kolla, Palli, Eiður, Birkir, Heiða, Pétur, Toggi og Chloé verða hjá okkur annað kvöld, í mat og sprengjum. Maður er kominn með eina risatertu og eitthvað fleira drasl til að kveikja í, þannig að það er allt að verða klárt.
    | 2 ófeimnir |




    | 26.12.2003 @ 01:09 | bjorninn |
    Gleðileg Jól!
    | 3 ófeimnir |




    | 23.12.2003 @ 23:47 | bjorninn |
    Erum komin í sveitasæluna á Hornafirði. Brunuðum austur í dag, á undan veðrinu. Smá hálka á leiðinni, en ekkert sem nýju 40.000 króna vetrardekkin réðu ekki við. Búið að gúffa í sig þessari fínu skötu, allt eins og það á að vera. Svo eru það bara jólin á morgun...
    | 1 ófeiminn |




    | 22.12.2003 @ 10:30 | bjorninn |
    Ég náði fjandans fallaforrituninni, þannig að maður getur lesið eitthvað skemmtilegt um jólin :o) Búið að vera nóg að gera síðustu daga, kaupa jólagjafir og svoleiðis. Keypti meira að segja eina jólagjöf handa sjálfum mér í gær, frá vinnunni. Keypti mér 8 geisladiska. Held maður hafi aldrei keypt jafn marga diska í einu, hlustaði á 2 í gærkvöldi, 6 eftir, hlakka til að koma heim á eftir og halda áfram. Freyja og Gummi komu í heimsókn til okkar í gærkvöldi. Þau eru í heimsókn á klakanum yfir jólin, gaman að hitta þau eftir allan þennan tíma. Erum svo að fara austur á Höbbn í Hoddnafirði á morgun. Ætlum að reyna að leggja snemma af stað svo maður nái pottþétt í þorláksmessuskötuna á Smárabraut. Samt ýmislegt eftir að gera áður...
    | 2 ófeimnir |




    | 18.12.2003 @ 11:56 | bjorninn |
    Ég er kominn í jólafrí í skólanum!!!!! Djöfuls snilld er það, búinn með prófið í Fallaforritunarmálum, sem er hérumbil leiðinlegasti áfangi sem ég hef nokkurn tímann setið í. Vonandi bara að maður hafi náð þessu helvíti, svo maður þurfi ekki að lesa þennan ófögnuð um jólin. Ef þið sjáið einhvers staðar ummerki eða heyrið talað um Typed Lambda Calculus, þá skuluð þið hlaupa eins og andskotinn sé á hælunum á ykkur, og aldrei líta til baka.
    | 2 ófeimnir |




    | 16.12.2003 @ 12:16 | bjorninn |
    Allt gott að frétta af okkur. Við Hrafnhildur fórum á jólahlaðborð með vinnunni minni á laugardaginn. Fórum á Þingvelli, á Hótel Valhöll, borðuðum þar og gistum. Mikið etið og drukkið. Spiluðum síðan actionary langt fram á nótt, og vakti það mikla öfund annarra hótelgesta sem sáu hvað við vorum skemmtileg, sumir þeirra fóru meira að segja að grenja og voru óhuggandi langt fram eftir morgni. Vöknuðum hress á sunnadaginn, fórum í gönguferð um Þingvelli sem voru fallegir í snjónum. Fórum svo heim og hittum Gísla Tjörva og Sunnu Kristínu, en Kolla passaði þau meðan við vorum að hafa það gott. Bökuðum svo skúffuköku í nýja ofninum sem við vorum að fá á föstudaginn síðasta. Ég var í síðasta tímanum í skólanum þessa önnina í morgun. Fer svo í próf á fimmtudaginn, og svo pása fram yfir jól. Það verður ljúft.
    | 3 ófeimnir |




    | 11.12.2003 @ 12:02 | bjorninn |
    Muse voru MAGNAÐIR!
    | 4 ófeimnir |




    | 10.12.2003 @ 14:38 | bjorninn |
    Er heima með Sunnu Kristínu og Hrafnhildur er að vinna. Var að setja Sunnu Kristínu út að lúlla í vagninum, og er að bíða eftir að Gísli Tjörvi komi heim úr skólanum. Við Hrafnhildur erum svo að fara á MUSE tónleikana í kvöld, íííhaa. Hafrún systir og Björgvin ætla að passa fyrir okkur á meðan, þau hafa gott af því að æfa sig svolítið.

    Við erum búin að ákveða að fara til Hornafjarðar um jólin. Ætlum að fara austur á Þorláksmessu, og komum sennilega aftur í bæinn þann 27. des. Það verður nú ekki leiðinlegt.
    | 4 ófeimnir |




    | 07.12.2003 @ 14:11 | bjorninn |
    Hvað er í gangi? Það var brotist inn í bílinn okkar í nótt! Hann stóð í mesta sakleysi fyrir utan Lansann, þar sem Hrafnhildur var á næturvakt. Ekki nóg með það, heldur var líka einhver gutti að sniglast fyrir utan bílana hér fyrir utan blokkina okkar í morgun. Það sást til hans og hann hljóp í burtu áður en hann hafði nokkuð upp úr krafsinu. Honum lá meira að segja svo á, að hann skildi verkfæratöskuna sína eftir, fulla af tólum til að nota við innbrotin. Gott á helvítið!
    | 6 ófeimnir |




    | 03.12.2003 @ 11:39 | bjorninn |
    Allt gott að frétta af okkur. Fórum með Gísla Tjörva og Sunnu Kristínu til Björns Árdal ofnæmislæknis á mánudaginn. Þau eru bæði rosa spræk. Gísli Tjörvi í fínu standi, og Sunna Kristín ekki með neitt ofnæmi. Góðar fréttir það. Nóg að gera í vinnunni og skólanum þessa dagana. Svo er bara vika í MUSE tónleikana.
    | 3 ófeimnir |




    | 27.11.2003 @ 21:34 | bjorninn |
    Fór að láta setja vetrardekkin undir bílinn núna í dag. Ákvað að gera það svona áður en maður fattar allt í einu að það sé komið vor. Held að bestu sölumenn landsins séu andskotarnir sem vinna á dekkjaverkstæðunum. Það er sama hvað maður er ákveðinn í að maður ætli að setja gömlu dekkin undir, þessum djöflum tekst alltaf að sannfæra mann um að þau séu handónýt og maður verði að kaupa ný dekk. Svo fer maður ógurlega ánægður út á nýju dekkjunum, 40.000 kalli fátækari og fattar þá, að enn hafi maður verið tekinn lítt smurður í sparigatið. Í dag á ég semsagt spánný vetrardekk. Hebbi kemst ekki með tærnar þar sem michelin mennirnir hafa hælana.
    | 5 ófeimnir |




    | 24.11.2003 @ 23:36 | bjorninn |
    Prófið búið og gekk bara fínt. Var að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna, meðal annars myndir úr afmælisveislunni hennar Sunnu Kristínar. Jón Arnór ætti kannski að prófa þetta og athuga hvort það dugar til að komast í liðið.
    | 5 ófeimnir |




    | 23.11.2003 @ 12:33 | bjorninn |
    Próf á morgun í Forritunarmálum. Gríðarstemning það. Gísli Tjörvi var í samræmdum prófum í stærðfræði og íslensku um daginn, og fékk fínar einkunnir út úr þeim. Ég verð vonandi jafn seigur á morgun. Tjörvi á afmæli í dag, til hamingju með daginn Tjörvi!
    | 4 ófeimnir |




    | 21.11.2003 @ 16:40 | bjorninn |
    Ætli Dabbi sé búinn að naga af sér handarbökin út af einkavæðingaræðinu sínu. Gott á hann.
    | 3 ófeimnir |




    | 18.11.2003 @ 22:15 | bjorninn |
    Sunna Kristín var í 12 mánaða skoðun núna í dag. Það gekk bara rosa vel, hún stóð sig eins og hetja, og Jóhönnu leist voða vel á hana. Hún er orðin 74 sentimetrar og 9160 grömm. Svo fékk hún líka sprautu og allt, engin miskunn.
    | 7 ófeimnir |




    | 17.11.2003 @ 16:32 | bjorninn |
    Sunna Kristín var að taka fyrstu skrefin alveg sjálf. Húrra, húrra, húrra! Klikkaði aðeins á deginum, ætlaði að gera þetta í gær, á fyrsta afmælisdaginn sinn, alveg eins og stóri bróðir, en gleymdi því bara.
    | 3 ófeimnir |




    | 17.11.2003 @ 10:51 | bjorninn |
    Sunna Kristín átti eins árs afmæli í gær. Tíminn er ótrúlega fljótur að líða, eins og það hafi verið í gær sem við komum með hana heim glænýja. Það var rosa gaman í afmælisveislunni, kom fullt af fólki. Amalía amma, Tjörvi afi og Elías frændi komu, þau voru í sumbarbústað á Flúðum um helgina, og renndu að sjálfsögðu í bæinn í svona stórafmæli. Síðan komu Hafrún og Björgvin, Kolla, Palli, Eiður og Birkir, Heiða og Pétur, Arna, Boggi og Óskar, og Arney, Gísli, Arnþór og Diljá. Það koma örugglega myndir bráðum úr veislunni. Var að fá spánýja, ótrúlega flotta potta og pönnur núna áðan, hlakkar mikið til að fara heim og elda eitthvað í þeim í kvöldmatinn. Hvað ætti maður að elda gott? Einhverjar tillögur?
    | 1 ófeiminn |




    | 14.11.2003 @ 09:16 | bjorninn |
    /********* ÉG Á MIÐA Á MUSE **********/
    | 8 ófeimnir |




    | 12.11.2003 @ 14:30 | bjorninn |
    Er að fara að skila síðasta verkefninu á þessari önn...vúúhaa. Það er Prolog verkefni í Forritunarmálum, en koma samt engar nornir við sögu. Svo er próf eftir 12 daga, bara 1 próf á þessari önn. Fínt þegar það verður búið líka. Nú fer maður bara heim að sinna konu og börnum.
    | 4 ófeimnir |




    | 11.11.2003 @ 10:10 | bjorninn |
    Í tilefni af því að ég var að uppgötva hversu magnað forritunarmál ProLog er, er hérna sönnun þess (útfærð í ProLog að sjálfsögðu) að kvenmaður séu norn ef hún er jafn þung og önd. Stuðst var við röksemdafærslur Sir Bedevere úr myndinni Monty Python and the Holy Grail, sem er mjög áreiðanleg heimild.

    ---------------------------

    witch(X) :- burns(X), female(X).
    burns(X) :- wooden(X).
    wooden(X) :- floats(X).
    floats(X) :- sameweight(duck, X).

    female(girl). {by observation}
    sameweight(duck,girl). {by experiment}

    ? witch(girl).
    -yes

    ---------------------------

    Augljóst! Ekki satt?
    | 9 ófeimnir |




    | 09.11.2003 @ 23:52 | bjorninn |
    Þá er hann Þorgrímur loksins búinn að fá hana Chloé sína til sín frá Belgíu. Hann kom til Reykjavíkur að sækja hana á flugvöllinn og þau gista hjá okkur á meðan þau eru í bænum. Fara sennilega austur á Hornafjörð á þriðjudaginn. Ég setti inn nýjar myndir á myndasíðuna, þar á meðal myndir af nýju tönnunum hennar Sunnu Kristínar, en þeirra hefur verið beðið með mikill eftirvæntingu síðustu daga. Er búinn að vera að gera gríðarhressandi verkefni í kvöld, en ætla núna að fara að leggja mig. Bið að heilsa.
    | 4 ófeimnir |




    | 07.11.2003 @ 19:51 | bjorninn |
    Hrafnhildur er byrjuð að vinna aftur eftir fæðingarorlofið. Hún er á kvöldvakt núna, og var líka á kvöldvakt í gær. Sunna Kristín er komin með 2 tennur í efri góminn líka, á móti þessum í neðri góm, samtals 4 tennur. Hún er líka farin að geta bitið FAST núna. Farið að styttast í próf hjá mér. Fer bara í eitt próf núna, maður var svo sniðugur að velja sér einn próflausan kúrs. Það hefur reyndar verið nóg af verkefnavinnu í staðinn. En það er að verða búið, á að skila síðasta verkefninu á mánudaginn í þeim kúrs, og svo annað á miðvikudaginn í Forritunarmálum.
    | 3 ófeimnir |




    | 05.11.2003 @ 10:11 | bjorninn |
    Snjórinn er allur farinn, komin þessi fína rigning í staðinn og hlýtt og gott úti. Miklu hornfirðskara (hvernig skrifar maður þetta orð eiginlega) veður, allt annað líf. Tjörvi er búinn að vera í heimsókn hjá okkur frá því á mánudaginn, var á einhverju Linux námskeiði í Háskólanum. Hrafnhildur er svo að byrja að vinna aftur á morgun eftir fæðingarorlofið. Byrjar að vinna hálfa vinnu, og ég verð í hálfri vinnu líka núna í nóvember og desember, á einn mánuð eftir af fæðingarorlofinu mínu. Þannig að Sunna Kristín þarf ekki að fara til dagmömmu strax a.m.k.
    | 1 ófeiminn |




    | 04.11.2003 @ 11:06 | bjorninn |
    Ég þarf greinilega að fara að setja upp gestabók, svo að Tiffany geti kvittað í hana eins og hún gerði í gestabókina hennar Kollu.
    | 1 ófeiminn |




    | 29.10.2003 @ 15:50 | bjorninn |
    AAAARRRRRGHHHHH!!! Það er snjór úti.
    | 5 ófeimnir |




    | 27.10.2003 @ 21:40 | bjorninn |
    Þær fréttir voru að berast í hús að Fáfnir Freyr frændi hafi verið að velta sér yfir á magann í fyrsta sinn. Þessari ætt virðast engin takmörk sett í snilldartöktum. Hann ætlar greinilega að verða duglegur eins og stóri frændi sinn.
    | 4 ófeimnir |




    | 27.10.2003 @ 01:18 | bjorninn |
    Var að henda inn nokkrum nýjum myndum af þessari einstaklega fallegu fjölskyldu á myndasíðuna. Ekkert að frétta, gerðum lítið um helgina. Kíktum aðeins til Kollu og Palla á laugardaginn. Hrafnhildur og Sunna Kristín tóku smá rúnt upp á Skaga í dag, með Kollu, að heimsækja Döddu og nýju stelpuna hennar. Jú og svo tókst mér að sjá The Matrix í sjónvarpinu í gærkvöldi. Sofnaði yfir henni á sínum tíma þegar við tókum hana á spólu, og vakti það ómælda hneykslan annarra fjölskyldumeðlima. Tókst að halda mér vakandi yfir henni núna, ágætis ræma alveg, maður hefur allavega séð margar verri. Jæja, ég ætla að koma mér í koju, heyrumst.
    | 2 ófeimnir |




    | 24.10.2003 @ 09:46 | bjorninn |
    Var að fá þennan tölvupóst frá honum Rodrigo vini mínum. Spurning hvort maður slái ekki til og fá 12.500.000 dollara í sinn hlut.

    THE GENERAL MANAGER/CEO
    Sir, Your contact was given to me via a friend of mine that work with the Nigerian Export Promotion Council. Though the purpose of my search for a reliable partner abroad, was not disclose to this my friend, the purpose of my writing you is anchored on an impending sum of Fifty Million United States Dollars (USD50 Million) now lying in Central Bank of Nigeria (CBN) waiting to be transferred abroad.
    This money was gotten through a deliberate over-invoicing of a contract awarded to a foreign firm to expand the Kainji Termal Power Generating Station, Egbin Power Station and the Afam Power Station to increase the energy generation for the country and it's West African neighbours. Fortunately, I was made the Chairman of the vetting of the cost of the contract, in the course of the vetting, some of my colleagues agreed with me that the contract sum be inflated for our future mutual sharing after the actual contractors have been paid.
    Now, this contract was awarded since 1998-1999 and the contract has been successfully executed, completed and commissioned under the administration of immediate past military head of state, Gen. Abdulsalami Abubakar. The actual contractor has been paid leaving the over-invoiced sum of USD50 Million floating in the CBN. All we need therefore is a foreigner in whose name we can apply and transfer the above sum in his/her account for our mutual sharing. We, as civil servants, cannot come out openly to claim this money because it was foreigners that executed the contract in the first place. Remember, the nature of your job does not count in this instance.
    All we need from you is your company name, address, Telephone and fax numbers including cell phone number if any and your banking details such as your bank name, address, telephone/fax and your bank account number wherein this money will be transferred into. This transaction is 100% risk free if you keep it secret on your own side and will be concluded within 7 working days of receiving the above requested. 25% of the total sum will be your share for your assistance in providing your bank account and also your taking care of the local and international expenses that might be incurred, in the course of this transaction, 5% has been set aside for re-imbursement of any party that spends what in the course of the transaction while 70% of the total sum will be for us and will be left in your account till we resign and come over for you to advise us on a lucrative venture we will invest in your country.
    Therefore, if you are interested, do call me on the above telephone number to clarify you more and also, you can send the above required information through my email: rodrigohomman@gawab.com. As soon as I receive your call or email we will proceed immediately to procure the necessary approval for the release of the above sum into your account.
    I look forward to your reply soon.
    Yours faithfully, RODRIGO HOMMAN
    | 3 ófeimnir |




    | 20.10.2003 @ 23:57 | bjorninn |
    Hrafnhildur, Gísli Tjörvi og Sunna Kristín eru komin heim frá Hornafirði. Þau höfðu það rosa næs í menningunni fyrir austan, eins og við var að búast. Gott að vera búinn að fá þau aftur heim, var hálf tómlegt hér á meðan. Við fórum í foreldraviðtal til Bryndísar kennarans hans Gísla Tjörva í morgun, og að sjálfsögðu stendur hann sig eins og hetja í skólanum. Rúllar þessu upp með vinstri...
    | 4 ófeimnir |




    | 17.10.2003 @ 17:30 | bjorninn |
    Helgin komin. Er að fara í skólann og klára þetta fjandans Smalltalk verkefni. Hrafnhildur, Gísli Tjörvi og Sunna Kristín eru lögð af stað til Hornafjarðar með Heiðu Björku í heimsókn. Þau ætla að vera þar um helgina og hafa það gott. Svo átti ég alveg eftir að segja ykkur hvað Sunna Kristín er orðin ótrúlega dugleg að tala, hún er farin að segja fullt af orðum. Hún kann að segja mamma, pabbi, datt og súpa. Ótrúlegt undrabarn.
    | 7 ófeimnir |




    | 17.10.2003 @ 14:45 | bjorninn |
    Ef einhverjum hefur tekist að útfæra Mergesort í Smalltalk, má hann senda mér útfærsluna sína. arrrgggg...
    | 3 ófeimnir |




    | 13.10.2003 @ 20:54 | bjorninn |
    Nauðsynlegt er og gríðarhressandi að hlæja stundum að því hvað aðrir eru asnalegir. Í því skyni er mjög gott að skoða heimasíðuna hans Péturs Pan. Hún getur veitt ómælda gleði og hamingju þegar leiðindin virðast allt ætla að drepa.
    | 4 ófeimnir |




    | 13.10.2003 @ 15:50 | bjorninn |
    Við töpuðum fyrir Þjóðverjunum, en unnum samt, eins og alltaf. Gengur bara betur næst, eða kannski ekki. Tönnsla númer 2 hjá Sunnu Kristínu er komin við hliðina á númer 1 í neðri góm. Fer að geta bitið mann duglega hvað úr hverju. Annars er hún komin með eina kvefpestina enn greyið, með fullt af hori og öllu tilheyrandi. Aðrir eru bara nokkuð sprækir, ennþá a.m.k. 7,9,13
    | Verið ófeimin! |




    | 10.10.2003 @ 15:04 | bjorninn |
    Ekkert að frétta. Allir nokkuð sprækir bara. Gísli Tjörvi er að fara í samræmd próf í stærðfræði og íslensku í næstu viku. Það gengur örugglega vel hjá honum, enda afburða greindur drengurinn, eins og hann á kyn til. Ég verð örugglega í skólanum að gera skemmtilegt Smalltalk verkefni alla helgina. Það verður nú eitthvað fínt. Maður tekur sér nú samt tíma í að horfa á landsleikinn. Mæli með að allir sæki og hlusti á Baggalúts lagið til að komast í rétta skapið. Það er tær snilld. ÁFRAM ÍSLAND!!!
    | 3 ófeimnir |




    | 06.10.2003 @ 23:00 | bjorninn |
    Smalltalk defineClass: #Stack superclass: #{Core.Object} indexedType: #none private: false instanceVariableNames: 'contents ' classInstanceVariableNames: '' imports: '' category: 'Fmal-Examples‘
    | 8 ófeimnir |




    | 04.10.2003 @ 20:51 | bjorninn |
    Fór í golf í þessari massablíðu sem var í dag, og gekk bara helvíti illa. Enda er rúmur mánuður síðan ég fór síðast. Helvítis skóli alltaf, enginn tími fyrir golf, maður þarf greinilega að endurskoða forgangsröðunina svo maður komist meira í golf. Og Liverpool tapaði í dag sem er alltaf hressandi, hefðu samt mátt hanga á jafntefli þessir aular fyrst þeir voru að spila við Arsenal, en það er nátturulega til of mikils ætlast. Við unnum auðvitað leikinn okkar í dag 3-0. Skál fyrir því. Já og Nökkvi á afmæli í dag, skál aftur fyrir því! Til hamingju!
    | 1 ófeiminn |




    | 03.10.2003 @ 13:29 | bjorninn |
    Þá er prófið búið. Og það gekk bara helvíti vel. Spurning um að gera þetta oftar fyrir próf. Þaö er farið að styttast í helgarfríið. Amalía og Tjörvi eru að koma í bæinn um helgina, að kíkja á alla afkomendurna. Koma einhvern tímann í kvöld. Er að hugsa um að fara í golf um helgina ef það verður þokkalegt veður, svona áður en það fer að snjóa.
    | 5 ófeimnir |




    | 03.10.2003 @ 01:22 | bjorninn |
    björninn var orðinn leiður á læra undir prófið sem hann er að fara í á morgun, þannig að hann tók sig til og skrifaði svona commentakerfi. Endilega skrifið eitthvað skemmtilegt inn í kerfið. Það er gert með því að smella á hlekkinn sem er undir hverri blogg færslu. Það gætu alveg komið upp einhver vandamál, enda var þetta soðið saman í snarhasti. Á síðan eftir að bæta meiri virkni inn í þetta þegar ég hef tíma, eða þegar ég á ða vera að læra undir eitthvað annað próf :|
    | 8 ófeimnir |




    | 01.10.2003 @ 21:45 | bjorninn |
    Var að setja nýjar myndir á myndasíðuna. Þetta eru ýmsar myndir teknar í september. Ég ætla að fara að læra, miðannarpróf á föstudaginn :| Heyrumst!
    | 3 ófeimnir |




    | 01.10.2003 @ 17:00 | bjorninn |
    Menn og konur eru byrjuð að bögga mig ógurlega fyrir að vera ekki búinn að setja inn myndirnar sem ég var að lofa um daginn. Gaman að eiga svona fallega fjölskyldu að fólk skuli vera alveg miður sín yfir því að fá ekki nýjar myndir af henni reglulega. Ég skal setja myndirnar inn í kvöld, og hananú.
    | Verið ófeimin! |




    | 29.09.2003 @ 11:45 | bjorninn |
    Ýmislegt hefur gerst síðan ég skrifaði síðast. Amma og afi komu í mat til okkar, voru bara hress og kát. Þorgrímur kom í heimsókn og týndi bílnum okkar. Ekki spyrja mig hvernig það er hægt, en hann er einhvers staðar uppi í skýjunum þessa dagana strákurinn. Hann fékk semsagt bílinn lánaðan á miðvikudagskvöldið síðasta, og ætlaði að skila honum fyrir utan blokkina þegar hann væri búinn að nota hann. Þegar ég vaknaði svo og ætlaði að fara í skólann og vinnuna var enginn bíll fyrir utan! Hrafnhildur hringdi í kappann sem sór og sárt við lagði að hann hefði skilað bílnum fyrir utan blokkina og læst honum. Upphófst þá mikil leit að bílnum sem endaði með því að bíllinn fannst þremur blokkum neðar í götunni. Þess má svo til gamans geta að blokkin okkar er dökkblá að lit en hin blokkin hvít. En allt er gott sem endar vel. Hrafnhildur fór svo með Örnu og Evu á tónleika með 200.000 naglbítum á föstudagskvöldið, voru nokkuð þéttir leikar skilst mér. Um helgina var svosem ekki mikið gert. Legið í leti, eitthvað aðeins lært, og farið í labbitúr í góða veðrinu í gær. Svo komu líka Eiður og Birkir í heimsókn til Gísla Tjörva á laugardaginn. Það gætu farið að koma nýjar myndir bráðum, kortið í myndavélinni er orðið fullt og þarfnast aftöppunar, þannig að fylgist með...
    | Verið ófeimin! |




    | 24.09.2003 @ 12:27 | bjorninn |
    Íris, Nökkvi og company, og Hafrún og Björgvin, komu og borðuðu með okkur á mánudagskvöldið. Það var gaman að sjá allt fólkið. Fáfnir Freyr hefur stækkað heilmikið síðan við sáum hann síðast, enda orðið ansi langt síðan. Hörður afi og Helga amma ætla svo að koma til okkar í kjötsúpu í kvöld, en við höfum ekkert séð þau heldur síðan á Hátíð á Höfn. Er orðinn svangur af að hugsa um kjötsúpuna, svo ég ætla að fara að fá mér eitthvað að eta. Heyrumstumstum.
    | Verið ófeimin! |




    | 22.09.2003 @ 09:36 | bjorninn |
    Jæja, það eru allir að verða bara nokkuð hressir á heimilinu. Enda er þetta orðið alveg ágætt. Sunna Kristín er orðin allt önnur manneskja, leikur við hvern sinn fingur. Helgin var ofurróleg. Það var ekki gert handtak. Enda var svona veður sem maður á bara að vera inni og lesa blöðin og drekka kaffi, helst undir sæng. Og djöfuls skítakuldi var í morgun. Held að haustið sé komið fyrir alvöru. Maður þarf að fara að grafa upp Rússahúfuna góðu.
    | Verið ófeimin! |




    | 18.09.2003 @ 22:44 | bjorninn |
    Sjúkrasagan heldur áfram. Sunna Kristín var öll orðin rauðflekkótt seinni partinn í dag, svo við fórum með hana til læknisins. Hann sagði okkur að hún væri komin með mislingabróðir. Hann er ekkert alvarlegur, og þetta á að vera búið eftir 2-3 daga sagði hann. Við hlökkum mikið til ;o)
    | Verið ófeimin! |




    | 18.09.2003 @ 16:09 | bjorninn |
    Lítið að ske á þessum bæ. Sunna Kristín er enn lasin og er farin að æla ofan í allt hitt. Við héldum að hún væri að hressast í morgun, var ekkert heit og ekki neitt, en svo gubbaði hún yfir mömmu sína áðan. Jei. Við fórum með hana í 10 mánaða skoðun á þriðjudaginn. Jóhönnu ljósmóður fannst hún ekki vera búin að stækka alveg nóg, en ég held hún verði bara að sætta sig við að það eru óttalegir tittir í famelíunni, og Sunna Kristín ætlar bara að verða smá og kná eins og "stóri" bróðir sinn. Enda er það ekki magnið sem skiptir máli, heldur gæðin. Þorsteinn og Gunnhildur eru komin til Seattle og eru farin að halda dagbók á netinu, þannig að tékkið á því.
    | Verið ófeimin! |




    | 15.09.2003 @ 21:38 | bjorninn |
    Þetta er nú meira pestarbælið hér. Nú er Sunna Kristín aftur komin með hita :o( Hún var með 38,6 stiga hita núna í kvöld. Maður hélt að þetta væri nú að verða gott. Hún er búin að vera hálf veik greyið síðan um mánaðarmót. Annars ekkert að frétta, hélt þennan fína fyrirlestur í skólanum í dag, og svo er annar á fimmtudaginn. Er núna að skrifa eitt stykki þýðanda sem ég á að skila á föstudaginn í Forritunarmálum. Best að halda áfram með hann. Yfir og út.
    | Verið ófeimin! |




    | 14.09.2003 @ 22:29 | bjorninn |
    Er í skólanum að skálda hrikalegan fyrirlestur sem ég á að halda á morgun í Málstofu um net og stýrikerfi. Efnið sem við eigum að fjalla um er "Measurements in the Linux Kernel". Hljómar spennandi ekki satt. Held þetta sé hérumbil leiðinlegasta efni sem ég hef lesið, og hef ég þó lesið margt leiðinlegt. Hrafnhildur er komin með kvefið skemmtilega, en aðrir eru svona að verða nokkuð hressir. Sunna Kristín er samt enn með smá hor. Jæja ætla að fara að halda áfram að skálda einhverja vitleysu í þennan fyrirlestur, heyrumst.
    | Verið ófeimin! |




    | 12.09.2003 @ 21:21 | bjorninn |
    Hey! Kíkið á þetta. Enga nísku nú.
    | Verið ófeimin! |




    | 12.09.2003 @ 10:48 | bjorninn |
    Vegna fjölda áskorana bætti ég einni mynd í nýjasta albúmið.
    | Verið ófeimin! |




    | 11.09.2003 @ 16:32 | bjorninn |
    Henti inn nýjum myndum á myndasíðuna. Hef ætlað að setja þetta inn lengi, en lét loksins verða af því. Þetta eru aðallega partýmyndir úr partýum síðustu helga. Mætti halda að maður væri alltaf á djamminu...
    | Verið ófeimin! |




    | 11.09.2003 @ 13:39 | bjorninn |
    Þá er skólinn byrjaður fyrir alvöru. Stanslaus verkefni þessa dagana, engin miskunn. Þarf að skila einu á morgun, svo að halda fyrirlestur á mánudaginn og annan á fimmtudaginn, og svo annað verkefni á næsta föstudag. Þetta verður gríðarstemning. Annars er allt fínt að frétta bara. Gísli Tjörvi er búinn að vera veikur, en er orðinn hress núna. Smá kvefaður samt. Ég og Sunna Kristín erum líka enn með hor, en þetta hlýtur að fara að klárast. Hrafnhildur hefur alveg sloppið ennþá og sleppur vonandi bara alveg, 7, 9, 13. Steini og Gunnhildur fóru til Ameríku á mánudaginn, en maður hefur ekkert heyrt í þeim enn. Gengur vonandi vel hjá þeim að koma sér fyrir og að byrja í skólanum.
    | Verið ófeimin! |




    | 09.09.2003 @ 13:29 | bjorninn |
    Kominn heim frá London heilu á höldnu. Það var helvíti fínt, hefði samt verið betra ef maður hefði haft farangurinn sinn með sér. Snillingunum hjá Flugleiðum tókst að troða honum í einhverja aðra flugvél, og ég fékk hann ekki fyrr en seint á sunnudaginn, þegar við vorum á leið á flugvöllinn á leiðinni heim. Það voru drukknir fáeinir bjórar þarna, ekki standandi í því edrú að vera farangurslaus í útlöndum.

    Já, og Íris systir átti afmæli á sunnudaginn, til hamingju með það!
    | Verið ófeimin! |




    | 04.09.2003 @ 16:47 | bjorninn |
    Allt í sóma hér. Er að fara til London á morgun í 15 ára afmæli Point. Þar verður eitthvert grín. Kem svo aftur á sunnudagskvöld. Það verður örugglega ekkert leiðinlegt. Erum að fara á eftir til Steina og Gunnhildar, ætlum að gúffa í okkur pizzum hjá þeim. Þau eru svo að fara til Seattle á mánudaginn, þannig að maður sér þau líklega ekki aftur fyrr en einhvern tímann í ellinni þegar þau verða komin með McDonalds rassa, Burger King maga og KFC læri.
    | Verið ófeimin! |




    | 02.09.2003 @ 22:19 | bjorninn |
    Sunna Kristín er öll að hressast. Var bara með 4 kommur í gærkvöldi og hitalaus í dag. Er samt enn svolítið kvefuð. Tönninn hennar er alltaf að stækka, og er rosa flott. Svo er hún líka farin að skríða alveg rosalega hratt, og labba meðfram ef hún heldur sér í. Algjört undrabarn eins og bróðir sinn.
    | Verið ófeimin! |




    | 01.09.2003 @ 14:50 | bjorninn |
    Þetta var fín helgi hjá okkur. Fórum í brúðkaup til Gylfa og Betu í Hveragerði á Laugardaginn, og brunuðum síðan í bæinn í kveðjuveislu til Steina og Gunnhildar. Það var hörkufjör þar, fullt af fólki, hljómsveit og þessi fína bolla. Kolla frænka passaði Gísla Tjörva og Sunnu Kristínu og það gekk bara vel, enda einstaklega stillt og prúð börn sem maður á. Er búinn að vera helvíti kvefaður og slappur, en er að hressast eitthvað held ég. En þá ætlar Sunna Kristín að taka við. Hún var komin með hita í gærkvöldi og er með fullan nebba af hori, ósköp slöpp greyið. Ef Yrsa Líf er að skoða þetta, þá fór pakkinn þinn í póst í dag, eftir miklar tafir. Ég gleymdi honum heima alla síðustu viku, en mundi eftir að taka hann með mér í vinnuna í morgun, og fór með hann á pósthúsið.
    | Verið ófeimin! |




    | 29.08.2003 @ 14:48 | bjorninn |
    Vikan að verða búin og hörkuhelgi fram undan. Erum að fara í brúðkaup á morgun klukkan 1800 í Hveragerði, en þar eru Gylfi og Beta að fara að gifta sig. Getum samt ekki stoppað lengi þar, ónei, því í Reykjavík verða Steini og Gunnsa með svona hálfgert brúðkaup og hálfgerða kveðjuveislu. En þau giftu sig fyrr á árinu án þess að láta nokkurn vita, og eru svo að flytja til Seattle eftir viku eða svo. Þannig að það verður ekkert slakað á þessa helgina ónei. Og ég sem er með hálsbólgu og fullur af hori upp í heila. Maður verður bara að drekka það úr sér, ekki spurning.
    | Verið ófeimin! |




    | 26.08.2003 @ 21:05 | bjorninn |
    Sunna Kristín er komin með fyrstu tönnina!!! Húrra, húrra, húrra!!! Það er rétt farið að glitta í vinstri framtönnina í neðri góm, ekkert smá flott tönn. Það var fyrsti alvöru skóladagurinn hjá okkur Gísla Tjörva í dag, þannig að það er nóg að gera. Er í tveimur fögum núna, Forritunarmálum og Málstofu um net og stýrikerfi, sem er próflaus kúrs. Gríðarhressandi að hafa próflausan kúrs, mætti vera meira af því. Ætli verði ekki bara brjáluð verkefnavinna í staðinn. Líklega. Gísli Tjörvi fékk nýjan kennara af því að Gunnhildur sem kenndi honum í öðrum og þriðja bekk er hætt í Grandaskóla. Samt var það eiginlega ekki nýr kennari, því Bryndís sem kenndi honum í fyrsta bekk kennir honum aftur núna. Hann er voða ánægður með það, segir að Bryndís sé lang besti kennarinn í skólanum.
    | Verið ófeimin! |




    | 25.08.2003 @ 17:16 | bjorninn |
    Kominn mánudagur eftir nokkuð annasama helgi. Búið að fara á sjókajak á Stokkseyri, detta í sjóinn, borða mikinn mat og drekka mikinn bjór og rauðvín. Við ákváðum að koma Steina og Gunnhildi aðeins á óvart, fyrst þau giftu sig í vor án þess að láta nokkurn mann vita. Við strákarnir fórum með Steina á sjókajak frá Stokkseyri og stelpurnar fóru með Gunnhildi í nudd og eitthvað svoleiðis stelpustöff. Þegar við vorum að koma í land, ætlaði ég að velta kajaknum hans Steina, en það tókst ekki betur en svo að ég lenti sjálfur á hafsbotni. Gengur bara betur næst. Síðan borðaði allt liðið saman um kvöldið heima hjá Örnu og Bogga. Boggi stóð í ströngu og töfraði fram þvílíka veislu handa okkur. Grafinn skötusel í forrétt og nautalundir í aðalrétt. Ekki slæmt það. Svo er skólinn að byrja. Skólasetning hjá Gísla Tjörva í dag, og ég byrja á morgun.
    | Verið ófeimin! |




    | 22.08.2003 @ 00:34 | bjorninn |
    Var að bæta inn nýjum myndum á myndasíðuna. Þar eru myndir frá því um verslunarmannahelgina og ýmislegt annað. Þar eru líka myndir af uppistandinu hennar Sunnu Kristínar. Tékk it out. Ég ætla að koma mér í koju, góða nótt.
    | Verið ófeimin! |




    | 21.08.2003 @ 09:49 | bjorninn |
    Yrsa Líf frænka átti 10 ára stórafmæli í gær. Til hamingju með það frænka.

    Sunna Kristín stóð upp alveg sjálf í fyrsta skipti í gær, og gerði það svo aftur og aftur, ógurlega montin. Nú getur hún farið að tæta fyrir alvöru það sem er á stofuborðinu og svoleiðis, það finnst henni rosa gaman. Hún er ekki enn farin að skríða á hefðbundna mátann, heldur tosar og ýtir hún sér áfram á maganum, og sópar gólfið í leiðinni. Gísli Tjörvi byrjar í skólanum í næstu viku, eins og ég, og var að byrgja sig upp af stílabókum og blýöntum og svoleiðis í gær. Svo átti hann að kaupa vasareikni líka, fannst það ekkert smá flott.
    | Verið ófeimin! |




    | 19.08.2003 @ 14:42 | bjorninn |
    Foo Fighters - One by oneLítið að frétta af okkur. Gísli Tjörvi kom með fluginu heim frá Hornafirði á sunnudaginn, hress og kátur með ferðina. Í dag er nákvæmlega 1 vika í Foo Fighters tónleikana í Laugardalshöllinni, sem ég ætla einmitt að fara á. Það verður nú ekki leiðinlegt. Er einmitt að hlusta á Foo Fighters plötuna One By One núna, sem er bara helvíti hressandi.
    | Verið ófeimin! |




    | 16.08.2003 @ 22:09 | bjorninn |
    Kíktum aðeins niður í bæ í alla menninguna í dag. Fullt af fólki og mikið um að vera. Fórum hvergi inn, en röltum bara um og skoðuðum allt fólkið. Veðrið var bara ágætt, svona smá rigningarúði og næstum logn. Núna sýnist mér vera stytt upp svo það ætti að verða líf og fjör í bænum fram á morgun. Gísli Tjörvi kemur heim frá Hornafirði annað hvort á morgun eða hinn, og við hlökkum mikið til að fá hann heim. Hann er búinn að hafa það gott síðustu vikuna, búinn að vera að leika í sveitinni og láta ömmur og afa stjana við sig. Ekki slæmt líf það.
    | Verið ófeimin! |




    | 15.08.2003 @ 14:25 | bjorninn |
    Jæja, enn einn flöskudagurinn upp runninn. Menningarnótt á morgun. Verður örugglega allt vitlaust, held það sé best að halda sig bara inni. Síðan er víst líka Reykjavíkurmaraþon á morgun, og Hrafnhildur var að reyna að draga mig í skemmtiskokkið í því. Held það sé ekki alveg í lagi með hana!!! Ég hef reyndar aldrei skilið þetta nafn, skemmtiskokk, þetta er fokkin HUNDleiðinlegt. OK, það er allt í lagi að skokka ef maður hefur bolta eða eitthvað til að sparka í, með í leiknum, en að hlaupa bara til að hlaupa, það er ekki fyrir mig. Hún sagði að þetta væru "bara" 3 kílómetrar og ekkert mál. Mér finnst það nú ógurlegur hellingur, a.m.k. tveimur kílómetrum of mikið. Skokka kannski bara frekar úr bílnum inn í Ríki á eftir og kaupi mér kippu af öli.
    | Verið ófeimin! |




    | 13.08.2003 @ 17:18 | bjorninn |
    Jæja, klukkan að verða fimm og vinnan hjá flestum að verða búin. En ekki hjá mér grenj. Við Gummi erum að fara að endurskipuleggja netið hér í vinnunni þegar allir hinir eru farnir heim. Það endar örugglega með einhverjum ósköpum þannig að maður verður fastur hér til miðnættis. Klukkan orðin fimm, best að reka allt liðið heim og hefjast handa...
    | Verið ófeimin! |




    | 12.08.2003 @ 11:48 | bjorninn |
    Scoundrel DaysEr í vinnunni að hlusta á snilldarplötuna Scoundrel Days með snilldarbandinu a-ha. Þetta er fyrsta platan sem ég keypti mér sjálfur. Hún kostaði heilan þúsundkall árið 1986 og var keypt í Hornabæ á Hornafirði, sem var þá þar sem HP og synir eru núna. Þar sem maður var nú ekkert sérstaklega fjáður á þessum árum frekar en í dag, þá keyptum við Haffi okkur plötuna saman, og skiptumst síðan á að hafa hana. Hún var síðan tekin upp á spólu til að sá sem var ekki með plötuna gæti haft spóluna á meðan. Haffi er búinn að hafa plötuna núna í næstum 17 ár, hlýtur að vera komið að mér að hafa hana, ha Haffi?
    | Verið ófeimin! |




    | 11.08.2003 @ 16:07 | bjorninn |
    Mæli með að allir kíki á Baggalút. En hann var að koma úr allt of löngu sumarfríi. Alltaf hressandi að skoða Baggalútinn, hann fær hiklaust þrjá bjóra.
    | Verið ófeimin! |




    | 11.08.2003 @ 14:10 | bjorninn |
    Óskar var að sjálfsögðu skírður, en ekki skýrður og leiðréttist það hér með.
    | Verið ófeimin! |




    | 11.08.2003 @ 14:08 | bjorninn |
    Gísli Tjörvi fór á Hornafjörð á laugardaginn með Hrefnu ömmu og Gísla afa. Hann ætlar að vera á Hornafirði í viku, kemur til baka með Kollu frænku og co á laugardaginn. Rosa gaman hjá honum. Óskar Borgþórs og Örnuson var skýrður um helgina, á Hornafirði. Það er allt að gerast á Hornafirði þessa dagana. Róleg helgi hjá okkur, kíktum á Gay Pride gönguna á laugardaginn. Það var blautt. Vorum annars bara heima að tjilla.
    | Verið ófeimin! |




    | 07.08.2003 @ 13:59 | bjorninn |
    Gamla settið er að koma heim frá Spáni í dag. Þau eru örugglega þokkalega grilluð eftir ferðina, búinn að vera 40 stiga hiti þarna úti síðustu daga. Hugsa að þau verði bara feginn að komast í kuldann hérna heima eftir þetta. Gísli Tjörvi ætlar að fara með þeim austur á Hornafjörð og vera þar í nokkra daga í heimsókn. Honum finnst alltaf gott að vera þar, og vefja ömmunum og öfunum um fingur sér. Sunna Kristín er komin á fleygiferð á bringusundi um öll gólf. Hún ýtir sér áfram á maganum um allt, finnst það miklu betra en að vera að skríða á hefðbundinn hátt.
    | Verið ófeimin! |




    | 05.08.2003 @ 15:08 | bjorninn |
    Þá er maður mættur aftur í vinnuna eftir fína helgi, og bara fjórir vinnudagar þessa vikuna, sem er bara snilld. Fórum í gær á Þingvelli í góðu veðri. Það var engin sól og það var bara ágætis tilbreyting. Maður er bara orðinn nokkuð well done eftir blíðuna síðusta dagana, þó maður sé náttúrulega ekkert að kvarta.
    | Verið ófeimin! |




    | 02.08.2003 @ 21:08 | bjorninn |
    Ekki slæm byrjun á verslunarmannahelginni þetta. Það er búin að vera snilldarblíða bæði í gær og í dag. Við kíktum í gönguferð í bæinn í dag. Hittum Örnu og Bogga og Bogga jr þar. Löbbuðum um, settumst í grasið á Austurvelli, horfðum á mannlífið og borðuðum ís. Nokkuð rólegt í bænum, allur skríllin að gera skandal í Eyjum eða á Akureyri. Mætti gera þetta oftar senda alla vitleysingana til Vestmannaeyja, helvíti gott að geyma þá þar bara, ættu að falla vel inn í hópinn sem er þar fyrir. En Árni kallinn Johnsen fékk víst ekki að fara, hvaða rugl er nú það? Er það ekki refsing refsinganna að geyma hann í Vestmannaeyjum? Keikó vildi a.m.k. ekki vera þar, en hann hefur reyndar líklega töluvert meira í kollinum en Árni. Ég var að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Myndir úr sumarfríinu, blíðunni í Reykjavík, og eitthvað aðeins meira. Kíkið endilega á það.
    | Verið ófeimin! |




    | 01.08.2003 @ 21:07 | bjorninn |
    Ljúfa líf...bara komin verslunarmannahelgi og þessi líka rjómablíða. Hvað klikkaði eiginlega? Ég tók helgina reyndar snemma, tók mér frí eftir hádegið og fór í golf í góða veðrinu. Það var ekki slæmt.

    Sunna Kristín er alveg að verða búin að læra að skríða, er farin að fara upp á hendurnar og hnén og aðeins að mjaka sér áfram. Á bara eftir að fatta betur hvernig þetta system virkar, gerist örugglega á næstu dögum. Núna er hún að fara að sofa, liggur í rúminu sínu, rífst og skammast, finnst hundleiðinlegt að fara að sofa. Gísli Tjörvi er úti í góða veðrinu að leika við Indriða og Albert.
    | Verið ófeimin! |




    | 01.08.2003 @ 00:27 | bjorninn |
    Bara að testa nýja kerfið. Björninn er búinn að smíða ógurlegt kerfi í kringum blogg síðuna. Nú eru allar færslur skrifaðar ofan í MySQL gagnagrunn, og lesnar þaðan aftur með hjálp PHP. Aldrei að vita nema björninn smíði svo líka commentakerfi og gestabók þegar hann verður í góðu stuði.
    | Verið ófeimin! |




    | 31.07.2003 @ 16:34 | bjorninn |
    Hvað á maður eiginlega að gera við allan pjéninginn sem maður fær endurgreiddan frá skattmann á morgun? Helvíti eru þeir sniðugir að gera þetta svona rétt fyrir verslunarmannahelgi, þá förum við aumingjarnir með þetta allt í ríkið og eyðum þessu þar í bjór og brennivín. Þetta eru sko bissnessmenn/konur. Lítið að frétta annars. Það verður ekki farið í neina útilegu um helgina, kannski bara tekinn rúntur útfyrir bæinn einhvern daginn. Enda er náttúrulega snilld að vera í bænum um þessa helgi, ekki nema ein og ein hræða á stangli og maður hefur bæinn nánast út af fyrir sig.
    | Verið ófeimin! |




    | 29.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Þá er björninn kominn upp aftur eftir rafmagnsleysi. Einhverjir aular sem grófu sundur rafmagnsstreng og tóku rafmagnið af öllum Vesturbænum. Eyðileggja alveg fyrir manni uppitímann með þessari vitleysu, hann var kominn í 3 mánuði, aarghh. Það dugar ekkert minna en rafmagnsleysi til að taka björninn úr umferð.
    | Verið ófeimin! |




    | 28.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Úfff, mánudagur aftur. Frekar róleg helgi að baki. Var reyndar á bakvakt um helgina, og það er alltaf gríðarstemning, eða ekki. Kíktum aðeins í bæinn á laugardaginn, settumst á grasið á Austurvelli og borðuðum ferskjur. Hlupum síðan heim þegar fór að rigna á okkur. Spiluðum síðan við Heiðu og Pétur í gærkvöldi, og ég leyfði hinum að vinna að þessu sinni. Verslunarmannahelgin um næstu helgi, en ætli maður verði ekki bara í rólegheitum heima þetta árið, og sleppi öllum fylleríissamkundum. Enda kemur engin hátíð nokkurn tímann til með að toppa Atlavík '91, þar sem hljómsveitirnar Sú Ellen og Ítrekun fóru á kostum kvöld eftir kvöld.
    | Verið ófeimin! |




    | 25.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Palli á peysunni á ammæli, og fær hér með hamingjuóskir frá Bjössa á bolnum.

    Af hverju getur aldrei verið svona fjör á Alþingi. Haldið að það væri ekki gaman að sjá Kolbrúnu Halldórs halda Dabba með haustaki á meðan Steingrímur J gæfi honum einn gúmoren?
    | Verið ófeimin! |




    | 24.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Helga amma (og langamma) er sjötug í dag, og Hörður afi (og langafi) varð 75 ára þann 19. júlí. Til hamingju með það.

    Gamla settið kíkti í heimsókn í gær, kom aðeins við á leið sinni til Mallorca. Eru örugglega komin á hótelið núna, og eru að slátra fyrstu rauðvínsflöskunni. Ekki slæmt að vera í þeirra sporum í dag. Maður verður bara að reyna að gera það besta úr lífinu á klakanum í staðinn, kannski maður fari bara í golf í kvöld.
    | Verið ófeimin! |




    | 22.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Þá er vinnan byrjuð aftur :o( Fyrsti dagurinn eftir sumarfrí var í gær. Ég ákvað að taka því samt rólega svona fyrsta daginn eftir sumarfrí og vann bara til tvö. Maður má ekki ofkeyra sig á þessu helvíti. Ég hætti reyndar fyrr af því að við fórum með Sunnu Kristínu í 8 mánaða skoðun til hennar Jóhönnu í gær. Það gekk bara rosavel, Sunna Kristín klappaði fyrir hana og allt, heillaði hana upp úr skónum eins og við var að búast. Hún fékk líka sprautu, og fór ekki einu sinni að vola við það. Stelpan ætlar greinilega að verða hinn mesti harðjaxl eins og pabbi sinn. Hún er orðin 69,5 cm löng, og 8240 grömm (ef ég man rétt), og dafnar vel. Ætlar samt ekki að verða neinn risi frekar en bróðir sinn. Það var gríðarblíða síðustu dagana í fríinu eins og þið hafið líklega tekið eftir sjálf. Við fórum í Nauthólsvík og Heiðmörk og gönguferðir í miðbæinn. Fór líka í golf á sunnudagskvöldið og spilaði besta hringinn í sumar, lækkaði um 2 í forgjöf, niður í 30,9. Maður hefur verið svona vel innblásinn eftir að horfa á Opna Breska um helgina. Stefnan er sett á að fara niður í 25 áður en sumarið er úti. Um daginn eignuðust Arna og Boggi lítinn strák, toppeintak sýnist mér, en við fórum seinnipartinn í gær og litum á gripinn. Til hamingju!
    | Verið ófeimin! |




    | 14.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Þvílík leti í gangi, enda er maður í sumarfríi. Maður er að skríða á fætur í kringum hádegi þessa dagana. Við vorum nú reyndar helv... dugleg og máluðum geymsluna, og settum allt draslið í hana sem er búið að vera að þvælast um alla íbúð síðustu mánuði. Settum síðan nýtt rúm í fullri stærð inn til Gísla Tjörva. Það kallaði að sjálfsögðu á gríðarlega endurskipulagningu á herberginu hans því það virðist sjöfalt stærra en gamla rúmið hans. Hef ekki kveikt á tölvunni síðan ég bætti síðustu myndum inn. Neyddist til að kveikja á henni núna til að tappa af minniskortinu í myndavélinni. Það eru semsagt komnar nýjar myndir. Þetta eru myndir af Humarhátíðinni og einhverjar nokkrar í viðbót. Búið að vera fínt í fríinu. Það var að vísu frekar fúlt veður fyrir austan, sérstaklega á laugardeginum, en þá var skidekulde. Samt alltaf gaman á Humarhátíð. Það var reyndar ekki djammað mikið þessa hátíð, ömmur og afar allt of upptekin við að djamma sjálf til að geta passað ;o) Neinei það var svosem ekki mikill djammfiðringur í manni, miklu betra að fara bara snemma að kúra með Sunnu Kristínu í þessum skítakulda. Það er búin að vera rjómablíða í dag, búið að fara í golf, grilla, og sleikja sólina á svölunum. Spáir áfram blíðu næstu daga, mér finnst maður líka eiga það inni eftir skítaveðrið í síðustu viku. Hvað á svoleiðis rugl að þýða þegar maður er í sumarfríi.
    | Verið ófeimin! |




    | 03.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Sumarfrí, sumarfrí, sumarfrí. Þá er maður kominn í sumarfrí í rúmar tvær vikur. Ætlum að bruna á Hornafjörð í fyrramálið. Ég var að bæta inn nýjum myndum á myndasíðuna. Þetta eru svona bland í poka myndir. Verið að tæma minniskortið fyrir fríið og Humarhátíðina.
    | Verið ófeimin! |




    | 02.07.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Næst síðasti dagurinn í vinnunni fyrir sumarfrí. Best að nota vinnutímann í eitthvað annað en að vinna í smá stund ;o) Það verður fínt að komast í frí. Við byrjum fríið á að fara austur á Hornafjörð á Humarhátíð. Það verður óvenju fámennt úr okkar vinahóp á hátíðinni í ár. Óskar og Sylvía mæta ekki, ekki Arna og Boggi (þau eru reyndar löglega afsökuð þar sem þau eru komin að því að fjölga sér, sjálfsagt ekki skemmtilegt að fæða barn einhvers staðar á Skeiðarársandi í sandstormi, og láta einhvern Öræfabóndann taka á móti erfingjanum) og ekki heldur Siggi og Sheba. Ætlum líklega að leggja af stað á föstudagsmorguninn. Hef mestar áhyggjur af að koma ekki öllu í bílinn, en golfsettið verður náttúrulega ekki skilið eftir. Spurning hvort það þurfi að fara að kaupa station bíl undir allt draslið sem fylgir orðið famelíunni. Veit ekki hvað við verðum lengi í menningunni, fyrir austan, það fer eftir veðri og vindum. Bæti sennilega inn nokkrum myndum annað hvort í kvöld eða á morgun. Hef ekki undan að tappa af minniskortinu í vélinni, Hrafnhildur er svo dugleg að taka myndir.
    | Verið ófeimin! |




    | 28.06.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Vorum að koma heim úr gríðarhressandi Heiðmerkurferð. Það var þessi líka rjómablíða þegar við vöknuðum í morgun. Við ákváðum það að ekki væri hægt að hanga inni í svona góðu veðri, þannig að ákveðið var að kíkja í Heiðmörk. Við pökkuðum vagninum hennar Sunnu Kristínar í bílinn, settum teppi og nesti í tösku, og tættum af stað. Ætluðum aldeilis að hafa það gott í blíðunni meðan Sunna Kristín svæfi í vagninum. Þegar við komum út í bíl var nú aðeins farið að þykkna upp, ekkert mikið samt þannig að við létum það ekkert stoppa okkur. Þegar við komum í Heiðmörk var orðið ansi dimmt yfir, og áður en langt um leið var komin þessi fína rigning :o( Þannig að það var pakkað saman og brunað á Meistaravellina aftur, þar sem Sunna Kristín er sofandi úti á svölum núna. Gott að vita að sumt breytist aldrei, það er alltaf hægt að stóla á veðrið á Íslandi.
    | Verið ófeimin! |




    | 26.06.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Bætti inn nýjum myndum á myndasíðuna. Þetta eru myndir frá því um Hvítasunnuna í Ólafsvík, og frá því að Hrafnhildur, Gísli Tjörvi og Sunna Kristín fóru í heimsókn á Hornafjörð, plús nokkrar í viðbót. Það styttist óðum í Hátíð á Hornafirði, og þangað er stefnt á að fara, hele familien. Hátíðin verður helgina 4.-6. júlí í ár. Maður verður bara að vona að maður verði ekki tekinn í gíslingu á tjaldstæðinu, eins og á til að gerast með utanbæjarfólk. Spurning hvort maður teljist ekki orðið utanbæjarmaður, þannig að það er eins gott að passa sig.
    | Verið ófeimin! |




    | 25.06.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Haffi á 27 ára afmæli í dag. Til hamingju með það Þrassi. Nóg af afmælum þessa dagana. Lítið að frétta héðan annars. Afi og amma komu í mat til okkar á Sunnudagskvöldið, en þá voru þau nýbúin að þeysast um öll Suðurnesin með Eysteini ömmubróður. Það er víst svo mikið að gera hjá þeim í matarboðum og skoðunarferðum að þau vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið, bara gott mál :) Ég ætla að reyna að henda inn nýjum myndum annað hvort í kveld eða á morgun, fer eftir því hve latur maður verður á eftir.
    | Verið ófeimin! |




    | 21.06.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Fáfnir Freyr var skírður í gær í kapellunni á kvennadeildinni á Lansanum. Ég, uppáhaldsfrændinn, var skírnarvottur, og á þar af leiðandi að fylgjast með því að frændi fái gott og kristilegt uppeldi. Þannig að það er eins gott að stóra systir standi sig í stykkinu, hehe. Þau er núna farinn í sveitasæluna austur á Hornafirði. Við ætlum að reyna að kíkja austur eftir tvær vikur. Fara á Humarhátíð, og hafa það gott, og fylgjast með uppeldinu ;o) Sigurður nokkur Gunnlaugsson á afmæli í dag, orðinn 26 ára strákurinn. Til hamingju með daginn Siggi, og hvenær er næsti matarklúbbur á dagskrá??? Drengurinn er núna búinn að gera tvær, mjög svo heiðarlegar tilraunir til að kæfa þennan virðulega félagsskap. Hið furðulegasta mál þar sem hann hefur alltaf verið þekktur fyrir að vera einstaklega vel skipulagður og samviskusamur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.
    | Verið ófeimin! |




    | 16.06.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Í dag klukkan 12:20 eignuðumst við glænýjan frænda. Íris og Nökkvi eignuðust semsagt strák í dag. Guttinn heitir Fáfnir Freyr og var 14 merkur og sléttur hálfur meter þegar hann kom í heiminn. Hann ku vera bráðmyndarlegur eins og uppáhalds frændi sinn, enda ekki við öðru að búast þegar þessi ætt er með puttana í málunum.
    | Verið ófeimin! |




    | 15.06.2003 @ 12:00 | bjorninn |
    Hæ öll. Ég ákvað að setja smá texta hérna inn fyrst ég hef ekkert annað að gera. Aldrei að vita nema maður geri það annað slagið héðan í frá. Ég ætla nú samt ekki að lofa neinu um það. Ég var að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna. Þetta eru ýmsar myndir frá því í maí og júní. Meðal annars myndir frá því á afmælinu mínu, en þá var rjómablíða í Reykjavík. Lítið að frétta annars, ég er einn í Reykjavík að láta mér leiðast, öll famelían á Hornafirði. Ég er reyndar að fara í mat til Írisar og Nökkva á eftir, og mér skilst að ég fái fisk, það verður nú ekki slæmt :o)
    | 4 ófeimnir |